Khamenei sagður látinn Agnar Már Másson skrifar 28. febrúar 2026 19:43 Khamenei er talinn vera látinn. Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Aðsetur hans í Teheran var lagt í rúst í árásunum. Bæði Channel 12 í Ísrael og bandaríski miðillinn Reuters hafa þetta eftir ónafngreindum háttsettum ráðamönnum í Ísrael. Channel 12 skrifar enn fremur að Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafi fengið að sjá ljósmynd af líki æðstaklerksins eftir að það hafi fundist í rústunum þar sem aðsetur hans var áður. Ekkert hefur heyrst frá Khamenei frá því að Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu umfangsmiklar loftárásir á svæði víðsvegar í Íran í morgun, þar á meðal á aðsetur æðstaklerksins. Hið minnsta tvö hundruð létust í árásunum í Íran og á áttunda hundruð særðust til viðbótar, að sögn Rauða hálfmánans í Íran. Örlög æðsta klerksins hafa verið óljós frá því að árásirnar hófust um klukkan sex í morgun að íslenskum tíma. Fyrr í kvöld sagðist utanríkisráðherra Írans ekki vita betur en að Khamenei væri á lífi, sem og forseti landsins, Masoud Pezeshkian. Nokkru síðar sagði Netanjahú að líklegt væri að „harðstjórinn“ Khamenei væri dáinn. Fréttin verður uppfærð. -
Bæði Channel 12 í Ísrael og bandaríski miðillinn Reuters hafa þetta eftir ónafngreindum háttsettum ráðamönnum í Ísrael. Channel 12 skrifar enn fremur að Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafi fengið að sjá ljósmynd af líki æðstaklerksins eftir að það hafi fundist í rústunum þar sem aðsetur hans var áður. Ekkert hefur heyrst frá Khamenei frá því að Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu umfangsmiklar loftárásir á svæði víðsvegar í Íran í morgun, þar á meðal á aðsetur æðstaklerksins. Hið minnsta tvö hundruð létust í árásunum í Íran og á áttunda hundruð særðust til viðbótar, að sögn Rauða hálfmánans í Íran. Örlög æðsta klerksins hafa verið óljós frá því að árásirnar hófust um klukkan sex í morgun að íslenskum tíma. Fyrr í kvöld sagðist utanríkisráðherra Írans ekki vita betur en að Khamenei væri á lífi, sem og forseti landsins, Masoud Pezeshkian. Nokkru síðar sagði Netanjahú að líklegt væri að „harðstjórinn“ Khamenei væri dáinn. Fréttin verður uppfærð. - Árásirnar hófust rétt rúmlega sex, að íslenskum tíma, og eru þær sagðar eiga að standa yfir í að minnsta kosti einhverja daga. - Hið minnta 200 eru látnir í Íran að sögn íranska Rauða hálfmánans og ríflega 700 taldir særðir. - Bæði Donald Trump og Benjamín Netanjahú segja markmiðið að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi upp kjarnorkuvopnum og sömuleiðis vilji þeir koma stjórninni frá völdum. - Árásir á Íran hafa legið í loftinu um nokkuð skeið, þar sem Bandaríkjamenn hafa sent umtalsverðan herafla á svæðið. Á sama tíma hafa átt sér stað viðræður um kjarnorkuáætlun Írana, sem Bandaríkjamenn hafa viljað stöðva. - Íranar hafa skotið eldflaugum að Ísrael og að öðrum nágrannalöndum eftir árásir Ísraela og Bandaríkjamanna. - Miklar vangaveltur hafa verið uppi um ástand Ali Khamenei, æðstiklerks Írans. Aðsetur hans í Teheran var lagt í rúst. En hann var þó sagður hafa verið sendur í öruggt skjól. Aftur á móti telja Ísraelsmenn líklegt að hann sé dáinn.
- Árásirnar hófust rétt rúmlega sex, að íslenskum tíma, og eru þær sagðar eiga að standa yfir í að minnsta kosti einhverja daga. - Hið minnta 200 eru látnir í Íran að sögn íranska Rauða hálfmánans og ríflega 700 taldir særðir. - Bæði Donald Trump og Benjamín Netanjahú segja markmiðið að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi upp kjarnorkuvopnum og sömuleiðis vilji þeir koma stjórninni frá völdum. - Árásir á Íran hafa legið í loftinu um nokkuð skeið, þar sem Bandaríkjamenn hafa sent umtalsverðan herafla á svæðið. Á sama tíma hafa átt sér stað viðræður um kjarnorkuáætlun Írana, sem Bandaríkjamenn hafa viljað stöðva. - Íranar hafa skotið eldflaugum að Ísrael og að öðrum nágrannalöndum eftir árásir Ísraela og Bandaríkjamanna. - Miklar vangaveltur hafa verið uppi um ástand Ali Khamenei, æðstiklerks Írans. Aðsetur hans í Teheran var lagt í rúst. En hann var þó sagður hafa verið sendur í öruggt skjól. Aftur á móti telja Ísraelsmenn líklegt að hann sé dáinn.
Íran Ísrael Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Khamenei sagður látinn Erlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Innlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Innlent Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Innlent Fleiri fréttir Khamenei sagður látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Sjá meira