Enski boltinn

Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þungt hugsi.
Þungt hugsi. vísir/Getty

Rúben Amorim, þjálfari Manchester United, segir leikmenn sína eiga við hugræn vandamál að stríða. 

Þjálfarinn segir að honum sé sama um úrslitaleik Evrópudeildarinnar, að komast í Meistaradeild Evrópu skipti engu máli takist félaginu ekki að lagfæra kúltúrinn hjá félaginu.

Amorim var ráðinn þjálfari Man United í nóvember eftir að Erik ten Hag var látinn fara eftir skelfilega byrjun. Portúgalinn var ekki æstur í að taka við Man Utd á þessum tímapunkti og vildi helst bíða fram á sumar. Það var hins vegar ekki í boði og færði hann sig frá Lissabon til Manchester. Hann virðist sjá eftir þeirri ákvörðun í dag.

Í viðtali eftir enn einn tapleikinn – nú gegn West Ham United á heimavelli – um liðna helgi ræddi hann við fjölmiðla. Hann sagðist ekki vilja tala um leikmenn heldur sjálfan sig og þann kúltúr sem er við lýði hjá félaginu.

„Kúltúrinn í liðinu, ég er þeirrar skoðunar að við verðum að breyta honum. Við verðum að vera hugrakkir og virkilega sterkir í sumar. Af því við munum ekki eiga annað svona tímabil.“

„Ef við byrjum svona og ef tilfinningin er sú sama ættum við að gefa öðrum manneskjum plássið,“ sagði þjálfarinn og átti þar við sjálfan sig og þjálfarateymi sitt.

Man United og Tottenham Hotspur sitja í 16. og 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Þau mætast hins vegar í úrslitaleik Evrópudeildarinnar þann 21. maí næstkomandi. Liðið sem stendur uppi sem sigurvegari mun taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Amorim er ekki svo viss að það sé endilega jákvætt.

„Ég er ekki svo stressaður fyrir úrslitaleiknum. Leikmennirnir verða einbeittir en ég veit ekki hvað er best fyrir okkur, hvort það sé að spila í Meistaradeild Evrópu eður ei.“

Man United mætir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni þann 16. maí og svo Aston Villa í lokaleik tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×