Reknu vinirnir mætast í London Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2026 12:32 Alvaro Arbeloa og Xabi Alonso unnu þrjú stórmót með spænska landsliðinu. Getty Vinirnir Xabi Alonso og Alvaro Arbeloa leiða saman hesta sína í kvöld þegar Chelsea og Fulham mætast í Lundúnaslag í lokaleik fyrstu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Rafa Benítez bjóst við því að annar þeirra yrði knattspyrnustjóri en ekki hinn.
Leikur Fulham og Chelsea hefst klukkan 19 í kvöld á Sýn Sport. Þar mætast stjórarnir sem stýrðu Real Madrid á síðustu leiktíð en Alonso var rekinn þaðan í janúar og Arbeloa fékk þá að stýra liðinu tímabundið í nokkra mánuði. Þeir eru góðir vinir eftir að hafa spilað saman í samtals sjö ár með Liverpool og Real Madrid, og einnig unnið heimsmeistaratitil og tvo Evrópumeistaratitla með spænska landsliðinu. Alls léku þeir saman 262 leiki með félags- og landsliði, meðal annars undir stjórn Benitez, Jose Mourinho, Carlo Ancelotti og Vicente del Bosque. „Við erum mjög góðir vinir, þar til á mánudagskvöld,“ sagði Arbeloa léttur á blaðamannafundi og Alonso tók í sama streng: „Þegar við erum mættir út á völl erum við ekki vinir.“ When old friends go head-to-head...👀Alvaro Arbeloa and Xabi Alonso will have to put their friendship aside when Fulham take on Chelsea. Who will come out on top?🤔 pic.twitter.com/dMNYofVXWi— Match of the Day (@BBCMOTD) August 24, 2026 Þeir Alonso og Arbeloa léku báðir undir stjórn Rafa Benítez hjá Liverpool á árunum 2007-2009 og í samtali við BBC fyrir leikinn í kvöld er Benítez hreinskilinn varðandi það hvort hann hefði reiknað með því að þeir yrðu knattspyrnustjórar: „Alonso, já. Arbeloa, í raun ekki. Fyrir mér þá kom Arbeloa á óvart.“ Xabi Alonso og Alvaro Arbeloa á góðri stundu í leik með Liverpool.Getty/Clive Brunskill Arbeloa tók við Fulham af Marco Silva sem hætti eftir þrjú ár með liðið til þess að taka við Benfica. Eina reynsla Arbeloa af því að vera aðalþjálfari er með Real Madrid í vor. Alonso náði hins vegar afar eftirtektarverðum árangri með Leverkusen áður en hann fékk tækifærið til að stýra Real en entist aðeins í hálfa leiktíð þar. „Alvaro þekkir ensku úrvalsdeildina en hann hefur minni reynslu en Xabi. Við verðum að komast að því hvernig hann spjarar sig utan Real Madrid, sem verndar þig á vissan hátt. Utan félagsins þurfa menn að standa á eigin fótum,“ sagði Benitez.
Enski boltinn Chelsea FC Fulham FC Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira