„Ég hef ekkert að sanna“ Sindri Sverrisson skrifar 6. mars 2026 22:30 Andrew Robertson skoraði og lagði upp gegn Úlfunum í kvöld. Getty/Alex Livesey Andrew Robertson var hetja Liverpool í kvöld í bikarsigrinum gegn Wolves. Samningur hans við félagið rennur út í sumar en Skotinn segist ekkert þurfa að sanna fyrir stuðningsmönnum Liverpool.
Liverpool tapaði 2-1 fyrir Wolves í deildarleik á þriðjudagskvöld en svaraði fyrir sig í kvöld og kom sér í 8-liða úrslit bikarsins. „Þetta var aðeins líkara okkur. Við vitum að við brugðumst sjálfum okkur á þriðjudaginn. Það var ekki frammistaðan sem við búumst við af okkur sjálfum. Það var okkar að laga það. Bikarinn er allt eða ekkert,“ sagði Robertson við BBC eftir sigurinn í kvöld. Hann kom Liverpool yfir með frábæru skoti snemma í seinni hálfleik og átti svo líka stoðsendingu á Mohamed Salah í kjölfarði. „Ég hefði varla getað hitt hann betur! Það opnaðist smuga fyrir mig og sem betur fer hitti ég hann vel. Við erum himinlifandi með að vera komnir áfram,“ sagði Robertson. Hann hefur þurft að sætta sig við minna hlutverk í vetur eftir komu Milos Kerkez og var spurður út í það hvort hann þyrfti að sanna sig: „Ég er ekki viss um að ég þurfi að sanna mig í Liverpool-treyjunni. Aðdáendurnir vita að ég gef allt mitt í Liverpool-treyjunni. Þegar maður kemur inn á völlinn vill maður bara njóta þess. Þetta er bara eins og það er. Milos er frábær vinstri bakvörður,“ sagði Robertson og hélt áfram: „Hann átti ótrúlegt tímabil á síðustu leiktíð með Bournemouth. Það tók tíma að aðlagast stóru félagi. Félagið verður að halda áfram, strákarnir sem hafa verið hér svo lengi eru ekki að yngjast. Maður verður að sætta sig við það. Ég hef haft samkeppni allan minn feril.“ Liverpool er í harðri baráttu um eitt af fimm efstu sætunum í ensku úrvalsdeildinni og einnig með í bikarnum og Meistaradeild Evrópu. „Við erum að reyna að berjast á öllum vígstöðvum. Við erum ennþá í tveimur bikarkeppnum. Ef við spilum eins og við gerðum í kvöld, þá vill enginn spila á móti okkur. Við verðum að byrja að sýna þann stöðugleika. Þetta er eitt skref áfram og tvö afturábak.“
Enski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira