Efla viðveru danska hersins á Grænlandi Kristján Már Unnarsson skrifar 8. júní 2025 07:07 Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, og Troels Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur. Naalakkersuisut Grænlenska landsstjórnin og danska ríkisstjórnin hafa kynnt ákvörðun um að viðvera danska hersins á Grænlandi verði efld á næstu mánuðum. Tilgangurinn er bæði að styrkja varnarmátt danska hersins á norðurslóðum og að treysta öryggis- og björgunarviðbúnað gagnvart íbúum Grænlands.
Í fréttatilkynningu landsstjórnar Grænlands kemur fram að meðal annars verði tvær stórar herþyrlur af gerðinni EH-101 staðsettar í Nuuk, freigáta verði send til að styrkja varnarviðbúnað á hafi og F-16 herþotur verði staðsettar í Kangerlussuaq til eftirlits á vesturströnd Grænlands. Með fréttatilkynningu um aukna viðveru á Grænlandi birti danski herinn þessa mynd af freigátunni Niels Juel, sem kom við í Þórshöfn í Færeyjum á fimmtudag á leið sinni til Grænlands.Simon Elbeck/Forsvaret Heræfingar verði auknar með vetrarþjálfun og æfingum sérsveita í tengslum við mikilvæga innviði. Þá mun grænlenskum ungmennum bjóðast grunnþjálfun í öryggis- og björgunarmálum. Fram kemur að landsstjórn Grænlands hafi við undirbúning málsins átt í nánu samráði við varnarmálaráðherrann Troels Lund Poulsen og yfirmann danska hersins, Michael Wiggers Hyldgaard hershöfðingja. Dönsk herþyrla af gerðinni Agusta Westland EH-101.Flyvevåbnet „Staða öryggis- og varnarmála krefst þess að danski herinn æfi getu sína til að starfa á og í kringum Grænland. Það hefur verið forgangsverki landsstjórnar Grænlands að tryggja þátttöku heimamanna og að við sem íbúar styrkjum framlag okkar til öryggis lands okkar. Ég hlakka til að sjá nemendur í grunnnámi á norðurslóðum leggja sitt af mörkum til verkefnisins,” er haft eftir Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra landsstjórnar Grænlands í tilkynningunni. Dönsk F-16 herþota á Keflavíkurflugvelli. Þær hafa sinnt loftrýmiseftirliti við Ísland en verða núna staðsettar á flugvellinum í Kangerlussuaq.Flyvevåbnet „Frá því að ég varð varnarmálaráðherra hefur það verið forgangsverkefni mitt að efla öryggi á norðurslóðum og ég kann mjög að meta hið nána samstarf sem ég á við grænlensku landsstjórnina. Aukin viðvera danska hersins verður að vera gerð með hliðsjón af aðstæðum á hverjum stað og sérstökum áskorunum í öryggisstefnu á Grænlandi,“ er haft eftir varnarmálaráðherra Danmerkur, Troels Lund Poulsen. Ein 2.800 metra löng flugbraut er í Kangerlussuaq.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson „Stjórnvöld Grænlands og Danmerkur hafa ákveðið að efla hernaðarmátt á norðurslóðum. Kjarnaverkefni danska hersins er að framfylgja fullveldi og vernda allt konungsríkið. Við erum til staðar á landi, á sjó, á ísnum og í lofti á og við Grænland. Og við gerum það í nánu samstarfi við grænlensk stjórnvöld,“ er haft eftir hershöfðingjanum Michael W. Hyldgaard í fréttatilkynningu danska hersins.
Grænland Öryggis- og varnarmál Danmörk NATO Norðurslóðir Tengdar fréttir Danakonungur til Grænlands í annað sinn á skömmum tíma Friðrik Danakonungur er kominn í þriggja daga heimsókn til Grænlands. Konungi var tekið fagnandi af íbúum Nuuk sem fjölmenntu á skipulagða viðburði til að heilsa upp á þjóðhöfðingja sinn. 30. apríl 2025 12:10 Mette Frederiksen heldur til Grænlands Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, heldur til Grænlands í vikunni sem kemur þar sem hún fer á fund Jens-Frederiks Nielsen, nýs landstjórnarformanns. 29. mars 2025 17:35 „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í símaviðtali við blaðamann NBC í gær að hann hafi átt alvarleg samtöl um að innlima Grænland í Bandaríkin. Hann sagði góðar líkur á að það næðist án beitingar hervalds en sagðist ekki útiloka neitt. 30. mars 2025 09:59 Vonast til að öryggis- og varnarsamstarf borgi rekstur Kangerlussuaq-flugvallar Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku. 2. október 2022 11:08 Mest lesið Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Erlent 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Þrír reyndu að komast undan lögreglu Innlent Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Erlent Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Erlent Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks Innlent Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Innlent Fleiri fréttir Trump sendir þjóðvarðlið til Los Angeles Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Sjá meira
Danakonungur til Grænlands í annað sinn á skömmum tíma Friðrik Danakonungur er kominn í þriggja daga heimsókn til Grænlands. Konungi var tekið fagnandi af íbúum Nuuk sem fjölmenntu á skipulagða viðburði til að heilsa upp á þjóðhöfðingja sinn. 30. apríl 2025 12:10
Mette Frederiksen heldur til Grænlands Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, heldur til Grænlands í vikunni sem kemur þar sem hún fer á fund Jens-Frederiks Nielsen, nýs landstjórnarformanns. 29. mars 2025 17:35
„Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í símaviðtali við blaðamann NBC í gær að hann hafi átt alvarleg samtöl um að innlima Grænland í Bandaríkin. Hann sagði góðar líkur á að það næðist án beitingar hervalds en sagðist ekki útiloka neitt. 30. mars 2025 09:59
Vonast til að öryggis- og varnarsamstarf borgi rekstur Kangerlussuaq-flugvallar Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku. 2. október 2022 11:08