Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Þann 11. september fékk Kaldvík hf. rekstrarleyfi fyrir 10.000 tonna laxeldi í Seyðisfirði. Talsmenn verkefnisins nefna störf, útflutningstekjur og tekjur fyrir ríki og sveitarfélag. Skoðun 9.10.2026 11:33
Stöndum með Seyðisfirði! Hversu skýrt þurfa Seyðfirðingar að segja nei áður en á þá er hlustað? Matvælastofnun hefur gefið út leyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði, þvert á vilja 75% Seyðfirðinga sem eru andvígir áformunum. Seyðfirsku grasrótarsamtökin VÁ hafa haldið uppi hetjulegri baráttu gegn þessum áformum og boða nú til mótmæla gegn þeim á sunnudaginn 11. október klukkan 15:00 á Austurvelli. Skoðun 8.10.2026 09:16
Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins. Innlent 5.10.2026 12:01
„Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman af því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félags um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfirði. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum vikum og dögum. Innlent 20. september 2026 10:02
Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt. Innlent 16. september 2026 20:00
Ók of hratt í hálku þegar banaslys varð á Fjarðarheiði Ökumaður bifreiðar sem fór yfir á gagnstæðan vegarhelming og lenti framan á öðrum bíl á Fjarðarheiði í desember er talinn hafa ekið of hratt miðað við aðstæður. Karlmaður á níræðisaldri í bílnum sem ekið var framan á lést. Innlent 16. september 2026 12:42
Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Heilbrigðisráðherra hefur skipað Þórörnu Gró Friðjónsdóttur forstjóra Heilibrigðisstofnunar Austurlands (HSA) til fimm ára. Þórarna var áður framkvæmdastjóri mannauðs og hefur verið settur forstjóri frá því í sumar. Innlent 14. september 2026 15:50
„Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Formaður heimastjórnar Múlaþings segir það hafa komið sér og öðrum fulltrúum Múlaþings í opna skjöldu að starfsleyfi hafi verið gefið út til fiskeldis í firðinum. Það séu vonbrigði að frumvarp um breytingar á lögum um lagareldi hafi ekki gengið í gegn á síðasta vorþingi. Innlent 14. september 2026 12:01
Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Yfirhafnarstjóri í Múlaþingi lýsir hruni í komum skemmtiferðaskipa og segir það þungt högg fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Skipafélög beini skipum sínum annað vegna hringlandaháttar í gjaldtöku. Innlent 13. september 2026 22:01
„Þetta er fullkomið áfall“ Félag um vernd Seyðisfjarðar er hvergi nærri af baki dottið þrátt fyrir að Kaldvík AS hafi fengið rekstrar-og starfsleyfi í gær til fiskeldis í firðinum. Formaður segir undirskriftarsöfnun hafa sýnt fram á að meirihluti bæjarbúa vilji fara aðrar leiðir til atvinnuuppbyggingar í firðinum. Innlent 12. september 2026 14:35
Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Er það táknrænt eða tilviljun að ríkisvaldið tók hafnarsvæði Seyðisfjarðar, siglingaleið að samevrópskri ferjuhöfn undir mengandi stóriðju þann 11.09.2026? Skoðun 12. september 2026 14:01
Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Félagið Kaldvík AS hefur fengið rekstrar- og starfsleyfi til að ala tíu þúsund tonn af laxi frá Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun í Seyðisfirði. Í tilkynningu til Kauphallar segir forstjóri það mikilvægan áfanga. Viðskipti innlent 11. september 2026 12:45
Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu. Innlent 2. september 2026 19:24
Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Andarnefja varð innlyksa í háflóði á Djúpavogi í morgun, rak á land í Brandsvík og hefur verið föst þar síðan. Íbúar hafa staðið í ströngu við að ausa yfir andarnefjuna sjó og standa vonir til að hún komi sér sjálf út í flóði. Um tíma virtist hvalurinn of örmagna til að bjarga sér sjálfur en er byrjuð að sprikla. Innlent 1. september 2026 15:14
Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Maðurinn sem lést í Stuðlagili á mánudag hét Piotr Sójka og var 39 ára gamall pólskur ríkisborgari. Piotr var búsettur í Póllandi en var á ferðalagi hérlendis. Innlent 28. ágúst 2026 10:12
Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Karlmaður á fertugsaldri sem lést þegar hann féll út í Jökulsá á Brú í Stuðlagili í vikunni er sagður hafa verið pólskur. Pólskur fjölmiðill greinir frá þessu. Innlent 27. ágúst 2026 10:24
Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli eftir að ferðamaður lést þegar hann féll ofan í gilið á mánudag. Var það annað banaslysið við gilið á tæplega tveimur árum en sveitarstjóri Múlaþings segir fyrsta viðbragð þegar svona sorglegt mál komi upp vera að hlúa að fólki. Innlent 26. ágúst 2026 22:27
Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður á Austurlandi varð vitni að því í gær þegar ferðamaður drukknaði við Stuðlagil. Hún fer daglega með ferðamenn en segir aðstæður óöruggar og verulega þörf á betri fallvörnum sem og björgunartækjum við gilið. Ferðamaðurinn féll ofan í ána. Innlent 25. ágúst 2026 22:57
„Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Kafarar fundu lík manns, sem féll í Stuðlagil í gærkvöldi, í hyl í Jöklu skömmu eftir að þeir fóru ofan í ána. Lögreglustjórinn á Austurlandi segir gott að maðurinn hafi fundist áður en myrkur skall á. Innlent 25. ágúst 2026 14:51
Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Maðurinn sem féll út í Jöklu við Stuðlagil í gær fannst látinn í ánni á tíunda tímanum í gærkvöldi. Hann var erlendur ferðamaður á fertugsaldri. Innlent 25. ágúst 2026 07:35
Leita áfram í fyrramálið Björgunaraðgerðir standa enn yfir í Stuðlagili við leit að manni sem féll í Jöklu fyrr í dag. Lögregla segir að dregið verði úr leitinni von bráðar þegar myrkur skellir á en henni fram haldið á morgun. Innlent 24. ágúst 2026 21:08
Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Leit stendur enn yfir að manni sem talið er að hafi fallið út í Jökulsá á Brú við Stuðlagil. Hátt í hundrað manns taka þátt í aðgerðinni frá öllum björgunarsveitum á Austurlandi en tilkynning barst um atvikið rúmlega eitt í dag. Innlent 24. ágúst 2026 18:38
Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Allt tiltækt lið björgunarsveita á Austurlandi hefur verið kallað út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið út í Jöklu í Stuðlagili. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur með straumvatnsbjörgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu. Innlent 24. ágúst 2026 14:16
Límmiðar lifðu ekki af nóttina „Ég er bara algjörlega miður mín út af þessu. Að þetta fái ekki að vera í friði. Þetta eru líklega einhver skemmd epli,“ segir Frosti Sigurgeirsson, bóndi á Heiðarseli á Hróarstungu í Fljótsdalshéraði, sem setti upp límmiða á heyrúllur í gær, merkta „Já til að sjá“. Miðarnir voru horfnir í morgun. Innlent 22. ágúst 2026 16:04