Það hafa allir sjötta skilningarvit Matthildur Björnsdóttir skrifar 2. desember 2024 18:00 Þau sem eru með einstaka eiginleika af einhverju tagi sem þau veita samfélaginu eru sett á jörðina í þeim tilgangi Skilninarvit og eðli sem er með eins mismunandi tjáningu og eðli og einstaklingarnir eru margir. Þegar ég var á Íslandi, virtist svo vera: Að aðeins þau sem sáu mannverur sem höfðu dáið, og þá kallaðir draugar hefðu það skilningarvit. Hafsteinn Björnsson miðill var sá eini sem ég man að var viðurkenndur og hélt samkomur þar sem hann sagði þeim þar frá þeim dánu sem höfðu samband við hann þá. Árið 1977 gerðist sá sorglegi atburður að fyrri leikfélagi úr götunni drukknaði í stöðuvatni með kærastanum. Ég vissi þá að mamma hennar myndi vilja fá fund með Hafsteini í von um tengingu. Um leið og ég endaði þá hugsun fékk ég þetta: Að hann yrði ekki lengur á meðal okkar. Og tilkynningin um lát hans kom daginn eftir. En þau dánu eru bara sálir sem hafa yfirgefið líkama sína. Eina skiptið sem ég fékk orkuhjúp dáins manns allt að því áþreifanlegan, var í kaffistofu í verslunar miðstöð. Ég hafði fengið sæti hjá konu sem sat ein við borð, af því að hin voru öll upptekin. Við fórum að spjalla, og á einhverju stigi sagði hún mér, að maðurinn hennar hafði dáið fyrir ári síðan. Sem við spjölluðum, þá fór ég að finna orkuhjúp mannslíkama rísa á milli okkar. Sjá hann með þriðja auganu, og að fá hugsanaflutnings skilaboð handa henni. Svo hvarf það eftir að hún hafði fengið skilaboðin. Gleðitár runnu niður af að vita að hann væri hjá henni. Og er eina skiptið sem ég hef upplifað slíkt sem bara gerðist af því að hann og þau þarna úti ákváðu að nota það tækifæri. Það gerðist þarna fyrir hana, af því að eitthvað þarna úti var að skipuleggja það. Það er svo þriðja augað í þeim sem sjá þá dánu hafa, sem hefur þá opnun sem þau fæddust með. Svo eru endalausar aðrar leiðir sem það hærra afl hefur handa hinum ótal einstaklingum fyrir það sem þeim er ætlað að vera mjög góð í. Þau nota það fyrir sitt starf og þjónustu sem er oft meira þannig af ráðstöfun frá hærri stað, en að það sé bara frá rökhyggju hluta heilabús þeirra. Svo að það næmi sem ég hafði þá, og bjargaði mér í þeim kringumstæðum tilveru minnar með að þegja. Sjálfvirkt í mér var frá langtíma kröfum um að tala ekki, er ógerlegt að skilgreina. Mitt dæmi að vinna með einstaklingum frá þeim eiginleika. Var engan veginn hugsað eða ákveðið af mér. Heldur læddist það að mér á ýmsa ísmeygilega vegu, en án þess að ég upplifði að vera fjarstýrð. Það var meira eins og að færa sig rólega frá einu til annars. En þegar það að lesa eða heila hafði birst var það mjög ljúf iðja. Við að koma svo í mun stærra land. Og margra milljóna samfélag hér í Ástralíu þá fór svæðið að smá aukast. Enda svo margt nýaldarefni í boði sem sýndi og sýnir leiðir um að læra meira um sjálfan sig af eðli og tagi, sem kristni býður ekki upp á. Umbreytingin varð samt ekki orðin að fullu, fyrr en eftir ferli í vinnulotu sem innihélt Líföndun og ótal sjálfs upplifunar fræðum höfunda frá öðrum löndum. En mest þó einstaklingar frá Bandaríkjunum sem höfðu nýtt sér austræn fræði og fært í vestræna hugsun, allskonar andlegt og sjálfshjálpar gagnlegt efni. Sem eru til dæmis fræðin frá heimspeki annarra landa eins og Buddhisma og Hinduisma sem veita víðari skilning á þessu með sálir. Á síðari árum, fór ég svo að átta mig á því að þetta skilningarvit er öllum veitt. En birtist á svo margan hátt. Svo að það er mögulegt að stór hluti mannkyns gæti verið blindur á hvaðan sumir eiginleikar þeirra og sérstakir hæfileikar koma. Mín eigin fyrsta beina upplifun á því, kom með einskonar símtali hugsanaflutnings inn í höfuðið á mér um að afi minn væri dáinn. Það var árið 1974, þegar ég og fyrri maðurinn minn vorum við Blöndu á hringferð okkar í kring um landið, og ætluðum að heimsækja hann á Hvammstanga, þar sem hann hafði dvalið um tíma. Við vorum rétt búin að tjalda og ætluðum að hafa það rólegt í um tvo daga, en fara svo og heilsa upp á hann. Afa sem ég vonaði að væri á lífi. En þá kom þetta sterka hugboð, sem var eins og símtal utan frá. Hann var að láta mig vita að hann hafði yfirgefið líkamann. Væri farinn. Þá var ljóst að við yrðum að pakka upp og fara á næstu símstöð, til að fá það staðfest sem gerðist. Þá sá ég fyrsta líkið og var það eins og hann svæfi. Ég átti svo eftir að fá nokkur slík hærri skilaboð seinna sem komu eins og símtöl í heilabúið. Þau sem voru mest óvænt, var til dæmis að sjá auglýsingu á girðingu á sporvagns brautinni, að það átti að halda einskonar spá-hátíð. Ég fékk það þá sterkt í höfuðið, að ég ætti að vera með í henni. Ég fór fyrst sem gestur, og sá og lærði, að það sem mér var gefið að veita, féll inn í það sem hin þar buðu upp á. Það leið svo ekki langur tími þangað til að annað skilaboð kom utan frá um að ég ætti að bjóða heilun. Sú heilun reyndist veita atriðum um sálina, líkamann, vandamál í þessu lífi og svo framvegis. Ég er í raun bara millistykki og sú sem tjáir það sem þau þarna úti veita mér í heilabúið. Þessi ferli tóku þrjá tíma í hvert skipti. Það sem ég hef svo náð að skilja: Er að allir þessir einstaklingar, mannverur á jörðu. Að þau sem hafa sína eigin tíðni og bylgjulengd og bjóða þjónustu sína á þessum hátíðum gera best þegar einstaklingarnir sem velja þau tengi við orkuna. Það skapar yfirleitt mestu ánægjuna með það sem er veitt. Svo var enn stærri útgáfa af slíkri hátíð sett upp í mjög stórri byggingu. Ég var með bás þar á hverju ári sem er alltaf í enda maí. Ég var með í þeim í mörg ár eða þangað til að líkaminn fór að bila, og það að verða flóknara að sinna því. Ég hef svo farið sem gestur á þessa stóru spá og heilsu hátíð. Þar eru einstaklingar með sína allskonar eiginleika á því sviði að lesa í spil sem oft er mest að lesa í orkuhjúp mannveru með milligöngu þeirra þarna úti. Á þessum hátíðum er mikilvægt að fara um, og setja þriðja auga radar sinn í gang um hver af þeim öllum sem sitja þar, væru þau réttu fyrir það sem maður er eftir. Ég hlustaði einu sinni á konu sem mælti með fólki á einum af básunum en það var sóun á peningum og tíma, af því að það var plat. Það segir að það að mæla með einhverjum slíkum fyrir aðra er ekki endilega alltaf í dúr við okkur, þó að það hafi verið fyrir þá manneskju. Það voru tvær spákonur á Íslandi sem voru góðar og var önnur þeirra greinilega með plan hærri afla á sínum snærum. En sagði mér það í dulmáli. Það kom allt fram. En ég gat ekki vitað fyrr en löngu seinna að þau þarna úti veittu henni það sem eitt fyrsta skrefið fyrir það plan að senda mig hingað. Hin konan sem ég sá sem ung sagði mér hver fyrsti stafurinn yrði í nafni mannsins sem ég myndi giftast sem reyndist rétt, en því hjónabandi lauk. Jóna Rúna Kvaran heilari hjá Sálarrannsóknar félaginu var líka einstök í því hvað hún nam um kringumstæður mínar eftir skilnaðinn og áður en ferlið til að snúa lífi mínu við hófst. Þessi hærri öfl hafa mjög ólýsanlega mjúka leið til að maður taki skrefin eitt af öðru að því sem þau eru að undirbúa mann fyrir, af því að það séu örlögin. Það að vera leiddur þannig án þess að hafa glóru um hver tilgangurinn sé, er ansi einstök lífsreynsla. Það var greinilega hærra plan. Í mínu tilfelli frá því að hafa kallað á þau til að losa mig við líf í snjó, og svo að fá lífsförunaut sem ég gæti átt djúpar og innihaldsríkar samræður við. Sem er enn eftir 37 ár hér en fjörtíu og einu ári eftir að við hittumst fyrst í Safari Ferð Úlfars Jakobsen sumarið 1983. Höfundur er Íslendingur sem hefur verið búsettur í Ástralíu um langan tíma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matthildur Björnsdóttir Mest lesið Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Skoðun Vaxtarmörk eða valdsmörk sveitarstjórna Orri Björnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa og leiðin til Siglufjarðar Pétur Heimisson skrifar Skoðun Sterkur skólabær – vinnum þetta saman Jóhannes Már Pétursson skrifar Skoðun Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eru sum hús full af lífi en önnur tóm? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun STRAX-D Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar Skoðun Kominn tími til í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Tunglskot og tilraunastofa Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sögnin að banna Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Hvað sagði konan? G.Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við stöndum á tímamótum Ellý Tómasdóttir skrifar Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þjóð í vaxtafjötrum hafta Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Samningsmarkmið Íslands mega ekki vera leyndarmál Júlíus Valsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð og hjúkrunarfræðingar: Hvað segja gögnin? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Sjá meira
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Öflugur framhaldsskóli á Suðurnesjum er réttlætismál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar
Skoðun Samkeppnisreglur sem myndlistarmenn hafa komið sér saman um Emma Heiðarsdóttir,Eva Ísleifs,Jóna Hlíf Halldórsdóttir,Unndór Egill Jónsson skrifar
Skoðun Námsárangur í frjálsu falli — hversu lengi ætlum við að horfa á? Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar