Innlent

Þjálfun í flug­turni hafði á­hrif á að lá við á­rekstri farþegaþotna

Kjartan Kjartansson skrifar
Hætta skapaðist á því að farþegaþotur Icelandair og Play rækjust á við Keflavíkurflugvöll í febrúar. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti.
Hætta skapaðist á því að farþegaþotur Icelandair og Play rækjust á við Keflavíkurflugvöll í febrúar. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm

Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að þjálfun í flugturni á Keflavíkurflugvelli hafi haft áhrif á árekstrarhætta skapaðist á milli farþegaþotna Icelandair og Play í febrúar. Uppákoman var skráð sem alvarlegt flugumferðaratvik.

Atvikið átti sér stað í lokaaðflugi fyrir flugbraut nítján á Keflavíkurflugvelli 20. febrúar. Áhöfn Airbus 320-vélar Play var þá við lendingaræfingar í sjónflugi á flugbrautinni um sama leyti og Boeing 737-8 vél Icelandair var í blindu aðflugi.

Þjálfun var þá í gangi í flugturninum á flugvellinum. Nemi sem sinnti bæði turn- og grundbylgju var um það bil hálfnaður í verklegri þjálfun sinni en flugumferðarstjórinn sem þjálfaði hann var í fyrsta skipti með nema í flugumferðarstjórn, að því er segir í lokaskýrslu rannsóknarnefndarinnar um atvikið.

Flugturninn gaf Play-vélinni fyrirmæli um að hún væri næst til lendingar á flugbraut nítján. Skömmu síðar upplýsti hann stjórnendur Play-vélarinnar um flugumferð við níu sjómílu lokastefnu. Á þeim tíma var Icelandair-vélin hins vegar komin nær flugbrautinni.

Á þessum tímapunkti er flugumferðarstjórinn sagður hafa sagt nemanum að ratsjármynd liti illa út en að hún breyttist með framvindu flugvélanna. 

Í viðtali hjá rannsóknarnefndinni sagði flugumferðarstjórinn að hann hefði talið að umferðarhringur Play-vélarinnar væri öðruvísi en hann var í raun þrátt fyrir að vélin hefði þá verið að æfingum í að vera í einn og hálfan tíma og að áhöfnin hefði rétt áður verið í sambandi við nemann um upplýsingar sem hún þyrfti fyrir aðflugið.

Sáu aðra farþegaþotu þegar þeir komu niður úr skýjunum

Flugmenn Icelandair-vélarinnar sögðu rannsóknarnefndinni að þegar þeir skiptu yfir á turnbylgju hefðu þeir heyrt að einhver væri að beygja inn á undan þeim en ekki hver. Þeir hefðu talið líklegast að það væri lítil kennsluvél í snertilendingum. 

Tekið er fram í skýrslu rannsóknarnefndar að kveðið sé á um í verklagshandbók flugumferðarstjóra að lýsa skuli nálægum loftförum svo hægt að bera kennsl á þau auðveldlega.

Fyrirmælin sem flugmennirnir fengu frá nema var að vél þeirra væri önnur í röðinni til lendingar á flugbrautinni. Það þótti flugmönnunum skrítið í ljósi þess að þeir voru á lokastefnu og komnir mjög nálægt flugvellinum.

Um leið og Icelandair-vélin kom niður í skýjunum tóku flugmennirnir eftir Play-vélinni sem stefndi á sama stað og sömu hæð og þeir á lokastefnunni.

„Ok. Við sjáum umferð. Hún er er að nálgast mjög núna, ICEAIR29E,“ kallaði áhöfn Icelandair-vélarinnar þá.

Minnst í þriggja kílómetra fjarlægð og fimmtán metra hæðarmun

Þegar þetta gerðist voru rúmir fjórir kílómetrar á milli vélanna. Play-vélin var þá í 1.200 fetum á hægri þverlegg fyrir flugbrautina ena Icelandair-vélin í um 1.900 fetum í lækkun á lokastefnu sinni inn að flugbrautinni.

Áhöfn Play-vélarinnar brást við því með að breyta stefnu sinni og var í kjölfarið sagt að koma inn til lendingar á eftir Icelandair-vélinni.

Þegar flugvélarnar voru sem næst hvor annarri að lengd var 1,56 sjómílur á milli þeirra, tæpir þrír kílómetrar. Hæðaraðskilnaður var þá 375 fet, um 114 metrar. Minnst munaði fimmtíu fetum, um fimmtán metrum, en þá voru þær í rétt rúmlega þriggja kílómetra fjarlægð frá hvor annarri samkvæmt skýrslunni.

Rannsóknarnefndin ályktaði að þjálfunin í flugturninum hefði haft áhrif á atvikið en gerði engar tillögur í öryggisátt vegna þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×