Birtist í Fréttablaðinu

Botnfrosinn leikmannamarkaður
Níu félagaskipti hafa verið tilkynnt til KSÍ frá því Íslandsmótinu lauk. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir að færri feitir bitar séu á lausu, leikmenn séu ekki að koma heim og margir efnilegir leikmenn séu búnir

Fundu fyrir afar fjandsamlegu viðmóti
Töluverður fjöldi íslenskra stráka freistar gæfunnar í hinum harða heimi atvinnumennskunnar í knattspyrnu. Sumir komast í gegnum nálaraugað og fá atvinnumannssamning á meðan aðrir koma aftur heim.

Lykilfærni fyrir lífið
Félags- og tilfinningafærni er grundvallarfærni fyrir farsæla skólagöngu, sem þarf að fá meiri fókus í skólakerfinu.

Varð gagntekinn af gítartónum
Manuel Barrueco, einn fremsti gítarleikari heims, heldur einleikstónleika í Salnum. Verður einnig með masterklass í Hafnarfirði. Byrjaði að leika á gítar átta ára gamall.

Norðurlandaráð samþykkti aukið samstarf um samfélagsöryggi
Stefna Norðurlandaráðs um samfélagsöryggi var samþykkt samhljóða á þingi ráðsins í Stokkhólmi í gær. Oddný Harðardóttir, sem sat í starfshópi sem vann stefnuna, segir að margt annað en stríðsátök geti ógnað samfélagsöryggi.

Áttunda kynslóð VW Golf frumsýnd í Wolfsburg
Kemur fyrst beinskiptur en aðalsölubíllinn sem er 150 hestafla sjálfskiptur verður kynntur með vorinu hérlendis.

Michael Myers kemur í kvöld!
Hrekkjavökumorðinginn Michael Myers hefur stungið slægt og flakað barnfóstrur, vandræðaunglinga og í raun bara hvern sem er þegar hann bregður undir sig betri fætinum sem gerist einmitt einna helst að kvöldi á hrekkjavökunni.

Síðasta skipið í haust fór í gær
Samtals 183.107 farþegar komu til Íslands með skemmtiferðaskipum á þessu ári. Síðasta skip sumarsins sigldi úr Sundahöfn eftir miðnætti í fyrrinótt.

Japanir heiðra höfund Súper Maríó bræðra
Shigeru Miyamoto, höfundur tölvuleikjanna vinsælu um Maríóbræður, verður heiðraður af ríkisstjórn Japans á sunnudag, 3. nóvember, fyrir framlag hans til menningarinnar en það er einmitt svokallaður menningardagur landsins.

Mikil fjölgun dauðsfalla heimilislausra
612 heimilislausir Frakkar létust árið 2018 samkvæmt góðgerðarsamtökunum Morts de la Ruse, sem skrásett hafa dauðsföllin á undanförnum árum.

Kia XCeed frumsýndur í Öskju um helgina
Bílaumboðið Askja frumsýnir Kia XCeed í Kia húsinu að Krókhálsi 13 á laugardaginn klukkan 12-16. XCeed er glænýr bíll úr smiðju suður-kóreska bílaframleiðandans og er borgarjepplingur.

Berskjölduð Dýrfinna
Dýrfinnu Benitu langaði að heiðra þá sem upplifa sig utanveltu, sérstaklega innan íslensku rappsenunnar. Útkoman er platan Hystería sem kom út á miðnætti. Hún rappar um losta, þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og reiði, en er umfram allt berskjölduð og heiðarleg.

Fengum fágaða borgara við brotthvarf McDonald's
Um mánaðamótin verða tíu ár frá því að bandaríski skyndibitarisanum McDonald's var lokað á Íslandi. Lokunin var tilkynnt með viku fyrirvara og úr varð örtröð á stöðunum. Hamborgaraunnandi segir hamborgaraflóruna hafa blómstrað í kjölfarið.

20 Benz EQC bílar innkallaðir á Íslandi
Að sögn Jónasar Kára Eiríkssonar, vörumerkjastjóra Mercedes á Íslandi, er verið að bíða eftir varahlutum svo hægt sé að hefja innköllunina.

Altari úr mannabeinum hjá eiturlyfjahring
Lögreglan í Mexíkóborg fann altari, sem að hluta til var gert úr mannabeinum, í athvarfi eiturlyfjahrings. Að sögn lögregluyfirvalda Mexíkóborgar fundust 42 höfuðkúpur, 40 kjálkabein og 31 bein úr hand- eða fótleggjum. Einnig fannst mannsfóstur í krukku í húsinu.

Sáralítið streymir inn á markaðinn
Heildarfjárfesting Íslendinga í erlendum verðbréfum hefur numið 130 milljörðum það sem af er ári en á sama tímabili hafa útlendingar aðeins fjárfest fyrir 3 milljarða í íslenskum verðbréfum. Útflæðið setur þrýsting á að viðhalda viðskiptajöfnuði.

Arðsemi Íslandsbanka nam 4,7 prósentum
Arðsemi Íslandsbanka á þriðja fjórðungi ársins nam 4,7 prósentum á ársgrundvelli og lækkaði á milli ára. Arðsemin var um 4,9 prósent á sama fjórðungi í fyrra.

Hið opinbera fjárfesti í stað niðurgreiðslu skulda
Á árunum 2019–2021 verður hægt að nýta tæplega 120 milljarða tekjur frá fyrirtækjum í ríkiseigu til að greiða niður skuldir hins opinbera.

Húmor beitt til mats á menningu vinnustaða
Fjögur íslensk fyrirtæki eru aðilar að Jafnréttisvísi Capacent. Verkefnið felst í því að meta stöðu jafnréttis í fyrirtækjum og að fyrirtæki setji sér markmið í jafnréttismálum. Fleiri stofnanir og fyrirtæki standa nú í aðildarviðræðum.

Kvika greiðir milljónir í sekt til Fjármálaeftirlitsins
Kvika banki lét hjá líða að tilkynna Fjármálaeftirliti um svonefnda hliðarstarfsemi bankans, eins og kveðið er á um að gera skuli í lögum um fjármálafyrirtæki.

Ætlar ekki að borga
"Ég er búinn að fara yfir þetta með lögmanni og ætla ekki að borga,“ segir eigandi fyrirtækis í Reykjavík sem féll í gildru óprúttinna aðila og svaraði svikabréfi.

Situr uppi með milljón króna fjártjón út af stolnu lykilorði
Móðir fíkils var sér óafvitandi skuldsett fyrir rúma milljón króna í gegnum greiðslulausnina Pei sem Greiðslumiðlun rekur. Hún gagnrýnir hve auðvelt sé að skrá aðra í slík viðskipti.

Hafna málatilbúnaði tónfræðings Jóhanns
Lögmenn fyrirtækja sem Jóhann Helgason stefnir í málinu um lagið Söknuð segja mikla galla á málatilbúnaði tónlistarfræðings sem vann álitsgerð fyrir Jóhann. Þeir krefjast þess að málinu verði vísað frá dómi í Los Angeles.

VW hugleiðir að færa framleiðslu frá Tyrklandi
Stjórn Volkswagen Group mun hittast í vikunni með það eitt að markmiði að ákveða hvort að áætlunum um framleiðslu á Passat í Tyrklandi verði hætt eða ekki.

Draumurinn að fá leik á HM kvenna til Íslands
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, segir að draumurinn sé að fá leik eða jafnvel leiki á HM kvenna árið 2027 til landsins. Ísland mun að einhverju leyti verða þátttakandi í HM það árið en Klara situr í nefnd sem vinnur að því að koma HM 2027 til Norðurlandanna. Holland, Bandaríkin og Síle eru einnig sögð áhugasöm um að halda mótið sem verður það tíunda í röðinni.

Lítil stúlka í stað Krists
Verk eftir hið fræga bandaríska tónskáld David Lang verða flutt á tónleikum. Annað verkið fékk Pulitzer-verðlaunin.

Erum fjórum árum á undan áætlun
Milos Milojevic var í byrjun ársins 2018 ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs Mjällby í knattspyrnu sem lék þá í sænsku C-deildinni. Nú rúmu einu og hálfu ári síðar er Milos orðinn aðalþjálfari liðsins og hefur stýrt liðinu upp um tvær deildir á tveimur árum.

Lækningar voru nátengdar göldrum
Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar stendur fyrir málþingi um galdra og lækningar.

Seldi Nespresso fyrir hálfan milljarð króna
Nespresso kaffiverslunin í Kringlunni og á netinu velti um 516 milljónum króna á árinu 2018 og hagnaðist um sjö milljónir króna.

Kynna frumvarp um lengingu fæðingarorlofs í samráðsgátt
Frumvarp félags- og barnamálaráðherra um lengingu fæðingar- og foreldraorlofs hefur verið lagt fram til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Gerir frumvarpið ráð fyrir því að réttur foreldra lengist úr níu mánuðum í tólf.