„Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. ágúst 2026 18:14 Dominik Szoboszlai skoraði af feykilegu öryggi úr vítaspyrnu í uppbótartíma í viðureign Newcastle United og Liverpool í dag. getty/Robbie Jay Barratt Dominik Szoboszlai sá til þess að Liverpool fengi stig úr leiknum gegn Newcastle United á St James' Park í dag. Hann jafnaði úr vítaspyrnu þegar níu mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Ungverjinn sagði að Liverpool hefði sýnt baráttuanda í leiknum í dag. „
Ef ég á að vera hreinskilinn heyrði ég ekki flaut dómarans. Ég þurfti að horfa á hann til að vita hvort ég mætti taka vítið,“ sagði Szoboszlai er hann var spurður út í aðdraganda jöfnunarmarksins. „Ég æfði þetta mikið á undirbúningstímabilinu. Við fengum engin víti í leikjunum en ég vann í þessu á æfingasvæðinu. Við þurfum að taka það jákvæða úr þessum fyrsta leik og halda áfram.“ Szoboszlai segir að það hafi verið einstakt að standa við boltann og bíða þess að taka vítaspyrnuna. „Rúmlega fimmtíu þúsund stuðningsmenn á vellinum á móti þér. Þú heyrir ekki þína eigin rödd. Þetta er ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta og af hverju ég geri þetta,“ sagði ungverski miðjumaðurinn. Engir auðveldir sigrar „Það er alltaf erfitt að koma hingað og allir vita að stuðningsmenn þeirra eru ótrúlegir. Þeir eru með frábært lið og stjóra [Matthias Jaissle]. Hann er nýr en hann hefur sannað sig hjá mörgum öðrum liðum. En við vorum undirbúnir og þurftum að standa saman undir stjórn nýja stjórans. Við þurftum að vita hvað var að gerast í leiknum. Það var gott að koma til baka eftir að hafa lent 2-1 undir. En ef ég á að vera hreinskilinn áttum við að vinna. En svona er fótboltinn. Þú vinnur enga auðvelda sigra í ensku úrvalsdeildinni, sama á móti hverjum þú ert. Við þurfum að vera meðvitaðir um það og sjá um þetta í næsta leik.“ Leikurinn í dag var fyrsti keppnisleikur Liverpool undir stjórn Andonis Iraola. Hann tók við liðinu af Arne Slot í sumar. Szoboszlai var beðinn um að lýsa því hvernig væri að spila hjá Iraola. „Við gefumst aldrei upp. Ég ábyrgist það. Við verðum alltaf að berjast, allan daginn, allar níutíu mínúturnar. Allir sem komu inn á settu mark sitt á leikinn. Við þurfum á öllum hópnum að halda og vera tilbúnir,“ sagði Szoboszlai. Liverpool tekur á móti Nottingham Forest í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn kemur.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira