Bólusetningar
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 51 ›
Bólusettir muni líklega veikjast alvarlega hér eins og annars staðar Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur að grípa eigi strax til aðgerða innanlands svo stemma megi stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Reikna megi með að bólusettir veikist alvarlega hér á landi eins og dæmi séu um í öðrum Evrópulöndum. Innlent 20.7.2021 20:30
Twitter lokar á þingkonu fyrir falsfréttir um Covid Twitter hefur lokað tímabundið á bandarísku þingkonuna Marjorie Taylor Green fyrir að hafa tíst „villandi“ upplýsingum um kórónuveiruna. Aðeins verður hægt að skoða Twitter-aðgang hennar í 12 klukkustundir og hvorki verður hægt að svara eða endurtísta tístunum hennar. Erlent 20.7.2021 07:57
Hertar aðgerðir í ósamræmi við traust á bólusetningum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra óttast að aðgerðir innanlands verði hertar á ný þegar tilefni til þess sé ekki endilega til staðar. Hún virðist ekki sannfærð um réttmæti þeirra aðgerða á landamærunum sem kynntar voru í dag. Innlent 19.7.2021 22:00
Sjúklingur með Covid-19 lagður inn á Landspítala Sjúklingur var lagður inn á Landspítala vegna Covid-19 í gær. Þetta er fyrsta innlögnin í nokkrar vikur, að sögn yfirmanns Covid-deildar. Hann telur að herða eigi aðgerðir á landamærum, til dæmis með skimun á Íslendingum. Innlent 18.7.2021 18:04
Héldu að þau yrðu örugg á Íslandi en eiginmaðurinn smitaðist samt Farþegi skemmtiferðaskipsins Viking Sky hefur ekki hugmynd um hvar eiginmaður hennar, einnig farþegi á skipinu, smitaðist af kórónuveirunni. Hún lætur vel af Íslandsdvölinni þrátt fyrir allt. Aðrir gestir farsóttarhússins taka í sama streng. Innlent 17.7.2021 20:00
Segir samfélagsmiðla eiga þátt í „faraldri óbólusettra“ Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að eini faraldurinn sem nú geisar í Bandaríkjunum sé faraldur kórónuveirunnar meðal samlanda hans sem ekki vilji láta bólusetja sig fyrir veirunni. Hann segir athæfi samfélagsmiðlarisa á borð við Facebook spila þar stórt hlutverk. Erlent 17.7.2021 13:24
Talsvert veikir í farsóttarhúsi þrátt fyrir bólusetningu Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af sjö utan sóttkvíar. Mjög hefur fjölgað í farsóttarhúsi síðustu daga en á fjórða tug eru þar í einangrun vegna kórónuveirusmits. Forstöðumaður segir að fólkið sé talsvert veikt, þrátt fyrir bólusetningu. Innlent 17.7.2021 12:49
„Greinilega er maður ekki alveg hólpinn með bólusetningunni“ Eyjólfur Ásberg Halldórsson, sem hafði verið bólusettur gegn Covid-19, segist hafa fagnað of snemma en hann greindist með veiruna eftir að hann kom heim frá Spáni fyrr í mánuðinum. Hann hvetur fólk til að fara varlega áfram. Innlent 16.7.2021 18:43
Á 44. degi blæðinga eftir bólusetningu og fær engin svör Kona á fertugsaldri er á 44. degi blæðinga sem hófust daginn eftir að hún fór í síðari bólusetninguna með bóluefni Pfizer. Hún segist engin svör hafa fengið úr heilbrigðiskerfinu og að það hafi verið verulega lýjandi að ekkert lát sé á. Lífið 16.7.2021 16:31
„Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert. Viðskipti innlent 16.7.2021 14:36
„Þessar tölur sýna það ótvírætt að bólusetningin virkar“ Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisdeild Landspítalans, segir það alveg ljóst að virkni bóluefnanna sé gríðarlega góð. Innlent 15.7.2021 21:05
Segir virkni bóluefna ekki eins góða og vonast var til Sóttvarnalæknir segir virkni bóluefna gegn kórónuveirunni ekki eins góða og vonast var til. Þá hafi heilsufar áhrif á virkni bólusetninga. Hann íhugar nú að leggja það til að allir sem koma til landsins verði krafðir um neikvætt PCR próf. Tíu fullbólusettir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru fimm utan sóttkvíar. Innlent 15.7.2021 19:31
Aðgerðir ekki hertar: Flest smit undanfarna daga af delta-afbrigðinu Frá 1. júlí hafa 23 einstaklingar greinst með Covid-19 hér innanlands, flest af völdum delta-afbrigðisins svokallaða. Sóttvarnalæknir er ekki með tillögur að hertum sóttvarnaraðgerðum að svo stöddu, en það gæti breyst. Innlent 15.7.2021 11:30
Bólusetning með breyttu sniði í haust Í gær fór fram síðasta fjöldabólusetningin í Laugardalshöll og hér eftir verður bólusetning á höfuðborgarsvæðinu með breyttu sniði. Innlent 15.7.2021 11:29
Hætt að afhenda lögreglu vottorð hælisleitenda í bili Óvissa er uppi um hvort Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu megi afhenda lögreglu bólusetningarvottorð einstaklinga eins og stofnunin gerði í tilfelli tveggja Palestínumanna sem voru sendir úr landi í síðustu viku. Heilsugæslan hefur ákveðið að verða ekki við fleiri slíkum beiðnum lögreglunnar fyrr en skorið verður úr um þetta atriði. Innlent 15.7.2021 06:00
Sjokk fyrir alla að bólusettur hafi smitast Rekstrarstjóri Bankastræti Club, þar sem upp kom smit hjá starfsmanni sem var á vakt á föstudags- og laugardagskvöld, segir það hafa verið mikið sjokk að bólusettur starfsmaður hafi smitast. Hún telur ekki að smitið muni hafa áhrif á rekstur staðarins en hann verður opinn um næstu helgi. Lífið 14.7.2021 20:50
Langþráð frí eftir „vertíð“ í bólusetningum Gleði og tilhlökkun var einkennandi hjá starfsfólki í Laugardalshöll sem stóð sína síðustu vakt þar í dag – að öllu óbreyttu. Fjöldabólusetningum er nú lokið og þó bólusetningum verði framhaldið þá verða þær með breyttu sniði í haust. Innlent 14.7.2021 19:15
Afgangsbóluefni fer til landa sem á þurfa að halda Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að bóluefni sem verði afangs verði gefið þeim þjóðum sem á þurfi að halda. Innlent 14.7.2021 15:39
Hefur áhyggjur af Íslendingum á rauðum svæðum Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að þau fimm smit sem greindust utan sóttkvíar í gær minni okkur á að veiran sé úti í samfélaginu. Fjöldi Íslendinga sem staddur sé erlendis á svokölluðum rauðum svæðum sé einnig áhyggjuefni. Innlent 14.7.2021 13:11
Fimm smit utan sóttkvíar og á annað hundrað í sóttkví Í gær greindust fimm COVID-19 smit innanlands, allir utan sóttkvía, þrír eru full bólusettir en tveir ekki bólusettir að fullu. Innlent 14.7.2021 11:01
Verða með „björgunarlínu“ í bólusetningu meðan á fríinu stendur Búist er við um 1.700 manns í endurbólusetningu með bóluefni Moderna í Laugardalshöll í dag, síðasta bólusetningardaginn fyrir sumarfrí Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þá hafa 2.000 manns verið boðaðir í bólusetningu með AstraZeneca, en búist er við einhverjum afföllum úr þeim hópi. Þrátt fyrir frí verður ekki ómögulegt að fá bólusetningu á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Innlent 14.7.2021 10:54
Fjöldi útlendinga hefur tafið bólusetningar í dag Ljúka átti bólusetningardeginum í dag klukkan tvö en aðsókn hefur verið nokkuð meiri en heilsugæslan gerði ráð fyrir að sögn Ragnheiðar Óskar Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjá heilsugæslunni. Innlent 13.7.2021 14:42
Ætla að blanda bóluefni eins og enginn sé morgundagurinn Um sjö þúsund skammtar af bóluefni Pfizer verða gefnir í endurbólusetningu, þar sem fólk fær seinni skammt af bóluefninu, í Laugardalshöll í dag. Þá er opið fyrir aðra í fyrri bólusetningu, og birgðastaðan góð þannig að auðvelt ætti að vera að anna eftirspurn. Innlent 13.7.2021 11:42
Læknar fordæma niðurfellingu aðgerða á Englandi Samtök breskra lækna segja þá ákvörðun Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, að fella niður allar sóttvarnaraðgerðir í Englandi vera óábyrga og hættulega. Johnson tilkynnti í síðustu viku að allar aðgerðir yrðu felldar niður þann 19. júlí og það þrátt fyrir að smituðum færi hratt fjölgandi á Englandi. Erlent 13.7.2021 11:38
Tveir bólusettir greindust utan sóttkvíar Tveir greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar hér á landi í gær. Báðir voru bólusettir. Innlent 13.7.2021 11:12
Aldrei fleiri dáið í Rússlandi Yfirvöld í Rússlandi skráðu 780 dauðsföll vegna Covid-19 í gær. Það er mannskæðasti dagurinn frá upphafi faraldurs nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19. Alls greindust 24.702 smitaðir. Erlent 13.7.2021 10:50
Helmingur íbúa Evrópusambandsins fullbólusettur Meira en helmingur allra fullorðinna einstaklinga í Evrópusambandinu er nú fullbólusettur. Þetta tilkynnti Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á Twitter-reikningi sínum í morgun. Erlent 13.7.2021 08:53
Græðgi ráði för hjá þeim sem vilja gefa þriðja skammtinn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) er ekki hrifin af áherslum lyfjaframleiðandans Pfizer á að fá leyfi fyrir því að gefa þriðja skammt bóluefnis síns gegn Covid-19. Yfirmaður stofnunarinnar segir að það sé græðgi bóluefnaframleiðenda að kenna hve mikil mismunun hefur orðið í dreifingu bóluefnaskammta. Erlent 13.7.2021 07:43
Vara við taugasjúkdómi sem aukaverkun af bóluefni Janssen Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur ákveðið að bæta taugasjúkdóminum Guillain-Barré á lista yfir mögulegar aukaverkanir af notkun bóluefnis Janssen. Eftirlitið segir þó að líkur á að fá sjúkdóminn séu mjög litlar. Erlent 12.7.2021 18:52
Síðustu sprautur fyrir sumarfrí Á morgun og á miðvikudag eru síðustu bólusetningardagar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir sumarfrí. Að fríinu loknu verða bólusetningar með öðru sniði en verið hefur síðustu mánuði, en hvernig þeim verður háttað er ekki komið á hreint. Innlent 12.7.2021 07:21