Áfengi

Stal snyrtivörum að verðmæti tæpra tvö hundruð þúsund króna
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir þjófnað í verslunum Hagkaups, IKEA og ÁTVR. Þá er hann einnig ákærður fyrir tvö umferðarlagabrot.

Áfengisneysla að öllu leyti skaðleg heilsu ungs fólks
Ríki heims þurfa að grípa til sértækra ráðstafana til þess að draga úr áfengisneyslu ungs fólks. Niðurstöður stærstu rannsóknar sem gerð hefur verið á áhrifum áfengisneyslu benda til þess að þær séu að öllu leyti skaðlegar ungu fólki, en geti í hófi dregið úr sjúkdómum eldra fólks.

Söguleg stund þegar fyrsti bjórinn var seldur úr húsi
Þau voru sannarlega langþráð, viðskiptin sem urðu að veruleika í brugghúsinu Smiðjunni á Vík í dag þegar brugghúsið varð það fyrsta í sögu landsins til að selja bjór frá framleiðslustað.

„Netverslun með áfengi er smásala áfengis“
Þingmaður Flokks fólksins segir vefverslun með áfengi vera skýrt brot á áfengislögum. Hann ræddi málið við þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem segist ekki deila þeirri skoðun með honum, í Sprengisandi í morgun.

Segir „glórulaust“ að heimila heimsendingu áfengis
„Fyrir fólkið okkar sem á við vanda að stríða kallar það á ýmsa snúninga að þurfa að fara í Ríkið. Kannski þarf að panta leigubíl, kannski skammast fólk sín og fer í fleiri en eitt Ríki. En þarna fær fólk heimsent áfengi, einn tveir og þrír. Þetta auðveldar áfengisinnkaup og afleiðingar geta orðið mjög slæmar.“

Enginn bjór beint frá býli strax en bruggarar brosa sínu breiðasta
Lög sem heimila sölu áfengis beint af framleiðslustað smáframleiðenda taka gildi á morgun. Reglugerð sem heimild mun byggja á er ekki tilbúin og því er ljóst að hvorki bjór né vín verður afhent neytendum beint frá brugghúsi á morgun. Reykjavíkurborg er þó þegar byrjuð að undirbúa útgáfu leyfa.

Mátti ekki taka bjór úr hillum
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt ákvörðun ÁTVR um að taka tvær tegundir bjórs, sem innflutningsfyrirtækið Dista flytur inn, úr hillum vínbúða úr gildi. Dómurinn taldi ÁTVR ekki hafa farið að lögum með því að taka mið af framlegð þegar ákveðið var hvaða bjórar fengu hillupláss.

Líst ekkert á vefsöluna og vill skerpa á lögum
Þingmaður Vinstri grænna segir flokkinn mótfallinn því að heimila vefsölu með áfengi. Réttara væri að herða löggjöfina til að koma í veg fyrir að Íslendingar geti stofnað fyrirtæki erlendis og selt áfengi inn á íslenskan markað.

Kærði Heimkaup til lögreglu vegna netverslunar
Heimkaup hófu í dag netsölu áfengis fyrst stórmarkaða. Þingmaður Sjálfstæðisflokks telur óskýran lagaramma í kringum netsölu áfengis skapa skakka stöðu á samkeppnismarkaði. Formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum segir áfengissölu Heimkaupa ólöglega og því hafi hann kært fyrirtækið til lögreglu.

„Ekkert hægt að koma í veg fyrir þessa þróun“
Heimkaup opnuðu í dag fyrir sölu á áfengi á vefsíðu sinni. Forstjóri Heimkaupa segir þetta mikil tímamót. Nú sé í fyrsta skipti á Íslandi hægt að versla sér mat og áfengi á sama stað líkt og annars staðar í Evrópu.

Heimkaup hefja áfengissölu í heimsendingu
Vefverslunin Heimkaup hefur bæst í flóru þeirra fyrirtækja sem selja áfengi yfir netið hér á landi. Verðlagning er svipuð og í ÁTVR.

Aðeins um dagdrykkju gamalmenna - af hverju eru þau að drekka?
Sú kynslóð sem hér um ræðir er kynslóð sem ólst upp við lítið sem ekkert pláss til að finna fyrir eða ræða um erfiðar tilfinningar - en urðu að sjálfsögðu fyrir áföllum og lífsins byltum.

Gefast upp á erfiðum markaðsaðstæðum og selja bruggverksmiðju
Eigendur brugghússins Steðja hafa ákveðið að selja allar sínar bruggræjur og hætta starfsemi sinni. Annar eigandinn segir að greiða þurfi fyrir að koma áfengi í hillur ÁTVR.

Hefur áhyggjur af aukinni dagdrykkju eldri borgara
Alkóhólistum fjölgar ört í hópi eldri borgara á Íslandi og tæp tvöföldun hefur orðið í dagdrykkju 61 árs og eldri, samkvæmt innlagnartölum á Vogi. Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af þróuninni og segir áfengisdýrkun ríkja í samfélaginu.

Bruggarar sjá fram á tafir: „En þessi dagsetning verður alltaf í minnum höfð“
Ólíklegt er að brugghús geti hafið sölu á áfengi út úr húsi strax og ný áfengislög taka gildi næsta föstudag. Bruggarar eru að minnsta kosti ekki bjartsýnir á að það verði enda þurfa þeir að fara í gegn um langt umsóknarkerfi hjá sýslumanni og sveitarfélögum til að mega hefja sölu. Dómsmálaráðherra vonast þó til að málunum verði veitt flýtimeðferð í stjórnkerfinu.

Ólíklegt að brugghús geti hafið sölu strax á föstudag
Smá brugghús óttast að geta ekki hafið sölu á bjór út úr húsi þann 1. júlí eins og boðað var með breytingu á áfengislögum. Bið eftir reglugerð og langt ferli leyfisveitinga í gegn um sýslumann virðast tefja málið.

Alþingi tekur höfuðið upp úr sandinum
Frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um að heimila brugghúsum smásölu áfengis á framleiðslustað var samþykkt á Alþingi í síðustu viku. Þótt breytingin sé lítil markar hún nokkur tímamót, því að í fyrsta sinn heimilar löggjafinn að einkaaðilar hafi smásölu áfengis með höndum.

Ætla að setja hámark á magn nikótíns í vindlingum
Bandaríkjastjórn hyggst leggja til staðla um hámarksmagn nikótíns í vindlingum. Tillagan er liður í áætlun ríkisstjórnar Joes Biden forseta um að fækka dauðsföllum af völdum krabbameins um helming næsta aldarfjórðunginn.

400 millilítrar: Breytingar á stærð bjórglasa ekki samsæri
Efnahagsmálin voru til umræðu í Íslandi í dag, þar sem Jón Mýrdal veitingamaður sat fyrir svörum. Allt hefur hækkað – þar á meðal bjór, en bjórinn fæst nánast hvergi ódýrari en á um 1.300 krónur þessa dagana.

Hægt að nálgast ódýrari bjór eftir lagabreytinguna
Stærsta breyting á áfengislögum frá því að bjórbanninu var aflétt var samþykkt í gær. Bruggarar eru himinlifandi með áfangann en vona að þetta sé aðeins fyrsta skrefið í átt að frjálsum áfengismarkaði á Íslandi.

ÁTVR setur bindindisfólk út í kuldann
Vínbúðin hefur hætt sölu á óáfengu víni og hyggst ekki bjóða upp á neina áfengislausa kosti í náinni framtíð. Aðstoðarforstjóri ÁTVR segir það ekki hlutverk þess að vera í samkeppni við matvöruverslanir um sölu á þessum tegundum drykkja.

Mega selja áfengi á framleiðslustað um mánaðamótin
Frumvarp um að heimila sölu á áfengi á framleiðslustað var samþykkt sem lög á Alþingi nú í kvöld. Lögin taka gildi um mánaðamótin.

Vilja henda bragðbanni út úr baggfrumvarpi Willums
Meirihluti velferðarnefndar Alþingis hefur lagt til að ákvæði í frumvarpi heilbrigðisráðherra um bann við innflutningi, framleiðslu og sölu á nikótínvörum sem innihalda bragðefni verði fellt á brott.

Á bleiku skýi
Talið er að fyrstu rósavínin eigi rætur að rekja til sjöttu aldar fyrir Krist þegar Föníkumenn sigldu frá Grikklandi til Marseille í Frakklandi og hófu víngerð. Var afurðinni lýst sem ljósum að lit og má telja líklegt að um hafi verið að ræða þrúgur með þunnu hýði sem að jafnaði gefur af sér ljósari lit.

Lækkun afsláttar í fríhöfn liður í aðgerðum gegn þenslu
Fjármála- og efnahagsráðherra lagði tillögur að breytingum á fjármálaáætlun fyrir fjárlaganefnd í dag, sem ætlað er að vinna gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu. Meðal tillagðra breytinga á tekjuhlið ríkissjóðs er lækkun á afslætti á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi í fríhöfninni.

KSÍ þurfi að ákveða hvort landsleikir séu fjölskylduviðburðir eða eitt stórt partí
Skiptar skoðanir eru um bjórsölu á landsleikjum. Sérfræðingur í forvörnum segir að KSÍ þurfi að ákveða hvort að leikirnir séu fjölskylduviðburðir eða eitt stórt partí.

Bjór seldur á knattspyrnuleik á Laugardalsvelli í fyrsta sinn í sögunni í kvöld
Bjór verður í fyrsta sinn í sögunni seldur á knattspyrnuleik á Laugardalsvelli í kvöld þegar Ísland mætir Albaníu. Markaðsstjóri KSÍ býst við mikilli stemningu í stúkunni og vonast til að sólin og bjórsalan verði til þess að fólk mæti fyrr í laugardalinn.

„Hélt að líf mitt væri búið þegar ég hætti að drekka“
Þær Bryndís Morrison og María Kaldalón eiga það sameiginlegt að hafa hætt að drekka og hafa þær báðar komist að því að lífið var þá ekki búið, þvert á það sem þær héldu að myndi gerast. Saman halda þær úti hlaðvarpinu Taka tvö og er það um edrúmennskuna.

Alþingi verði að koma áfengislöggjöf til nútímans
Í formála ársskýrslu ÁTVR skrifar forstjóri ríkisfyrirtækisins, Ívar Arndal, að ef vefverslun einkaaðila með áfengi verði leyfð á Íslandi, sé smásala innanlands í raun gefin frjáls. Dómsmálaráðherra telur nauðsynlegt að stigin verði skref í átt að frjálsari sölu áfengis.

Samkeppnin ógnar sumum!
Horfur eru á að samkeppni aukist enn á þeim markaði sem Nýja vínbúðin starfar, líkt og í nýlegri umfjöllun Viðskiptablaðsins er bent á að komi fram sem sérstakur áhættuþáttur í útboðslýsingu fyrir væntanlegt útboð Ölgerðarinnar.