Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Tómas Arnar Þorláksson skrifar 1. febrúar 2026 13:07 Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona. aðsend „Það þarf að létta á kerfinu. Við þurfum að átta okkur á því fyrir hvern við erum að vinna, hvert er hlutverkið? Er þetta nauðsynlegt verkefni? Og svo framvegis. Það þarf klárlega að fara í einhverja endurskoðun á hvernig kerfið er. Þarna er ég ekki að tala um þjónustuna inni í skólunum og frístundarheimilunum. Ég er að tala um þessa miðlægu stjórnsýslu. Við verðum að skýra hana betur.“
Þetta segir Björg Magnúsdóttir, nýr oddviti Viðreisnar í Reykjavík, í samtali við fréttastofu degi eftir að hún bar sigur úr býtum í leiðtogaprófkjöri Viðreisnar. Hún vann gegn þremur mótframbjóðendum og hlaut 48 prósent atkvæða eða alls 1.011 atkvæði og tekur því við af Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur sem leiðtogi flokksins í borginni. Hún segir tilfinninguna hálf óraunverulega degi eftir sigur. „Mér leið alveg svolítið þannig í gærkvöldi, eins og ég væri komin út úr líkama mínum eins og einhver lýsti því. Þetta er hálf óraunverulegt. Maður setur sér hátt markmið og vinnur ötullega að því og síðan bara tekst það. Það er svolítið mögnuð tilfinning. Björg og stuðningsmenn hennar voru í gær sakaðir um að hafa brotið kosningareglur Viðreisnar með því að hafa samband við flokksmenn sem ekki mætti hafa samband við samkvæmt merkingum í gagnagrunni. Hún harmar hvernig fór. „Það var einhver handagangur í öskjunni í gær og stuðningsmenn mínir fóru þarna aðeins fram úr sér. Mér skilst að þetta hafi ekki verið stórvægilegt. Sigurinn er afgerandi svo það er ánægjulegt inn í þetta. Ég tek því bara sem höndum ber ef að það þarf að ræða þetta mál betur og meira við forystuna. Það voru ekki allir sáttir með þessi skilaboð svo ég veit ekki hvort þetta hafi unnið eitthvað með mér.“ Hún telur ekki að þetta muni draga einhvern dilk á eftir sér. „Það er leiðinlegt og bagalegt að þetta hafi komið fyrir og ég hef beðist afsökunar á því.“ Björg vann áður sem aðstoðarkona Einars Þorsteinssonar þegar hann var borgarstjóri Reykjavíkur en hann er núverandi oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík. Spurð hvernig það leggist í hana að þurfa líklega að mæta fyrrverandi yfirmanni sínum í kosningabaráttu segir hún: „Það leggst bara ótrúlega vel í mig. Ég get ekki beðið eftir því,“ segir hún og tekur fram að hún sé reiðubúin að svara honum fullum hálsi líkt og öðrum oddvitum. Hún leggur mesta áherslu á að kalla eftir breytingum í borginni fyrir komandi kosningar. „Ég hef talað skýrt fyrir því að nú sé þörf á breytingum og miklum breytingum í Reykjavík. Ég skynja það mjög sterkt og ég og mitt teymi höfum verið að tala við þúsund manns. Það er alveg augljóst að það þarf eitthvað að gerast hjá borginni. Það þarf að endurræsa vélarnar og setja þjónustu við borgarbúa í forgang. Ég held að það sé stóra málið og nú er það verkefni Viðreisnar að stilla upp öflugu liði.“ Hún útilokar ekki samstarf með neinum flokki. Þau eigi eftir að sjá á öll spilin og flokkar eiga eftir að raða á lista og enn á eftir að tilkynna oddvita víða.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðreisn Reykjavík Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira