Viðskipti innlent

Hættir eftir tuttugu ár sem for­stjóri Öl­gerðarinnar

Agnar Már Másson skrifar
Andri Þór Guðmundsson er forstjóri Ölgerðarinnar.
Andri Þór Guðmundsson er forstjóri Ölgerðarinnar. Vísir/Vilhelm

Andri Þór Guðmundsson hefur ákveðið að láta af störfum eftir að hafa starfað sem forstjóri Ölgerðarinnar, sem mun nú heitir Bera, í rúmlega tvo áratugi. Hann hyggst þó ekki fara langt enda býður hann sig fram til stjórnarformennsku í móðurfélaginu Beru.

Í stað Andra hefur Jón Þorsteinn Oddleifsson verið ráðinn forstjóri Beru og Óli Rúnar Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar, sem verður nú dótturfélag Beru.

Jafnframt mun Andri Þór sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins, samkvæmt tilkynningu sem félagið sendi út. Breytingarnar taka gildi á morgun, 1. mars.

Ölgerð Egils Skallagrímssonar tilkynnti nýlega að hún myndi breyta nafni sínu í Bera, sem var nafn móður stórhöfðingjans sem félagið kennir sig við. Nýtt dótturfélag yrði stofnað utan um starfsemi Ölgerðarinnar. 

Nafnbreytingin var samþykkt á hluthafafundi á fimmtudag. Eftir breytingarnar verða rekstrarfélögin, Kjarnavörur, Gæðabakstur, Collab, Iceland Spring, Danól, G7-11 fasteignafélag og Ölgerðin systurfélög og í eigu móðurfélagsins sem jafnframt veitir félögunum stoðþjónustu.

Haft er eftir Andra, fráfarandi forstjóra, að hann hafi séð tækifæri til breytinga og öflugrar sóknar samstæðunnar.

Jón Þorsteinn Oddleifsson er nýr forstjóri Beru.

„Ég bar hugmynd mína um að láta af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar og bjóða mig fram til stjórnar á næsta aðalfundi, undir stjórnarformanninn Boga Þór Siguroddsson. Úr þeim samtölum kom sú hugmynd að ég myndi jafnframt sækjast eftir því að taka við af honum sem stjórnarformaður og sinna stórum og sértækum verkefnum fyrir félagið sem snúa meðal annars að framtíðaruppbyggingu erlenda hluta starfseminnar og viðskiptaþróun með áherslu á ytri vöxt félagsins,“ er haft eftir Andra.

Þá er haft eftir Boga Þór, fyrrgreindum stjórnarformanni sem er jafnframt stærsti einstaki hluthafi félagsins, að þetta sé skynsamlegt skref af hálfu Andra.

„Með þeim áherslubreytingum sem verða með tilkomu Ölgerðarinnar sem sérstaks dótturfélags Beru, fannst mér rétt að Andri Þór kæmi ekki aðeins í stjórn móðurfélagsins, heldur tæki við stjórnarformennsku félagsins og leiddi þá sókn sem fram undan er. Fyrirtækið er afar öflugt og verður enn öflugra með þeim áherslubreytingum, sóknarsinnaða hugarfari og hugmyndum sem liggja á borðinu,“ segir Bogi Þór Siguroddsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×