Fær Michael Johnson loksins tækifæri hjá City? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. febrúar 2011 23:45 Johnson í leik með City í október árið 2009 en síðan þá hefur hann ekki spilað með liðinu. Nordic Photos / Getty Images
Michael Johnson á möguleika á að spila sinn fyrsta leik með Manchester City í meira en eitt ár þegar að liðið mætir Aris Thessaloniki í Evrópudeild UEFA annað kvöld. Þetta er fyrsti leikurinn í 32-liða úrslitum keppninnar en liðin mætast í Grikklandi annað kvöld í fyrri viðureign liðanna. Roberto Mancini ætlar sér helst að vinna keppnina enda er krafan um titil hjá félaginu orðin ansi hávær. Carlos Tevez er í leikmannahópi City sem og Mario Balotelli sem hefur ekki spilað síðan 28. desember síðastliðinn. Það kom svo mörgum á óvart að Johnson var valinn í leikmannahópinn sem fór til Grikklands en hann gæti fengið óvænt tækifæri í fjarveru þeirra James Milner og Nigel de Jong sem báðir eru meiddir. Johnson er 22 ára gamall og hefur ekki komið við sögu hjá City síðan í október árið 2009. Síðast var hann í byrjunarliðinu haustið 2008. Hann á þó alls 37 leiki að baki með félaginu en hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 2006, þá átján ára gamall. Johnson hefur þó átt við þrálát meiðsli að stríða undanfarin ár auk þess sem margir hafa sjálfsagt einfaldlega gleymt kappanum enda hefur City verið duglegt við að kaupa nýja leikmenn til félagsins á undanförnum árum.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira