Rooney, Messi og Kaka allir farnir til City - eða þannig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. febrúar 2011 13:15 Myndin umrædda - hvar er Valli?
Mennirnir sem sáu um leikskrána fyrir leik Aris Thessaloniki og Manchester City í Evrópudeild UEFA í vikunni eru greinilega með húmorinn í lagi. Í stað þess að nota opinbera útgáfu af liðsmynd Manchester City voru þeir búnir að breyta henni og bæta aðeins í hópinn. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd má þarna finna leikmenn eins og Wayne Rooney, Kaka, Zlatan Ibrahimovic, Lionel Messi, Didier Drogba, Fernando Torres og Mesut Özil. Alls voru 60 leikmenn í hópnum og þykir myndin minna helst á plötuumslag Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band eftir Bítlana. Fulltrúar City á leiknum sáu skýrsluna fyrir leikinn og ætluðu ekki að gera mikið úr þessu enda sjá þeir sjálfsagt spaugilegu hliðina við þetta. En forráðamönnum Aris fannst þetta svo neyðarlegt að ákveðið var að henda öllu prentuðu upplagi af leikskránni. The Guardian greinir reyndar frá því að þetta hafi verið saklaus mistök hjá þeim sem sáu um leikskrána. Þeir hafi fundið umrædda mynd á netinu og ekki gert sér grein fyrir því að um grínmynd væri að ræða. Meðal allra frægu leikmannanna á myndinni má einnig finna hann Valla sem er þekktur fyrir að fela sig í margmenni á hinum ýmsu stöðum.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira