Menning

Kabarettgestir sendir heim
Sýningargestir sem áttu miða á Kabarett í Íslensku óperunni í fyrrakvöld voru sendir heim áður en sýningin byrjaði. Felix Bergsson, sem fer með eitt aðalhlutverkanna í sýningunni, hafði tognað illa og á síðustu stundu var ákveðið að fella sýninguna niður.
Insúlín í æð liðin tíð?
Allt útlit er fyrir að fólk með sykursýki muni í nánustu framtíð ekki lengur þurfa að sprauta sig með insúlíni á hverjum degi. Lyfjanefnd á vegum stjórnvalda í Bandaríkjanna lagði í gær blessun sína yfir insúlín sem tekið er inn í gegnum munn í stað þess að sprauta því í æð.

Mikil aðsókn í listamiðstöð
Íslenskur arkitekt, Elísabet Gunnarsdóttir, stýrir Norrænu listamiðstöðinni í Vestur-Noregi. Aðsókn er gríðarleg og síðast bárust yfir fjögur hundruð umsóknir um sextán pláss.

Franz Ferdinand í Krikanum í kvöld
Franz Ferdinand, ein vinsælasta hljómsveit heims, heldur tónleika í Kaplakrika í kvöld. Hljómsveitarmeðlimirnir eru ánægðir með að vera komnir til Íslands.

Stórtónleikar hjá Gospelkórnum
Búast má við miklu fjöri hjá Gospelkórnum sem ætlar að halda stórtónleika í Laugardalshöll annað kvöld. Kórinn, sem stofnaður var fyrir kristnitökuhátíðina árið 2000, hefur notið mikillar hylli og er jafnan uppselt alls staðar þar sem þessi kór kemur fram. Undirleikarar hjá honum eru margir af færustu hljóðfæraleikurum landsins. Að sögn kunnugra verður gleðin slík að hún hrífur jafnt trúaða sem efasemdarmenn með sér.

Spriklar í golfi á sumrin
Jón Ingi Hákonarson, leikari, mun stjórna íslenska Bachelornum á SKJÁEINUM í haust, en stressar sig þó ekki á því að koma sér í form fyrir það.</font /></b />

Innblástur er allt
Undirbúningshópur fyrir Íslandsbanka Reykjavíkurmaraþon hefur hlaupið í einar tólf vikur og á laugardaginn uppsker hópurinn árangur erfiðis síns.</font /></b />

Menn verða að þekkja sín takmörk
Georg Ögmundsson hefur krafta í kögglum enda er hann iðinn við að lyfta lóðum. Hann hefur keppt í aflraunum erlendis í sumar og gert það gott. </font /></b />

Yfir 200 vilja spila á Airwaves
Yfir 200 umsóknir hafa borist skipuleggjendum Airwaves-tónlistarhátíðarinnar frá listamönnum og hljómsveitum sem vilja spila á hátíðinni sem fram fer í Reykjavík dagana 19. til 23. október. Um 100 innlendir listamenn munu koma fram á hátíðinni og 25 munu koma að utan. Þetta er í sjötta sinn sem tónlistarhátíðin er haldin hér á landi, en hún hefur vakið mikla athygli erlendis.

Íslenskt landslag heillar forvörð
Þeir sem leggja leið sína á Skriðuklaustur á næstunni gætu komið við í Gallerí Klaustri, þar sem einn virtasti forvörður Evrópu heldur myndlistarsýningu.

Strípað vöðvabúnt á hjólum
Triumph Speed Triple árgerð 2005 er nýjasta kynslóð klæðningarlauss sporthjóls sem höfðar til knapa sem vilja skera sig úr fjöldanum.

Ætlar að ná tveggja stafa tölu
Davíð Smári Harðarson, Idol-stjarna og tónlistarmaður, hefur tekið sig rækilega í gegn síðan Idol-keppninni lauk og hefur svo sannarlega breytt um lífsstíl.</font /></b />

Partý, stuð og sviti í ræktinni
Líkamsrækarstöðvarnar Bjarg á Akureyri og Hress í Hafnarfirði bjóða nú upp á kennslu í Body Jam. Um er að ræða nýtt líkamsræktarprógramm sem er um það bil að slá í gegn. </font /></b />

Duran Duran lofa góðri skemmtun
Liðsmenn bresku hljómsveitarinnar Duran Duran lentu á Reykjavíkurflugvelli í dag. Þeir segjast ánægðir með að vera loks komnir til Íslands og lofa skemmtilegum tónleikum í Egilshöll annað kvöld.

Fjölmenni við upphaf Kirkjudaga
Fjölmenni var við upphaf Kirkjudaga en á sjötta hundrað manns fylltu Hallgrímskirkju á opnunarhátíð í gærkvöldi. Þar flutti Björn Bjarnason kirkjumálaráðherra ávarp og biskup lúthersku kirkjunnar í Winnepeg bar kveðju frá Vestur-Íslendingum. Dagskráin í dag hófst nú klukkan tíu með morguntíðum í Hallgrímskirkju og Pílagrímagöngu frá Fella- og Hólakirkju. Klukkan tólf hefjast málstofur, kynningar, listsýningar, götuleikhús og fleira á Skólavörðuholti.

Bíldudals grænar baunir hafin
Arnfirðingahátíðin Bíldudals grænar baunir var sett í gær á Bíldudal. Að hátíðinni standa Arnfirðingafélagið í Reykjavík og félagasamtök á Bíldudal. Margt verður í boði á hátíðinni þar sem markmiðið er að kynna menningarstarf Arnfirðinga. Hátíðinni lýkur á sunnudag.
Sojabaunir slæva frjósemina
Ný bresk rannsókn bendir til þess að frjósemi karlmanna kunni að minnka ef þeir borða sojabaunir og tófú. Þessi matvæli innihalda efni sem virðist hafa mjög sterk áhrif á sæði í karlmönnum.

Vináttan lengir lífið
Gamalt fólk sem á vini er líklegra til að njóta lífsins og lifir lengur en þeir vinafáu. </font /></b />

Kirkjudagar um næstu helgi
Meginþungi Kirkjudaga, sem haldnir verða um næstu helgi, liggur í um 40 málstofum sem haldnar verða í Iðnskólanum. Um 700 manns leggja hönd á plóg en dagskráratriði verða 160 talsins.

Terra Borealis í Norræna húsinu
Í andyri Norræna hússins stendur nú yfir sýning á ljósmyndum Andys Horners, ljósmyndara og listfræðings. Sýningin ber heitið Terra Borealis og hefur farið vítt og breitt um norðurhvel, þ.á.m. til Eystrasaltslandanna, Skotlands og Færeyja og liggur leiðin til Grænlands að lokinni sýningu hér á landi. Það er barrskógabeltið í Noraðustur-Finnlandi, beykiskógar Danmerkur, víðátta Lapplands og innlandsísinn við Grænland sem fanga athygli Horners, svo eitthvað sé nefnt.

Afstaða tekin til lífs og dauða
Unnið er að því hjá Landlæknisembættinu að koma á fót sérstakri líknaskrá undir heitinu Lífsskrá sem mun meðal annars geyma upplýsingar um viljuga líffæragjafa.</font /></b />
Rætt um samkynhneigð á Kirkjudögum
Samkynhneigð, átröskun og jafnrétti er meðal þess sem rætt verður á Kirkjudögum þjóðkirkjunnar á Skölavörðuholtinu um næstu helgi.

Fá útrás fyrir keppnisskapið
Hjónin Brynja og Jón iðka veggtennis daglega ásamt börnum sínum þremur: Rósu, Þorbirni og Matthíasi. Þau eru sammála um að veggtennis sé hin besta líkamsrækt. </font /> </font /></b /></b />

Rúrí og Páll útnefnd í ár
Rúrí og Páll Steingrímsson voru útnefnd borgarlistamenn Reykjavíkur 2005 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri veitti hvorum listamanni um sig ágrafinn stein, heiðursskjal og ávísun að upphæð 500 þúsund krónur.
Uppgangur í sjálfstæðum leikhúsum
Metaðsókn var á sýningar sjálfstæðra atvinnuleikhúsa leikárið 2003-2004 en þá sóttu tæplega 180 þúsund áhorfendur sýningar þeirra. Vöxtur sjálfstæðu leikhúsanna virðist allmikill því að á liðnu leikári voru settar upp 50 sýningar á þeirra vegum.

Meðgöngusykursýki getur skaðað
Óléttar konur sem fá meðgöngusykursýki verða að hljóta stífa meðferð eigi börn þeirra að verða heilbrigð. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar ástralskra lækna.

Menningarhátíð á Seltjarnarnesi
Menningarhátíð Seltjarnarness er haldin um helgina. Nú klukkan tíu hófst morgunverður á Eiðistorgi í boði Björgunarsveitarinnar Ársæls. Þar mun lúðrasveit spila og eldri borgarar sýna dans. Klukkan tvö hefst skemmtidagskrá við Sundlaug Seltjarnarness þar sem meðal annars nýr hjólabrettapallur verður vígður.

Nýtt Íslandshefti Merian
Þýska ferðatímaritið Merian helgar nýjasta hefti sitt, sem kom út nú um mánaðamótin, umfjöllun um Ísland. Þetta er þriðja heftið um Ísland sem Merian gerir á þeirri rúmu hálfu öld sem þetta vandaða mánaðarrit hefur komið út; fyrsta Íslandsheftið kom út árið 1972 og annað árið 1989.

Hemlar verða að vera í lagi
Tími ferðalaganna er runninn upp og margir hafa tekið fram tjaldvagna og fellihýsi fyrir fríið. Að mörgu eru að huga áður en tjaldvagn eða fellihýsi er hengt aftan í bílinn -- ef búnaðurinn er ekki lagi getur farið illa. </font /></b />

Hristir af sér vetrarforðann
Guðlaugur Þór Þórðarson leggur mikið upp úr hreyfingu og finnst fjölbreytni mikilvæg</font /></b />