Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Alysa Liu varð í kvöld Ólympíumeistari í listdansi á skautum og batt þar með enda á tuttugu ára verðlaunaþurrð bandarískra kvenna í þessari grein. Hún varð líka fyrsta bandaríska konan til að vinna Ólympíugull á listskautum í 24 ár. Sport 19.2.2026 22:31
Ísraelskir Ólympíuforkólfar vilja banna sjónvarpslýsanda Ísraelska Ólympíunefndin hefur lagt fram formlega kvörtun til svissneskrar sjónvarpsstöðvar og krefst þess að metið verði hvort lýsanda skuli meinað að starfa frekar á Ólympíuleikum. Sport 19.2.2026 19:07
Noregur jafnaði gullverðlaunametið sitt á Ólympíuleikum Gullverðlaun í norrænni tvíkeppni sem Andreas Skoglund og Jens Lurås Oftebro unnu sá til þess að Noregur jafnaði eigið gullverðlaunamet á Ólympíuleikunum í dag. Sport 19.2.2026 17:30
Vann Ólympíugull á afmælisdaginn sinn: „Ég gat ekki hætt að gráta“ Snjóbrettakappinn Su Yiming tryggði Kínverjum fyrstu gullverðlaunin á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina þegar hann sigraði í úrslitum í brekkukeppninni í skíðafimi karla. Sport 18. febrúar 2026 22:51
„Ég efaðist um hversu mikinn kjark ég hefði í hjartanu“ Stormasömum tólf ára Ólympíuferli Mikaelu Shiffrin lauk í dag þegar hún sigraði í svigi með yfirburðum og batt þar með enda á langa verðlaunaþurrð sína á Vetrarólympíuleikunum. Sport 18. febrúar 2026 22:31
Norðmaðurinn kominn í mjög fámennan hóp með Michael Phelps Norðmaðurinn Johannes Hösflot Klæbo vann tíundu gullverðlaun sín í skíðagöngu á Ólympíuleikunum í Mílanó Cortina í dag og setti þar með annað met á Vetrarólympíuleikum. Sport 18. febrúar 2026 18:00
Löng bið Shiffrin á enda Hin bandaríska Mikaela Shiffrin hlaut Ólympíugull í svigi eftir öruggan sigur í greininni. Um er að ræða hennar fyrsta gull í átta ár. Sport 18. febrúar 2026 15:03
Hélt að hundurinn sem hljóp inn á brautina væri úlfur Hundur hljóp inn á brautina og stal sviðsljósinu í liðasprettkeppni í skíðagöngu á Vetrarólympíuleikunum. Einn keppandinn hélt að þetta væri úlfur. Sport 18. febrúar 2026 12:30
Stækkaði typpi skíðastökkvara Sterkur orðrómur hefur verið uppi um að keppendur í skíðastökki karla á Vetrarólympíuleikunum hafi látið stækka getnaðarlim sinn, í von um meiri árangur á leikunum. Nú hefur lýtalæknir svo gott sem staðfest orðróminn. Sport 18. febrúar 2026 11:32
Undir pressu vegna tengsla við Epstein: „Ég get ekki rekið hann“ Casey Wasserman, yfirmaður skipulagsnefndar Ólympíuleikanna í Los Angeles 2028, sætir töluverðri pressu vegna tengsla við samverkakonu Jeffrey Epstein. Borgarstjóri L.A. hefur kallað eftir afsögn hans. Sport 18. febrúar 2026 11:00
Stutt gaman hjá stelpunum okkar í brekkunni Skíðakonurnar Elín Elmarsdóttir van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir hafa lokið keppni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu. Báðar féllu úr keppni í fyrri ferð dagsins í svigi. Sport 18. febrúar 2026 10:35
Fær um þrjátíu milljónir í sárabætur frá ríkasta manni Úkraínu Úkraínski sleðakappinn með heimsfræga hjálminn, Vladyslav Heraskevych, fékk ekkert fyrir sinn snúð frá alþjóða Ólympíunefndinni en ríkasti maður Úkraínu ætlar að leggja inn á hann um þrjátíu milljónir króna í sárabætur. Sport 18. febrúar 2026 09:01
„Þessi medalía er fyrir allar mömmurnar“ Elana Meyers Taylor hafði unnið allt sem hægt er að vinna á sínum ferli í bobbsleðanum, nema gullverðlaun á Ólympíuleikunum. Gullverðlaunin skiluðu sér svo loksins í ár, þegar Elana er orðin rúmlega fertug og tveggja barna móðir. Sport 18. febrúar 2026 07:00
Fatlaðir fá að keppa fyrir hönd Rússlands Á yfirstandandi Vetrarólympíuleikum þarf rússneskt íþróttafólk að keppa undir hlutlausum merkjum en aðrar reglur verða í gildi á Vetrarólympíumóti fatlaðra. Sport 17. febrúar 2026 20:00
Klopp hringdi bjöllu og hitti hetjuna sína á ÓL Jurgen Klopp, fyrrum þjálfari Liverpool og núverandi ráðgjafi hjá íþróttasamsteypu Red Bull, fékk ábyrgðarmikið hlutverk og hitti eina af sínum hetjum í skíðaskotfimikeppni á Vetrarólympíuleikunum í dag. Fótbolti 17. febrúar 2026 19:00
Fær meira en milljarð frá kínverska ríkinu Eileen Gu er launahæsta íþróttakona Vetrarólympíuleikanna. Fyrir mistök kom í ljós að stór hluti peninganna kemur frá kínverska ríkinu. Sport 17. febrúar 2026 15:45
Geta komið í veg fyrir að Donald Trump mæti á Ólympíuleikana Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að fljúga til Ítalíu til að horfa á Ólympíuleikana samkvæmt ítölskum fjölmiðlum. Sport 17. febrúar 2026 13:02
„Þeir sem virðast sterkastir geta samt verið að heyja ósýnilegar innri baráttur“ Bandaríski skautdansarinn Ilia Malinin þótti líklegur til afreka á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina en endaði langt frá verðlaunapallinum. Slök frammistaða hans var mörgum mikið áfall en Malinin gaf í skyn „óumflýjanlegt hrun“ vegna álagsins á Ólympíuleikunum. Sport 17. febrúar 2026 11:00
Selja Ólympíusmokkana á netinu Eftirspurnin eftir Ólympíusmokkunum á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina hefur búið til kapphlaup á netinu þar sem fólk er tilbúið að borga vel til að komast yfir smokkana. Sport 17. febrúar 2026 10:32
„Ég skammast mín“ Bandaríska skautakonan Corinne Stoddard skrifaði hjartnæma færslu á samfélagsmiðla eftir vonbrigðaúrslit á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Hún biður vini sína og fjölskyldu afsökunar á frammistöðu sinni á Ólympíuleikunum í ár. Sport 17. febrúar 2026 10:03
Komu upp um meira svindl hjá Kanada í krullunni Meint svindl kanadíska krullulandsins virðist ekki einskorðast við einn leikmann eða einn leik. Nú er hægt að bæta nýjum kafla við söguna um kanadíska krulluliðið. Sport 17. febrúar 2026 09:19
Vonn hefur ekki staðið upp í meira en viku Lindsey Vonn er loksins komin heim til Bandaríkjanna aftur. Þessi 41 árs gamla skíðakona segir að hún hafi ekki staðið í fæturna síðan hún datt illa á Ólympíuleikunum fyrir rúmri viku síðan. Sport 17. febrúar 2026 08:32
Jutta Leerdam og Jordan Stolz breyttu orðrómi í sannleika Hin hollenska Jutta Leerdam og hinn bandaríski Jordan Stolz hafa verið tvær af stærstu stjörnum skautakeppni Vetrarólympíuleikanna og nú hefur komið í ljós að þau æfðu saman fyrir leikana. Sport 17. febrúar 2026 08:16
Sagði sína hlið á skógarferðinni sem hann fór í fyrir framan allan heiminn Norski skíðamaðurinn Atle Lie McGrath var með forystu í svigkeppni Ólympíuleikanna en keyrði út úr brautinni og klúðraði gullinu. Það voru þó ekki mistökin heldur viðbrögðin við þeim sem vöktu heimsathygli. McGrath fór algjörlega yfir um, henti skíðastöfunum og öllu lauslegu af sér og strunsaði út í skóg. Sport 17. febrúar 2026 08:00