Þýskaland

Lögðu hald á íbúð Navalní og frystu reikninga hans
Yfirvöld í Rússlandi hafa fryst bankareikninga rússneska stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnís og lagt hald á íbúð hans.

Navalní útskrifaður af sjúkrahúsi
Læknar telja víst að Navalní geti náð fullum bata, þó að enn sé ekki hægt að segja til um langtímaáhrif svo „mikillar eitrunar“.

Navalní krefst þess að fá fötin sín til baka
Taugaeitur fannst bæði í og á líkama Alexei Navalní, rússneska stjórnarandstöðuleiðtogans, og krefst hann þess að rússnesk yfirvöld skili honum fötum sem hann var í þegar hann féll skyndilega í dá í síðasta mánuði.

29 lögreglumenn sendir í leyfi fyrir að deila myndum af Hitler og gasklefum
29 lögreglumönnum í Þýskalandi hefur verið vikið úr starfi og þurfa að sæta rannsókn vegna gruns um að hafa deilt áróðri hægri-öfgamanna í spjallhópum.

Navalní hyggst snúa aftur til Rússlands
Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní hyggst snúa aftur til Rússlands og halda pólitískri baráttu sinni áfram um leið og hann hefur jafnað sig eftir að hafa verið byrlað eitur.

Navalní sagður á batavegi
Þýskir læknar segja að Alexei Navalní, rússneski stjórnarandstöðuleiðtoginn, sé á batavegi eftir að honum var byrlað taugaeitur í Rússlandi. Navalní sé laus úr öndunarvél og hann geti nú risið úr rekkju í skamman tíma í einu.

Frakkar og Svíar staðfesta eitrun Navalny
Yfirvöld í Þýskalandi segja að vísindamenn í Frakklandi og Svíþjóð hafi staðfest að eitrað hafi verið fyrir Alexei Navalny með taugaeitrinu Novichok, sem þróað var í Rússlandi á tímum Sovétríkjanna.

Navalní sagður geta talað á ný
Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalní eru sagður geta talað á ný og getur mögulega munað eftir smáatriðum úr flugferðinni örlagaríku þar sem eitrað var fyrir honum.

Eitrað fyrir Navalny með nýrri tegund Novichok
Þýskir rannsakendur hafa komist að þeirri niðurstöðu að eitrað var fyrir Alexei Navalny með nýrri tegund taugaeitursins Novichok. Navalny lifði af en þó eingöngu fyrir einskæra heppni og skjót viðbrögð bæði flugstjóra og lækna.

Navalní vaknaður úr dáinu
Læknar á sjúkrahúsi í Berlín segja að líðan Alexei Navalní, leiðtoga rússnesku stjórnarandstöðunnar, hafi batnað þannig að óhætt hafi verið að vekja hann úr dái.

Óeirðir í Leipzig aðra nóttina í röð
Óeirðir voru á götum þýsku borgarinnar Leipzig aðra nóttina í röð eftir að lögregla lét fjarlægja hústökufólk úr húsi í hverfinu Connewitz.

Eitt stærsta vændishús álfunnar á hausinn
Vændishúsið Pascha í þýsku borginni Köln er farið á hausinn af völdum kórónuveirufaraldursins.

Fimm börn fundust látin í íbúð í Þýskalandi
Lögregla í Þýskalandi hefur staðfest að fimm börn hafi fundist látin í íbúð í bænum Solingen í Norðurrín-Vestfalíu.

Þvertaka fyrir að hafa eitrað fyrir Navalny
Ríkisstjórn Rússlands þvertekur fyrir að bera á nokkurn hátt ábyrgð á því að eitrað hafi verið fyrir Alexei Navalny, einum helsta stjórnarandstæðingi Rússlands, með taugaeitrinu Novichok.

Rússar krefjast nákvæmra upplýsinga um rannsóknir á Navalny
Rússnesk yfirvöld hafa farið fram á það við yfirvöld í Þýskalandi að þau veiti þeim ítarlegar upplýsingar um þær læknisfræðirannsóknir sem framkvæmdar voru á rússneska stjórnarandstöðuþingmanninum Alexei Navalny í Þýskalandi.

Eitrað fyrir Navalny með taugaeitrinu Novichok
Eitrað var fyrir rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalny með taugaeitrinu Novichok. Þetta er niðurstaða rannsóknar þýskra stjórnvalda.

Hrækt að ráðherra og ráðist að kynhneigð hans
Jens Spahn, heilbrigðisráðherra Þýsklands, fékk yfir sig háðsglósur og fúkyrðaflaum síðastliðinn laugardag þar sem hann reyndi að tala við mótmælendur í Norðurrín-Vestfalíu, einu sambandslandi Þýskalands.

Þúsundir mótmæltu sóttvarnaaðgerðum yfirvalda
Mikill fjöldi fólks kom saman í mótmælagöngu í Berlín í Þýskalandi í dag.

Viðbrögð Merkel sögðu sitt um það hvort Trump heillaði hana
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, virtist hissa þegar hún var spurð að því hvort Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði heillað hana.

Sextán börn á sjúkrahús eftir árás vespa
Sjúkralið var kallað að skóla í vesturhluta Þýskalands í gær eftir að vespur réðust á og stungu sextán börn hið minnsta.

Bayern München Evrópumeistari eftir sigur á PSG
Bayern Munchen er sigurvegari Meistaradeildar Evrópu árið 2020. Liðið vann Paris Saint-Germain 1-0 í úrslitaleiknum í kvöld. Leikurinn fór fram í Lissabon í Portúgal.

Halda þrenna tónleika til að kanna smithættu
Þrennir tónleikar verða haldnir í Þýskalandi í dag til þess að kanna áhættuna á að kórónuveiran, sem veldur Covid-19 sjúkdómnum, smitist á milli manna á slíkum viðburðum sem haldnir eru innandyra.

Navalny kominn til Þýskalands
Alexei Navalny, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Rússlandi, er lentur í Þýsklandi. Hann var fluttur þangað eftir að hafa fallið í dá og segja aðstandendur hans það hafa gerst vegna þess að eitrað hafi verið fyrir honum.

Heimila flutning Navalny til Þýskalands
Rússneskir læknar hafa samþykkt að Alexei Navalny, sem leitt hefur stjórnarandstöðuna í Rússlandi, verði fluttur til Þýskalands.

Einangrun Bandaríkjanna bersýnileg í deilunum um Íran
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er reiður út í hefðbundin bandalagsríki Bandaríkjanna í Evrópu og sakar þau um að vera með leiðtogum Íran í liði.

Mikil fjölgun smitaðra í Frakklandi
Kórónuveirufaraldurinn virðist nú í mikilli uppsveiflu í Frakklandi en þar voru rúmlega 4.700 smit staðfest í gær.

Virðist í uppsveiflu víðs vegar um Evrópu
Kórónuveirufaraldurinn virðist nú í uppsveiflu víðs vegar um Evrópu og í mörgum löndum álfunnar voru staðfest smit í gær fleiri en þau hafa verið um mánaðaskeið.

Meintur öfgamaður reyndi að aka mótorhjól niður í Berlín
Saksóknarar í Þýskalandi segja að mögulega hafi röð bílslysa sem 30 ára gamall maður frá Írak olli á hraðbraut í Berlín í gær verið árás öfgaíslamista.

Þjóðverjar telja bólusetningar mögulegar í byrjun næsta árs
Klaus Cichutek, yfirmaður Paul Ehrlich Institut, sem heldur utan um lögsetningu varðandi bóluefni í Þýskalandi, segir útlit fyrir að einhverjir samfélagshópar geti fengið bóluefni við Covid-19, snemma á næsta ári.

Sakar stjórnarandstöðuna um valdaránstilraun
Alexander Lúkasjenkó, sitjandi forseti Hvíta-Rússlands, hefur sakað andstæðinga sína um tilraun til valdaráns. Stjórnarandstæðingar hafa nú stofnað ráð sem ætlað er að skipuleggja aðgerðir stjórnarandstöðunnar.