Með tunguhöft á heilanum! Sonja Magnúsdóttir skrifar 30. september 2022 13:31 Ég sat nýverið fjögurra daga ráðstefnu um tunguhöft á vegum ICAP (International Consortium Ankyloglossia Professionals), alþjóðlegra samtaka tunguhaftsfagaðila. Þetta voru fjórir þéttsetnir dagar af fyrirlestrum og annarri fræðslu. Þarna var samankomin fjölbreytt flóra fagaðila, s.s. brjóstagjafaráðgjafar, tannlæknar, háls-, nef- og eyrnalæknar, barnalæknar, tannréttingasérfræðingar, talmeinafræðingar, osteopatar og sjúkraþjálfarar svo einhverjir séu nefndir og komu þessir aðilar víðs vegar að. Þetta var þriðja ráðstefnan sem haldin hefur verið af ICAP um tunguhöft og áhrif þeirra allt frá fæðingu fram á fullorðinsár. Þar sem ég sat og hlustaði á fyrirlestra og átti samtal við þátttakendur leiddi ég að sjálfsögðu hugann að stöðunni hér heima varðandi þekkingu á tunguhöftum og íhlutun þeirra og á viðhorfum ýmissa þeirra fagaðila, sem þurfa að koma að íhlutun. Tunguhaft er ekki bara tunguhaft. Það er ekki eingöngu útlitið sem skiptir máli heldur getur stíft tunguband haft áhrif á hreyfifærni og hlutverk tungunnar. Þegar bandið er það stíft að það heftir hreyfingar tungunnar, tölum við um tunguhaft. Það er því ekki nóg að fara eftir útliti stífa tungubandsins heldur eru það einkennin, sem það veldur, sem trompa útlitið hvað varðar ákvörðun um íhlutun. Íhlutunaraðili, sá sem losar um stíft tunguband, getur ekki vitað hvort um tunguhaft sé að ræða nema að fram fari mat á einkennum og hreyfifærni tungunnar. Hjá ungabarni er það brjóstagjafaráðgjafi eða talmeinafræðingur, sem metur færnina; hjá smábarni er það talmeinafræðingur eða jafnvel iðjuþjálfi, sem metur þessa færni og sömu aðilar meta hjá fullorðnum einstaklingi. Undanfarin ár hefur orðið mikil aukning í íhlutun á tunguhöftum hjá ungabörnum, ekki bara hér heima heldur út um allan heim. Hefur þessi aukning orðið m.a. vegna aukinnar vitundarvakningar foreldra um áhrif tunguhafta, m.a. á brjóstagjöf og aðra fæðuinntöku. Hingað til hafa háls-, nef- og eyrnalæknar og barnalæknar séð um að framkvæma þessar aðgerðir en tannlæknar eru í auknum mæli að framkvæma þær. Einstaka íhlutunaraðilar hafa bætt við þekkingu sína á áhrifum tunguhafta og íhlutun þeirra með setu á námskeiðum og ráðstefnum erlendis. Þessir íhlutunaraðilar hafa séð með eigin augum ávinninginn af slíkum aðgerðum og í fjölda tilvika upplifað stórbætt lífsgæði skjólstæðinga sinna. Þá er ég ekki bara að tala um lífsgæði þess sem íhlutað var á heldur fjölskyldunnar í heild. Því miður eru fjölmargir íhlutunaraðilar þarna úti sem telja að stíft tunguband hafi ekki áhrif á brjóstagjöf og tala um tunguhaft sem tískubólu. Margir fljótafgreiða greiningu á tunguhöftum með því að skoða hversu langt tungan kemst út úr munninum en það er alls ekki mælikvarði á hreyfifærni tungunnar. Við viljum sjá hversu hátt tungan kemst upp í átt að tannberginu ásamt ítarlegri greiningu á því hversu vel tungan getur sinnt hlutverkum sínum, sem eru að borða, kyngja og myndun málhljóða. Þegar erfiðleikar eru við brjóstagjöf hjá barni og móður, sem fær tíðar sýkingar ætti að nota tunguhaft sem mismunagreiningu. Tunguhaft er alls ekki ný uppgötvun. Vitneskja okkar um fyrirbærið hefur aukist, m.a. hvaða áhrif það getur haft á einstakling á öllum aldursstigum; rannsóknum á tunguhöftum fjölgar ört og ekki má gleyma reynslusögum foreldra, sem hafa upplifað jákvæðar breytingar eftir íhlutun. Talandi um rannsóknir, þá eru til rannsóknir sem sýna fram á að með íhlutun á tunguhafti, dregur úr erfiðleikum við brjóstagjöf. Sem mótsvar vegna mikillar aukningar á tunguhaftsaðgerðum, setti landlæknis-embættið saman nefnd í lok síðasta árs, sem átti að hafa það hlutverk að útbúa verkferla til að koma í veg fyrir ónauðsynlegar aðgerðir, sérstaklega á ungabörnum. Ekki bólar enn á verkferlunum og á meðan þeir eru ekki til staðar, getur nánast hver sem er, hvort sem þekking á tunguhöftum er til staðar eða ekki, framkvæmt þessar aðgerðir. Foreldrar ættu ekki að vera ragir við að afla sér upplýsinga um þekkingu íhlutunaraðila á tunguhöftum áður en íhlutun á sér stað. Íhlutun á tunguhafti á ekki að vera fyrirbyggjandi aðgerð, t.a.m. til að koma í veg fyrir hugsanlega framburðarerfiðleika hjá barni. Ákvörðun um íhlutun á tunguhafti á að fara eftir einkennum einstaklings hverju sinni. Eflaust eru einhverjar þeirra aðgerða ónauðsynlegar þar sem mat á færni og hlutverkum tungunnar hefur ekki farið fram og engin eftirfylgni er með þeim aðgerðum sem gerðar eru. Þar sem engin eftirfylgni er, getur íhlutunaraðili ekki vitað hvort aðgerð hafi skilað tilætluðum árangri. Ég fagna því að verkferlar verði settir og að kröfur verði gerðar til íhlutunaraðila að þeir hafi aflað sér frekari vitneskju um tunguhöft. Þverfagleg teymisvinna ætti að vera forsenda aðgerða á öllum aldursstigum og í því teymi ættu að vera brjóstagjafaráðgjafi og/eða talmeinafræðingur, sem meta færni og getu barnsins í fæðuinntöku, líkamsmeðferðaraðili, íhlutunaraðili (tannlæknir, barna- eða HNE-læknir) og fjölskylduráðgjafi, sérstaklega ef brjóstagjöf gengur erfiðlega þar sem brjóstagjafavandi móður og barns, hefur ekki bara áhrif á þau tvö heldur á alla fjölskylduna. Það er ekki að ástæðulausu að ég, talmeinafræðingur með sérþekkingu á fæðuinntöku barna, er með tunguhöft á heilanum. Ég veit hversu mikilvægu hlutverki tungan gegnir í fæðuinntöku og ég veit hvaða áhrif það hefur ef hún hefur ekki fulla hreyfigetu. Stíft tunguband, sem hefur þau áhrif að brjóstagjöf gengur erfiðlega, að fæðuinntaka ungabarns á fyrstu dögum eða vikum þess gengur illa, er þess eðlis að bregðast þarf við strax. Þá þýðir ekki að bíða þar til barnið byrjar að tala til að taka ákvörðun um hvort íhlutun þurfi að eiga sér stað. Mín ósk er að þeir fagaðilar sem vinna með börnum, þeir sem vilja aðstoða við brjóstagjöf þegar hún gengur illa, aðstoði móður og barn og líti ekki framhjá þessu litla bandi undir tungunni, sem getur haft svo mikil áhrif. Þörf er á þverfaglegum teymum sem taka faglegar ákvarðanir þegar kemur að því að ákvarða um íhlutun á tunguhöftum. Þörf er á faglegum teymum til að fækka ónauðsynlegum tunguhaftsaðgerðum, því eins og áður segir hafa ekki öll stíf tungubönd áhrif. Ég lýsi hér með eftir fagaðilum, sem eru tilbúnir til að bæta við þekkingu sína og eru tilbúnir til að taka þátt í teymisvinnu með samtali og tilvísunum, til að auka lífsgæði einstaklinga með raunverulegt tunguhaft. Höfundur er M.A., CCC-SLP og talmeinafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hvers virði er innbúið? Hrefna Kristín Jónsdóttir Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei Skoðun Er gott að sjávarútvegur skjálfi á beinunum? Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Ég er foreldri, ég er kennari Hulda María Magnúsdóttir Skoðun Rafbílar eru ódýrari Sigurður Friðleifsson Skoðun Virðing fyrir kennurum eykur árangur nemenda Íris E. Gísladóttir Skoðun Af hverju endurhæfing fyrir krabbameinsgreinda? Erna Magnúsdóttir Skoðun Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun Viljum við semja frið við náttúruna? Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Skoðun Kirkjusókn ungra drengja Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Allar konur eru konur. Punktur. Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hver er ábyrgð barna? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Rafbílar eru ódýrari Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Ég er foreldri, ég er kennari Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Er gott að sjávarútvegur skjálfi á beinunum? Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Af hverju endurhæfing fyrir krabbameinsgreinda? Erna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvers virði er innbúið? Hrefna Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við semja frið við náttúruna? Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir kennurum eykur árangur nemenda Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Hinn dökki fíll í rými jafnréttis Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Í tilefni af kjaradeilu FÍL og LR vegna listamanna í Borgarleikhúsinu Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar Skoðun Keyrt í gagnstæðar áttir við Vonarstræti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Rannsóknir í Hvalfirði skapa enga hættu Salome Hallfreðsdóttir skrifar Skoðun Hagsmunasamtök ESB gegn togveiðum: Hvað er í húfi fyrir Ísland? Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Litla flugan Rebekka Hlín Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Um jarðgöng, ráðherra og blaðamenn Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Elskar þú að taka til? Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind, fordómar og siðferði – nýir tímar, ný viðmið Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Kirkjusókn ungra drengja Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Vigdís og Súðavík Ásta F. Flosadóttir skrifar Skoðun Heimskan í Hvíta húsinu – forðumst smit Halldór Reynisson skrifar Skoðun Ég á lítinn skrítinn skugga – langtímaáhrif krabbameina Hulda Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Traustur leiðtogi með fjölbreytta reynslu Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sameiginleg markmið en ólíkar þarfir Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver verður flottust við þingsetningu? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Vítisfjörður Guðni Ársæll Indriðason skrifar Skoðun Haukur Arnþórsson og misskilningur hans um hæfi Sigurjóns Þórðarsonar Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Tíminn er núna Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar Skoðun Slæmt hjónaband Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei Skoðun
Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun
Skoðun Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei skrifar
Skoðun Í tilefni af kjaradeilu FÍL og LR vegna listamanna í Borgarleikhúsinu Hrafnhildur Theodórsdóttir skrifar
Skoðun Hagsmunasamtök ESB gegn togveiðum: Hvað er í húfi fyrir Ísland? Svanur Guðmundsson skrifar
Skoðun Haukur Arnþórsson og misskilningur hans um hæfi Sigurjóns Þórðarsonar Þórólfur Júlían Dagsson skrifar
Þagnarbindindi: Er það lausn ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóð sem hafnar hvalveiðum? Anahita Sahar Babaei Skoðun
Afleysing fyrir kennara í Hafnarfirði - tvítug með hreint sakavottorð Kristín Björnsdóttir Skoðun