Táknmálstúlkun Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar 25. mars 2025 13:32 kona þarf að hringja í Kvennaathvarfið um hádegið og fá ráð önnur þarf að hringja í bankann, af því hún fékk sms þar sem hún var beðin um að hringja fullorðin maður þarf að hringja á heilsugæsluna og panta tíma, aðeins er tekið við tímabókunum í síma og það fyrir hádegi einstæð móðir með lítið barn heima þarf nauðsynlega að hringja á leikskólann og láta vita að eldra barnið ætti helst að vera inni í dag fyrirtækjaeigandi þarf að hringja í skattinn og fá leiðbeiningar sem eru skattalegar eðlis og varðar hagsmuni sem hann einn ber ábyrgð á fimmtug kona vill hringja í foreldra sína út á landi og spyrjast frétta önnur fimmtug kona sem er skráður aðstandandi hringir og athugar með prláss fyrir foreldri sitt á hjúkrunarheimili sem mikið liggur á ungur maður sem er kosin í stjórn félags með málefni sem eru honum hugleikin og þarf að eiga símtal vegna verkefna sem hann ber ábyrgð á með stjórnsetu sinni Allt fólkið sem kemur fyrir í upptalningunni á það sameiginlegt að vera heyrnarlaust, táknmálsfólk og notar táknmál sem fyrsta mál að tjá sig. Listinn er ekki tæmandi en gefur mynd af því að táknmáls samtöl í myndsímaþjónustu getur líka verið allskonar. Þessi upptalning sýnir mögulega hvers konar símtöl fara í gegnum myndsímatúlkun Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH) á táknmáli. Nákvæmlega sömu símtöl eru heyrandi full talandi fólki fullkomlega eðlileg og sjálfsögð dagsdaglega af sínum daglegu verkefnum sem upp koma upp og þurfa á úrlausnum að halda símleiðis. Nú á föstudag kom svo tilkynning til okkar táknmálsfólks og notenda myndsímaþjónustu SHH að til 1. apríl sé lokað á öll myndsímasímtöl vegna fjárskorts. Sem sagt við eigum bara ekkert að vera að hringja þessa vikuna og við eigum ekkert að vera að sinna einhverjum félagslegum verkefnum eins og til dæmis fara á húsfund og samþykkja þar með kostnaðaráætlun vegna íbúðar okkar, sleppa að halda 60 ára afmælisveislu okkar yfir fullum sal af heyrandi gestum sem ekki kunna táknmál eða fara á fund vegna tómstundastarfs barna okkar sem við gerum eins og aðrir ábyrgir og áhugasamir foreldrar um tómstundir barna okkar, því að öll endurgjaldslaus táknmálstúlkunar þjónustu SHH lokaðist líka. Má þetta bara si svona? einhver gæti sagt bara já já, ÞETTA MÁ ALVEG!, af því það er engin fjármögnun eða þá að það er illa/van fjármagnað miðað við fjölda símtala. Það er samt ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist en það eru reyndar nokkur ár síðan þetta gerðist síðast og maður hélt að það væri nú komin fullur skilningur í stjórnsýslunni því það var stjórnsýslan sem ákvað að félagslegi sjóðurinn sem við táknmálsnotendur gátum fengið táknmálstúlk í félagsleg verkefni eins og t.d. húsfundi, afmælisveislur, námskeið, fundi vegna tómstundastarfs barna okkar, fjölskyldufundi svo eitthvað sé nefnt, yrði innlimaður í rekstur SHH og þar með vorum við táknmálsfólkið sannfærð um nú væri þessum málum komið fyrir í ákveðin og miklu betri farvegur með öruggari fjármögnun fyrir táknmálstúlkun til okkar á félagslegum forsendum, en ó nei. það er bara enn sama óöryggið og var. Þetta er mikil afturför sem maður gat ekki ímyndað sér að myndi gerast á þessu ári 2025, þar sem öll stjórnsýsla er orðin mun skilvirkari og ætti því vel að sjá um að allt skuli vera í eðlilegum farveg eins og í upphafi var gert ráð fyrir og öllu komið í ákveðið ferli, til öryggis fyrir okkur táknmálsfólkð. Við erum ekki að fá neina lúxusþjónsutu eða forréttindaþjónstu, heldur er þetta sjálfsögð þjónusta sem á að vera fjármögnuð af hinu opinbera og það hefur verið viðurkennt af sjálfu stjórnvaldinu - alveg síðan 1990 þegar Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra var sett á laggirnar og lög um stofnunina samþykkt á Alþingi og stofnunin sett undir ákveðið ráðuneyti á þessum tíma. Það er því mikil undrun að það hafi verið lokað á þjónustu til okkar táknmálsfólks. Það flæða yfir hugann spurningar eins og af hverju tók engin eftir hvert stefndi og gerðar voru áætlanir að koma í veg fyrir útilokun á þjónustu til okkar táknmálsfólks síðustu daga mánaðarins og okkar félagsleg verkefni? Hafði stjórnsýslan ekki yfirsýn? Vissu þau ekki fjölda myndsímtala og þannig að eitthvað yrði að gera til að koma í veg fyrir að myndsímtöl á táknmáli og félagsleg verkefni okkar yrðu bara PASS! Hver eiginlega heldur utan um hagsmuni okkar í stjórnsýslunni? Er það þannig að stjórnsýslunni er bara alveg sama um okkur sem ekki heyrum og eigum táknmál sem fyrsta mál okkar? Líðum við fyrir það? Jafnvel þó það sé getið um í lögum nr. 61/2011 að íslenskt táknmál sé jafnrétthátt íslenskri tungu? Hvaða skilaboð önnur er verið að segja okkur með þessari skyndilegu lokin? Eigum við bara að setjast í sófann og gera helst ekki neitt, afneita öllum verkefnum okkar sem gera okkur sjálfstæð og láta aðra sjá um þau og vera upp á að aðra komin? Hvenær fáum við að búa við öryggi og virðingu fyrir sjálfstæðum rétt okkar á forsendum táknmálsins til að leysa okkar mál sjálf með táknmálstúlkun? Á hverra ábyrgð er að hafa yfirsýn með því að þjónustan sé veitt á réttan hátt miðað við fjármögnun? Hvenær hættum við táknmálsnotendur að lifa svona óöruggu daglegu félagslegu lífi? Hvenær verða mál okkar leyst í eitt skipti fyrir öll og við finnum fyrir raunverulegu öryggi? Það er komin tími á að leita nýrra lausna með okkar mál og á hverra forsvari verður það? Munið bara ekkert um okkur án okkar. Það vekur reyndar líka nokkra athygli að þetta skuli gerast í sömu vikunni og lögfesting Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra er rædd á Alþingi. Höfundur hefur verið heyrnarlaus frá 8 ára aldri, kynntist táknmáli fyrst 10 ára og lærði það af öðrum heyrnarlausum jafnöldrum sínum. Hefur barist fyrir táknmáli á Íslandi, kennt táknmál og búið til táknmálsnámsefni, sagt fréttir á táknmáli RÚV. Setið á Alþingi. Hefur mikla þekkingu á texta/táknmálsaðgengi og hjálpartækjum fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta. Höfundur er með alþjóðlega diplómu í frumkvöðlafræðum og leiðsögumaður í ferðaþjónustu með táknmál sem aðalmál. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Táknmál Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Halldór 15.11.2025 Halldór Snýst um deilur Dags og Kristrúnar Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Milljarðakostnaður sérfræðinga Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Tími kominn til að hugsa um landið allt Ingibjörg Isaksen Skoðun Hvað þýðir „að vera nóg“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hver er uppruni íslam? Finnur Thorlacius Eiríksson Skoðun Nýjar lóðir í betri og bjartari borg Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun „Mamma, eru loftgæðin á grænu?“ Sara björg Sigurðardóttir Skoðun Ef eitthvað væri að marka Bjarna Gunnar Smári Egilsson Skoðun Ég á þetta ég má þetta Arnar Atlason Skoðun Skoðun Skoðun Hver er uppruni íslam? Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar Skoðun Hvað þýðir „að vera nóg“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Nýjar lóðir í betri og bjartari borg Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Tími kominn til að hugsa um landið allt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Milljarðakostnaður sérfræðinga Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Snýst um deilur Dags og Kristrúnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „Mamma, eru loftgæðin á grænu?“ Sara björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Rangfærslur utanríkisráðherra Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Samfélag þar sem börn mæta afgangi Grímur Atlason skrifar Skoðun „Samræði“ við barn er ekki til - það er alltaf ofbeldi Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Staða íslenskrar fornleifafræði Gylfi Helgason skrifar Skoðun Saman náum við lengra. Af hverju þverfagleg endurhæfing skiptir máli Rúnar Helgi Andrason skrifar Skoðun Hefjumst handa við endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tími jarðefnaeldsneytis að líða undir lok Nótt Thorberg skrifar Skoðun Ósanngjarnar hækkanir á vörugjöldum án fyrirvara – ábyrgðarleysi gagnvart atvinnulífi Friðrik Ingi Friðriksson skrifar Skoðun Ríkið græðir á eigin framkvæmdum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Íslenska módelið í forvörnum – leiðarljós sem við erum að slökkva á Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenska sem annað tungumál Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Sykursýki snýst ekki bara um tölur Erla Kristófersdóttir,Kristín Linnet Einarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskan er í góðum höndum Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Ójafn leikur á Atlantshafi Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Höfnum óráðsíunni og blásum til sóknar Guðbergur Reynisson skrifar Skoðun Stór baráttumál Flokks fólksins orðin að lögum Inga Sæland skrifar Skoðun Víð Sýn Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Hvenær er nóg orðið nóg? Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar Skoðun Hringekjuspuni bankastjórans: Kjósum frekar breytilega og háa vexti Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Þegar útborgunin hverfur: Svona geta fjölskyldur tapað öllu Már Wolfgang Mixa skrifar Skoðun Skattar lækka um 3,7 milljarða en fötluð börn bíða áfram eftir þjónustu Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um Sundabraut Kristín Helga Birgisdóttir skrifar Skoðun Leikskólar sem virka: Garðabær í fremstu röð Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Saman náum við lengra. Af hverju þverfagleg endurhæfing skiptir máli Rúnar Helgi Andrason skrifar
Skoðun Hefjumst handa við endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna Kolbrún Halldórsdóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Ósanngjarnar hækkanir á vörugjöldum án fyrirvara – ábyrgðarleysi gagnvart atvinnulífi Friðrik Ingi Friðriksson skrifar
Skoðun Íslenska módelið í forvörnum – leiðarljós sem við erum að slökkva á Árni Guðmundsson skrifar
Skoðun Skattar lækka um 3,7 milljarða en fötluð börn bíða áfram eftir þjónustu Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar