Lífeyrissjóðir „
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 20 ›
„Djúpstæð óánægja“ meðal lífeyrissjóða, innlend eignasöfn gætu orðið ósjalfbær Ef það verða of miklar hömlur á fjárfestingar lífeyrissjóða í erlendum gjaldmiðlum þá er hætta á því að stórir sjóðir „neyðast til að fjárfesta í innlendum eignum umfram það sem þeir telja æskilegt“ út frá hagsmunum sinna sjóðfélaga. Við það skapast „talsverð hætta á ruðningsáhrifum og bólumyndun á innlendum eignamarkaði sem getur leitt til þess að innlend eignasöfn lífeyrissjóða verði að einhverju leyti ósjálfbær til framtíðar.“ Innherji 22.3.2022 06:01
Aukið svigrúm lífeyrissjóða til að fjárfesta erlendis „mjög jákvætt skref“ Seðlabanki Íslands telur að áform fjármála- og efnahagsráðherra um að rýmka heimildir lífeyrissjóða til að fjárfesta í erlendum eignum í áföngum allt fram til ársins 2038 séu „mjög jákvætt skref“. Það sé ljóst að þegar ferðaþjónustan tekur við sér af fullum krafti þá „munum við þurfa á lífeyrissjóðunum að halda við að kaupa þann gjaldeyri“ sem mun streyma til landsins. Innherji 21.3.2022 06:01
Tíu karlar bítast um tvö sæti í stjórn Almenna Alls hafa tíu karlar boðið sig fram til stjórnarsetu í Almenna lífeyrissjóðnum en kosið verður um tvö sæti. Viðskipti innlent 17.3.2022 14:55
Erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða „ekkert síður áhættusamar,“ meiri sveiflur í ávöxtun Raunávöxtun erlendra eigna íslensku lífeyrissjóðanna hefur sveiflast meira heldur en innlendra á árunum 2000 til 2020. Það skýrist að hluta til af því að vægi skuldabréfa, sem flöktir að jafnaði minna en hlutabréfa, er hátt í innlendum eignum sjóðanna en í tilfelli erlendu eignanna er hlutfall hlutabréfa talsvert meira. Innherji 14.3.2022 17:59
Frumvarpið „vonbrigði,“ auka þarf svigrúm til fjárfestinga erlendis „hraðar og meira“ Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna, meðal annars tveggja af þremur stærstu sjóðunum, gagnrýna að ekki sé gengið lengra í frumvarpsdrögum Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra um auknar heimildir þeirra til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum. Innherji 11.3.2022 09:00
Svigrúm lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis verður aukið verulega á næstu árum Heimildir íslensku lífeyrissjóðanna til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum verður rýmkað nokkuð á komandi árum þannig að lögbundið hámark erlendra eigna verður fært úr því að mega vera að hámarki 50 prósent af heildareignum sjóðanna upp í 65 prósent. Mun þessi breyting taka gildi í fimmtán jafn stórum skrefum á árunum 2024 til 2038. Innherji 9.3.2022 16:33
Auka aftur réttindi sjóðfélaga og heimila lífeyristöku frá 60 ára aldri Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur aukið réttindi sjóðfélaga vegna sterkrar stöðu sjóðsins í annað sinn á innan við hálfu ári. Réttindi verða aukin til viðbótar þeirri 10% hækkun sem varð í nóvember 2021 og hækka lífeyrisgreiðslur um liðlega 7%. Viðskipti innlent 9.3.2022 10:12
Rökrætt um lífeyrismál ASÍ stendur nú fyrir metnaðarfullum rökræðufundi um lífeyrismál og lífeyrissjóði á Selfossi. Þar er formönnum aðildarfélaga ASÍ, fulltrúum vinnandi fólks í stjórnum lífeyrissjóða, félögum í lífeyrisnefnd ASÍ og ungliðahreyfingunni boðið til þátttöku. Skoðun 4.3.2022 13:01
Landsvirkjun fyrir almannahag Fyrir um tveimur árum viðraði ég fyrst þá skoðun opinberlega að til greina kæmi að ríkið seldi lífeyrissjóðum landsins 30-40% hlut í Landsvirkjun en með ströngum skilyrðum. Þetta gerði ég þá sem ég formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða. Skoðun 2.3.2022 07:31
Vægi erlendra eigna stóru sjóðanna hélt enn að aukast þótt krónan hafi styrkst Hlutfall erlendra eigna tveggja stærstu lífeyrissjóða landsins, sem eru með eignir upp á samanlagt meira en 2.500 milljarða króna, jókst enn frekar á árinu 2021. Á fjórum árum hefur hlutfallslegt vægi slíkra eigna hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóði verslunarmanna (LIVE) hækkað um eða yfir 40 prósent og færst stöðugt nær lögbundnu hámarki sem kveður á um að erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða megi ekki vera meiri en sem nemur helmingi af heildareignum þeirra. Innherji 28.2.2022 19:00
Vill að ríkið selji 30 til 40 prósenta hlut í Landsvirkjun Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, telur rétt að íslenska ríkið selji stóran hlut í Landsvirkjun til lífeyrissjóða með ákveðnum skilyrðum. Innlent 24.2.2022 10:10
Fjölskyldur landsins í „hlekkjum afborgana“ Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis stéttarfélags, segir að það sé meðvituð ákvörðun stjórnvalda að stýra ekki húsnæðismarkaðnum og láta frumskógarlögmálið ráða för. Innlent 23.2.2022 14:30
Lífeyrissjóðir samþykkt að leggja Mílu til meira fé til að hraða uppbyggingu innviða Forsvarsmenn íslensku lífeyrissjóðanna, sem eru að kaupa samanlagt um fimmtungshlut í Mílu, dótturfélagi Símans, eru sammála væntanlegum meirihlutaeigenda fjarskiptafyrirtækisins – franska fjárfestingarsjóðnum Ardian – um að leggja því til meira fjármagn á komandi árum til að hraða uppbyggingu á 5G og ljósleiðarakerfi félagsins. Innherji 21.2.2022 12:33
Lífeyrissjóðir hafa bætt 6 prósentum við hlut sinn í Íslandsbanka Lífeyrissjóðir hafa bætt töluvert við hlut sinn í Íslandsbanka frá hlutafjárútboði bankans í júní á síðasta ári en á sama tíma hefur hlutdeild erlendra fjárfesta í bankanum minnkað. Þetta má lesa úr skýrslu fjármálaráðherra um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka, sem var lögð fyrir Alþingi. Innherji 11.2.2022 16:08
Stærsti hluthafinn bætir við sig í Kviku fyrir um milljarð Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti hluthafinn í Kviku, stækkaði stöðu sína í bankanum í nýliðnum mánuði þegar hann keypti samanlagt 35 milljónir hluta að nafnvirði, sem jafngildir rúmlega 0,7 prósenta eignarhlut. Innherji 2.2.2022 12:02
Lífeyrissjóðir færast nær kaupum á fimmtungshlut í Mílu Hópur íslenskra lífeyrissjóða er langt kominn með að ganga frá kaupum á um tuttugu prósenta hlut í Mílu, dótturfélagi Símans, fyrir vel yfir fimmtán milljarða króna, bæði í eigin nafni og eins í gegnum nýjan framtakssjóð í rekstri Summu sem mun sérhæfa sig í fjárfestingum í innviðum. Innherji 31.1.2022 06:01
Umboðsádrepa Umboðsskylda stjórna lífeyrissjóða er vel skilgreind að mínu mati og mér þykir það miður að Ársæll telji að í fjárfestingastefnu Birtu felist blönduð áform og umboðsvandi. Fjárfestingastefna Birtu er skrifuð fyrir sjóðfélaga, til að kalla fram umræðu og það er sjálfstætt fagnaðarefni að hún skuli vera í kastljósinu. Umræðan 28.1.2022 11:02
Ósanngjörn hækkun lífeyristökualdurs Ávöxtun lífeyrissjóða hefur verið mjög góð undanfarin þrjú ár, langt umfram 3,5% viðmiðið þeirra, ef marka má fréttir frá Landssamtökum lífeyrissjóðanna. Þetta eru jákvæðar fréttir og þó ekkert sé tryggt um framtíðina hlýtur þessi ávöxtun að gefa góða von um að 3,5% meðalávöxtun standist til lengri tíma. Skoðun 28.1.2022 07:31
Enn um umboðsskyldu Hætta er á að ESG fjárfestingar fórni hagsmunum umbjóðenda, til dæmis varðandi áhættudreifingu í safni. Fjárfestingastefna sem byggi á blönduðum ásetningi sé í raun ígildi þess að umboðsmaður láti greiðslu af hendi rakna frá umbjóðendum til þriðja manns. Það geti umboðsaðili ekki gert án þess að hafa skýrt umboð. Umræðan 25.1.2022 09:30
Hvernig langar þig að hafa það? Það segir sig sjálft að til þess að sparnaður gangi sem best er mikilvægt að forðast öll neyslulán eins og heitan eldinn. Að setja sér þá reglu að kaupa aldrei neitt og borga síðar þýðir að við getum greitt okkur sjálfum vexti í stað þess að leka mánaðarlega dýrmætu sparifé til annarra. Umræðan 19.1.2022 10:19
Fyrirtækjalánin að færast úr bönkunum til fjárfesta og lífeyrissjóða Á sama tíma og afar lítill vöxtur hefur verið í útlánum bankakerfisins til fyrirtækja um nokkurt skeið hefur atvinnulífið í auknum mæli verið að sækja sér fjármögnun til annars konar lánveitenda. Innherji 18.1.2022 13:08
Grænar fjárfestingar ekki pólitískari eða umdeildari en margt annað Lífeyrissjóðurinn Birta telur að aukin áhersla á grænar fjárfestingar á komandi árum, sem fellur undir þau UFS-viðmið sem sjóðurinn hefur sett sér í fjárfestingarstefnu sinni, geti skilað sjóðsfélögum betri ávöxtun til lengri tíma litið. Sjóðurinn stefnir að því að um átta prósent af eignasafni hans verði í slíkum fjárfestingum fyrir árslok 2030. Það er um þrisvar sinnum hærra hlutfall en er í dag. Innherji 17.1.2022 07:01
Sjóðurinn sem selur þegar honum þykir nóg um Það dró til tíðinda í síðustu viku þegar Gildi lífeyrissjóður seldi megnið af eignarhlut sínum í Skeljungi fyrir 2,3 milljarða króna. Gildi var annar stærsti hluthafinn fyrir söluna með tæp 10,7 prósent en fer nú með 2,7 prósent. Það er ekki algengt að lífeyrissjóður selji hlutfallslega svo mikið í skráðu félagi á einu bretti og þegar svo ber undir er yfirleitt sérstök ástæða að baki. Innherji 14.1.2022 17:09
Tveir af stærstu lífeyrissjóðunum minnka áherslu á ríkisbréfakaup Lífeyrissjóður verslunarmanna (LIVE) og Birta lífeyrissjóður stefna báðir að því að draga úr vægi ríkisskuldabréfa í eignasafni sínu á árinu 2022 en á sama tíma áformar LIVE, sem er næst stærsti lífeyrissjóður landsins, að auka hlutfall innlendra hlutabréfa sitt um liðlega fjórðung á milli ára. Innherji 14.1.2022 09:13
Átta prósent eignasafns Birtu verði í grænum fjárfestingum fyrir 2030 Lífeyrissjóðurinn Birta hefur sett sér það markmið að um átta prósent af eignasafni sjóðsins verði í grænum fjárfestingum fyrir lok árs 2030. Ekki verði hins vegar veittur afsláttur af arðsemismarkmiði sjóðsins við val á slíkum fjárfestingum. Innherji 13.1.2022 12:30
Vægi erlendra eigna stærstu sjóðanna nálgast óðum fjárfestingarþakið Vægi erlendra eigna tveggja stærstu lífeyrissjóða landsins, sem eru með eignir upp á samanlagt um 2.500 milljarða króna í dag, hefur hækkað um meira en þriðjung frá því í ársbyrjun 2018. Færist það stöðugt nær lögbundnu 50 prósenta hámarki sem erlendar fjárfestingar sjóðanna mega vera sem hlutfall af heildareignum þeirra. Innherji 12.1.2022 09:07
Ekki skýrt á hvaða vegferð Skeljungur er að mati Gildis Miklar breytingar hjá Skeljungi og óljós vegferð félagsins voru á meðal þeirra þátta sem höfðu áhrif á ákvörðun Gildis lífeyrissjóðs um að selja megnið af eignarhlutum sínum Skeljungi. Þetta segir Davíð Rúdólfsson, forstöðumaður eignastýringar Gildis. Innherji 11.1.2022 12:09
Heimilin sækja á ný í íbúðalán hjá lífeyrissjóðum eftir langt hlé Hrein ný lán lífeyrissjóðanna til heimila námu um 1.449 milljónum króna í nóvember á árinu 2021 og er þetta í fyrsta sinn í um næstum eitt og hálft ár sem slík sjóðsfélagalán eru meiri en sem nemur uppgreiðslum innan mánaðar. Innherji 10.1.2022 11:33
Þrjú fyrirtæki með yfir 90 prósent af kolefnisspori eignasafnsins Íslenski lífeyrissjóðurinn hefur birt ítarlegt mat á UFS-þáttum eignasafnsins en á meðal þess sem matið varpar ljósi á er að sú staðreynd að rekja má meira en 90 prósent af kolefnisspori innlenda eignasafnsins til þriggja skráðra fyrirtækja. Innherji 7.1.2022 11:17
Ríkisbréfaeign lífeyrissjóða jókst talsvert í fyrra Lífeyrissjóðir bættu talsvert við hlut sinn í ríkisskuldabréfum á árinu 2021. Sjóðirnir áttu 41 prósenta af markaðsverði útistandandi ríkisskuldabréfa í lok nóvember í fyrra samanborið við 35 prósent í lok nóvember 2020. Þetta kemur fram í nýútgefinni stefnu ríkissjóðs í lánamálum til ársins 2026. Innherji 4.1.2022 10:47