Hvalkjöt fyrir 2,8 milljarða króna til kaupenda í Japan Um 2.600 tonn af íslensku hvalkjöti eru væntanleg með skipi til Japans um miðja þessa viku og er þetta mesta magn hvalaafurða sem flutt hefur verið út frá Íslandi í 35 ár. Útflutningsverðmætið nemur um 2,8 milljörðum króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Innlent 6. febrúar 2023 21:50
„Iðnaðurinn fær að hafa eftirlit með sjálfum sér“ Það er ekki aðeins þingheimur sem er uggandi vegna stöðunnar sem dregin er upp í nýrri svartri skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjókvíaeldi því náttúruverndarsinnar sem fréttastofa ræddi við í dag segja það vera ljúfsárt að lesa staðhæfingar í skýrslunni sem þeir sjálfir hafa haldið á lofti árum saman en talað fyrir daufum eyrum. Innlent 6. febrúar 2023 20:00
Kolsvört skýrsla um fiskeldi og metfjöldi ábendinga Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er í áfalli eftir kynningu ríkisendurskoðanda á skýrslu sinni um sjókvíaeldi, lagaframkvæmd, stjórnsýslu og eftirlit. Ríkisendurskoðandi hefur aldrei gert jafn margar athugasemdir í skýrslu sinni. Innlent 6. febrúar 2023 11:27
Auka loðnukvótann um tæplega sextíu þúsund tonn Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022-2023 verði ekki meiri en 275.705 tonn, sem þýðir 57.300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknarstofnunar. Viðskipti innlent 3. febrúar 2023 10:54
„Ég vildi bara prófa eitthvað öðruvísi” Hin breska Caitlin Krause hefur vakið töluverða athygli hér á landi fyrir hlutverk sitt í raunveruleikaþáttunum Ice Cold Catch sem sýndir eru á Stöð 2. Caitlin, sem er 27 ára gömul, yfirgaf starf sitt sem skipsþerna á ofursnekkju í Miðjarðarhafinu til að freista gæfunnar á sjónum við strendur Íslands á línubátnum Páli Jónssyni. Lífið 2. febrúar 2023 15:40
Telur brottkastið enn umfangsmeira og fagnar auknu eftirliti Sviðsstjóri hjá Fiskistofu fagnar ákvörðun matvælaráðherra um að styrkja stofnunina til aukins eftirlits með brottkasti. Hún telur brottkast meira en fram hefur komið. Nánast annað hvert skip sem drónar Fskistofu hafi flogið yfir hafi verið staðið að brottkasti. Innlent 28. janúar 2023 14:02
Vg leggur smábátasjómenn á höggstokkinn! Vg er því miður í mínum huga hreinn og klár svikaflokkur. Flokkur sem boðaði bjartari tíð fyrir bothættar sjávarbyggðir og kvótalitlar útgerðir, fyrir kosningarnar 2021. Margur bar þá von í brjósti að þegar Svandís Svavarsdóttir (Vg) settist í ráðherrastól myndi hún beita sér fyrir auknu réttlæti og bjartari tímum sjávarbyggðanna. Sú von var andvana fædd. Skoðun 27. janúar 2023 13:30
Sjálfbær þróun sjávarútvegs Þegar rætt er um sjálfbæra þróun er jafnan vísað í þrjár stoðir hennar: Umhverfi, efnahag og samfélag. Skoðun 25. janúar 2023 17:00
Alltof algengt að hvalir drepist við að festast í veiðarfærum Alltof algengt er að hvalir hafi drepist við það að festast í veiðarfærum við Íslandsstrendur. Þetta segir hvalasérfræðingur, en ungur hnúfubakur fannst dauður með veiðarfæri vafinn um hausinn úti fyrir Njarðvík um helgina. Innlent 24. janúar 2023 20:32
Verð á ferskum þorski aldrei verið hærra í Noregi Verð á ferskum þorski á norskum fiskmarkaði hefur aldrei verið hærra á þessum tíma árs, samkvæmt gögnum frá Norges Råfisklag, sölusamlagi í Noregi. Þorskverðið á íslenska markaðnum hefur hækkað um fimmtung á milli ára og útlit fyrir frekari verðhækkun. Innherji 24. janúar 2023 12:15
Hvalur flæktist í hengingaról Hræ af hvalskálfi vakti athygli vegfaranda við ströndina við Innri Njarðvík í gær. Hvalurinn virðist hafa hafa flækst í línu af veiðarfærum og hlotið slæman dauðdaga. Innlent 22. janúar 2023 19:31
Viðgerð um borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni lokið Viðgerð um borð í togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni tókst síðdegis og siglir skipið nú fyrir eigin vélarafli. Togarinn heldur til Hafnarfjarðar þar sem gert er ráð fyrir að ný veiðarfæri verði sótt. Innlent 22. janúar 2023 17:51
Guðni var með er Hrafn Sveinbjarnarson var dreginn til hafnar Varðskipið Freyja er lögð af stað með togarann Hrafn Sveinbjarnarson áleiðis til hafnar. Togarinn varð vélarvana um klukkan fjögur í nótt um fimmtíu sjómílur norðnorðvestur af Straumnesi. Forseti Íslands er um borð í skipinu. Innlent 22. janúar 2023 16:12
Forsetinn í varðskipi á leið til móts við vélarvana togara Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er um borð í varðskipinu Freyju, sem verið er að sigla til hjálpar vélarvana togara. Tilkynning barst frá togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni um klukkan fjögur í nótt um að togarinn væri aflvana. Innlent 22. janúar 2023 09:45
Mest af loðnu fyrir norðan Rannsóknaskip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson, er nú við loðnuleit. Skipið lagði frá Hafnafirði í síðustu viku og hélt suður fyrir land. Fyrir um viku síðan lagði skipið lykkju á leið sína norðvestur af landinu og hélt síðan til vesturs. Forstjóri Síldarvinslunnar segir ástæðu til bjartýni. Innherji 20. janúar 2023 15:04
Hvalverndarsamtök fylgjast með siglingu þessa skips Alþjóðlegu hvalverndarsamtökin Whale and Dolphin Conservation fylgjast núna af áhuga með siglingu norska skipsins Silver Copenhagen yfir Indlandshaf. Þau telja nokkuð víst að farmur þess sé íslenskt hvalkjöt á leið til Japans. Innlent 19. janúar 2023 18:08
„Merkilegt ef við ætlum að skjóta skjólshúsi yfir skattaflóttafólk frá Noregi“ Talsmaður íslenska náttúruverndarsjóðsins telur hugmyndir SFS um að margfalda sjókvíaeldi villandi, umhverfisáhrifin af því séu ekki verjanleg. Norsk fiskeldisfyrirtæki flýi hingað því skattaumhverfið sé hagstæðara en í Noregi og taki svo hagnaðinn aftur heim. Viðskipti innlent 19. janúar 2023 13:00
Norska skattaflóttafólkið og fyrirheitna landið Ísland Ísland er nú orðið fyrirheitna landið í augum ríkasta fólks Noregs sem hefur á undanförnum mánuðum flúið land í stórum stíl. Eða réttara sagt fyrirtækjarekstur á Íslandi er það sem heillar því þetta fólk ætlar ekki að borga skatt hér, frekar en í heimalandi sínu. Skoðun 19. janúar 2023 11:30
Smíða áttæring forfeðranna úr sunnlenskum skógarvið Meira en öld eftir að Íslendingar hættu almennt að róa til fiskjar á áttæringum eru menn aftur teknir til við að smíða slíkt skip, og það úr íslenskum skógarvið. Tilgangurinn er að halda upp á menningararfinn. Innlent 19. janúar 2023 11:05
Sáu stórar loðnutorfur við Kolbeinseyjarhrygg Áhöfn hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar hefur fundið stórar loðnutorfur við Kolbeinseyjarhrygg. Þetta er það mesta sem sést hefur af loðnu til þessa í sérstökum aukaleitarleiðangri skipsins, sem hófst á miðvikudag í síðustu viku. Viðskipti innlent 18. janúar 2023 18:44
SFS vilja margfalda fiskeldi og fagna erlendri fjárfestingu Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi telur raunhæft að á næstu áratugum verði hægt að framleiða tólf sinnum meira af eldisfiski hér á landi en nú er. Hún fagnar aukinni fjárfestingu Norðmanna í fiskeldi hér á landi. Viðskipti innlent 18. janúar 2023 15:10
Ásta Dís tekur sæti Helgu í stjórn Samherja Ásta Dís Óladóttir hefur tekið sæti í stjórn Samherja hf. í stað Helgu Steinunnar Guðmundsdóttur. Viðskipti innlent 18. janúar 2023 10:11
Grænlensk skip landa loðnu meðan íslenski flotinn bíður Tveir grænlenskir togarar, Tasiilaq og Polar Ammasak, lönduðu loðnu í íslenskum höfnum í gær. Loðnan veiddist úti af Norðausturlandi úr kvóta Grænlendinga innan íslensku lögsögunnar. Viðskipti innlent 17. janúar 2023 12:00
Hafrannsóknaskip í loðnu úti af Vopnafirði og Langanesi Áhöfn hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar er búin að finna loðnu úti af Vopnafirði og Langanesi. Skipið heldur áfram loðnuleit næstu daga vestur með Norðurlandi í sérstökum aukaleitarleiðangri sem hófst síðastliðinn miðvikudag en byrjað var á því að leita undan sunnanverðum Austfjörðum. Viðskipti innlent 16. janúar 2023 12:36
Skattamálum Samherja lokið með sátt Skatturinn hefur lokið rannsókn sem tók til bókhalds og skattskila samstæðu Samherja hf. árin 2010-2018 þar sem öll gögn í rekstri þeirra félaga voru ítarlega yfirfarin. Úttektinni lýkur í sátt á milli skattrannsóknarstjóra og Samherja. Þessar málalyktir felast í endurálagningu Skattsins á félög í samstæðu Samherja vegna rekstraráranna 2012-2018. Viðskipti innlent 12. janúar 2023 12:40
Meiri gjaldeyrisöflun dugði ekki til að mæta aukinni eyðslu Íslendinga Þrjár helstu stoðir íslensks efnahagslífs, ferðaþjónustan, áliðnaðurinn og sjávarútvegurinn, skiluðu allar mun meiri gjaldeyrisstekjum í fyrra miðað við árið á undan. Þrátt fyrir það var vöruskiptajöfnuðurinn við útlönd óhagstæður. Viðskipti innlent 11. janúar 2023 19:49
Lagðir af stað í aðra aukaleit að loðnu á kostnað útgerðar Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt úr Hafnarfjarðarhöfn í morgun til loðnuleitar. Þetta er annar aukaleitarleiðangurinn sem efnt er til á þessari vertíð en sá fyrri var í byrjun desembermánaðar. Viðskipti innlent 11. janúar 2023 11:46
Hvalkjötið komið í skip og á leið til kaupenda í Japan Allt hvalkjöt frá síðustu vertíð, og raunar meira til, er farið úr landi. Flutningaskip lestaði kjötið í Hafnarfirði skömmu fyrir jól og er það núna á leiðinni til kaupenda í Japan. Innlent 9. janúar 2023 22:42
Metur Síldarvinnsluna fimmtungi undir markaðsgengi Í nýjasta verðmati Jakobsson Capital á Síldarvinnslunni er verðmat félagsins hækkað, en er engu að síður ríflega 20 prósent undir markaðsgengi félagsins. Greinandi Jakobsson Capital gagnrýnir Síldarvinnsluna fyrir skort á upplýsingagjöf í tengslum við yfirtökuna á Vísi í Grindavík. Innherji 9. janúar 2023 15:00
Verður þriðja stærsta sjávarútvegsfyrirtækið mælt í veltu Fyrirhugaður samruni Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði er nýjasti gjörningurinn í þeirri samrunahrinu sem hafin er í íslenskum sjávarútvegi. Mælt í veltu verður sameinað félag þriðja stærsta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi miðað við rekstrartölur ársins 2021. Innherji 6. janúar 2023 07:55