„Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. ágúst 2026 10:35 Enzo Maresca er með augun opin fyrir miðjumönnum á markaðnum. James Gill - Danehouse/Getty Images Enzo Maresca þjálfari Manchester City er í leit að „nýjum Rodri“ í stað Spánverjans sem fór til Barcelona í síðustu viku. Maresca segir City hafa ítrekað sýnt fram á hæfni í að endurnýja hópinn.
Rodri batt enda á sjö ára farsælan feril hjá félaginu í sumar. Með hann á miðjunni vann Manchester City fjóra Englandsmeistaratitla, FA bikarinn tvisvar og Meistaradeild Evrópu. City sótti Elliot Anderson frá Nottingham Forest fyrir 116 milljónir punda, sem var met fyrir Englending þangað til Chelsea keypti Morgan Rogers af Aston Villa fyrir 117 milljónir punda. Maresca sér Anderson greinilega ekki sem beinan staðgengil fyrir Rodri. „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri, þetta er eins og það er,“ sagði Maresca þegar hann var spurður um Rodri fyrir fyrsta leik Manchester City í ensku úrvalsdeildinni gegn Bournemouth síðar í dag. „Áður en Rodri kom hingað var hann ekki búinn að vinna Gullboltann, hann hafði ekki unnið Meistaradeildina eða orðið heimsmeistari. Svo kom hann til félagsins og afrekaði þessa stórkostlegu hluti. Nú er markmiðið að reyna að finna nýjan Rodri.“ Maresca viðurkenndi að það yrði erfitt verkefni en sagði City hafa gert þetta allt saman áður. „Þegar David Silva fór höfðu allir áhyggjur, Kevin [De Bruyne] mætti á svæðið. Þegar Sergio Aguero fór höfðu allir áhyggjur, Erling [Haaland] mætti á svæðið. Þegar Fernandinho fór mætti Rodri. Svona er þetta. Þegar þeir fara þarf að gera vel í að endurnýja.“ Maresca sagði að hann ætti von á frekari hreyfingum hjá félaginu á leikmannamarkaðnum áður en glugginn lokar en var rólegur yfir sögusögnum um að Spánverjinn Nico Gonzalez, sem margir litu á sem eftirmann Rodri þegar hann kom til félagsins, og Omar Marmoush, væru á förum. Hollenski miðjumaðurinn Tijjani Reijnders líka nýfarinn frá félaginu. „Við þurfum að aðlagast og við viljum ekki halda leikmönnum hér sem vilja ekki vera áfram. Þetta er eðlilegt. Ég hef ekki áhyggjur af því. Þegar félagaskiptaglugginn lokar og við erum með allan hópinn saman verður þetta örugglega öðruvísi,“ sagði Maresca. Manchester City mætir Bournemouth í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 13:00 í beinni útsendingu á Sýn Sport.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira