Skoðun

Takk Hörður

Jóhann Páll Jóhannsson skrifar

Hörður Arnarson hefur látið af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir sautján ár við stýrið.

Hann tók við hlutverkinu í miðri efnahagskreppu þegar Landsvirkjun var gríðarlega skuldsett, öll lán fyrirtækisins voru með ríkisábyrgð og arðgreiðslur litlar.

Hörður setti sér skýr markmið: að þjóðin fengi sanngjarnt verð fyrir orkuna sína. Það kallaði á hörð átök og krefjandi samningaviðræður við marga af stærstu viðskiptavinum fyrirtækisins. Afraksturinn er sá að í dag greiðir stóriðjan verð sem stenst fullkomlega samanburð við nágrannalöndin á meðan heimilin njóta einhvers mesta raforkukaupmáttar á byggðu bóli.

Landsvirkjun hefur greitt niður skuldir um hátt í tvo millljarða dollara. Í sumar greiddi fyrirtækið upp síðasta lánið með ríkisábyrgð og lauk þar með sextíu ára sögu ríkistengdra lána. Fyrir rekstrarárin 2021 til 2025 hefur Landsvirkjun greitt um 110 milljarða króna í arð í ríkissjóð, auk tuga milljarða í skatta. Þetta eru peningar sem fara beint í heilbrigðiskerfið, skólana og innviðina okkar.

Á sama tíma hefur verið ráðist í mikilvægar framkvæmdir. Búðarhálsstöð, Þeistareykjastöð og Búrfellsstöð II risu í tíð Harðar, framkvæmdir eru hafnar við Hvammsvirkjun, stækkanir eru í undirbúningi og fyrir hálfum mánuði var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins gangsett.

Á sama tíma hefur fyrirtækið tekið frumkvæði og sýnt forystu á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þetta er ekki síst framsýni Harðar að þakka.

Hörður hefur ekki alltaf sagt það sem fólk vildi heyra, og hann hefur heldur betur fengið yfir sig gusurnar fyrir að standa með sannfæringu sinni og standa með eigendum Landsvirkjunar sem eru landsmenn allir.

Nú skilar hann af sér fyrirtæki sem er fjárhagslega sterkara en nokkru sinni fyrr, nútímalegra og hvílir á fjölbreyttari stoðum en áður, í fullri eigu þjóðarinnar og tilbúið að vinna enn glæstari sigra á tímum orkuskipta og grænnar atvinnubyltingar.

Takk Hörður fyrir þína þjónustu og þitt ómetanlega framlag til íslensks samfélags.

Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.




Skoðun

Skoðun

Eftir Kveiksþátt

Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar

Sjá meira


×