Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar 21. október 2026 18:00 Ég hef kennt raungreinar á unglingastigi grunnskóla í 25 ár og er foreldri barns sem er í 10. bekk í vetur. Í grunninn er þetta ekki spurning um hvaða kvarða við notum í námsmati og geri ég engar athugasemdir við að taka upp talnakvarða í sjálfu sér. Þetta er meira spurning um að matið sé faglegt og það liggi ljóst fyrir í upphafi vetrar hvernig þessu er háttað. Einnig þarf matið að vera í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla. Hvorugt þessa á við í vetur. Það er verið að breyta kvarðanum á miðju skólaári og kennarar, nemendur og foreldrar vita ekki alveg hvernig þetta endar. Þar að auki er verið að leggja mikla vinnu á kennara sem er líklega bara til þess að nota í vetur. Tilgangur þessa er alls ekki ljós og ávinningurinn er enginn. Börn fædd árið 2011 eru stærstu fórnarlömbin í þessu því það er stutt í að skólaárið sé að verða hálfnað og ekki alveg ljóst hvernig þessu verður háttað. Matskvarðinn eins og hann lítur út núna er mjög óljós sér í lagi þegar kemur að einkunnunum 9 og 10. Það virðist vera þannig að okkur sé ætlað að vinna með tvo talnakvarða þar sem við gefum hlutfallseinkunn annars vegar og hæfnimiðaða einkunn hins vegar. Eins og oft hefur komið fram þá þýða tölurnar á þessum tveimur kvörðum ekki það sama. Hvaða skilaboð erum við þá að senda nemendum og foreldrum? Það á að vera markmið með þessu að auka samræmi einkunna en ég get ekki með nokkru móti séð að þessi breyting ein og sér geri nokkuð í því markmiði. Ég legg því til að þessari tilraunastarfsemi verði hætt nú þegar og málið unnið frá grunni með því að endurskoða námskrána fyrst og byggja námsmatið á þeirri námskrá en ekki öfugt. Að gera þetta eins og við erum að gera núna er eins og spila íþróttaleik en það er stöðugt verið að breyta reglunum og hvernig stig eru talin. Hver er til í að keppa á þeim grundvelli? Þetta er samt ekki leikur heldur er verið að framkvæma tilraunastarfsemi á námi og framtíð barna sem fædd eru árið 2011. Höfundur er grunnskólakennari og foreldri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grunnskólar Skóla- og menntamál Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Ég hef kennt raungreinar á unglingastigi grunnskóla í 25 ár og er foreldri barns sem er í 10. bekk í vetur. Í grunninn er þetta ekki spurning um hvaða kvarða við notum í námsmati og geri ég engar athugasemdir við að taka upp talnakvarða í sjálfu sér. Þetta er meira spurning um að matið sé faglegt og það liggi ljóst fyrir í upphafi vetrar hvernig þessu er háttað. Einnig þarf matið að vera í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla. Hvorugt þessa á við í vetur. Það er verið að breyta kvarðanum á miðju skólaári og kennarar, nemendur og foreldrar vita ekki alveg hvernig þetta endar. Þar að auki er verið að leggja mikla vinnu á kennara sem er líklega bara til þess að nota í vetur. Tilgangur þessa er alls ekki ljós og ávinningurinn er enginn. Börn fædd árið 2011 eru stærstu fórnarlömbin í þessu því það er stutt í að skólaárið sé að verða hálfnað og ekki alveg ljóst hvernig þessu verður háttað. Matskvarðinn eins og hann lítur út núna er mjög óljós sér í lagi þegar kemur að einkunnunum 9 og 10. Það virðist vera þannig að okkur sé ætlað að vinna með tvo talnakvarða þar sem við gefum hlutfallseinkunn annars vegar og hæfnimiðaða einkunn hins vegar. Eins og oft hefur komið fram þá þýða tölurnar á þessum tveimur kvörðum ekki það sama. Hvaða skilaboð erum við þá að senda nemendum og foreldrum? Það á að vera markmið með þessu að auka samræmi einkunna en ég get ekki með nokkru móti séð að þessi breyting ein og sér geri nokkuð í því markmiði. Ég legg því til að þessari tilraunastarfsemi verði hætt nú þegar og málið unnið frá grunni með því að endurskoða námskrána fyrst og byggja námsmatið á þeirri námskrá en ekki öfugt. Að gera þetta eins og við erum að gera núna er eins og spila íþróttaleik en það er stöðugt verið að breyta reglunum og hvernig stig eru talin. Hver er til í að keppa á þeim grundvelli? Þetta er samt ekki leikur heldur er verið að framkvæma tilraunastarfsemi á námi og framtíð barna sem fædd eru árið 2011. Höfundur er grunnskólakennari og foreldri.
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun