Akureyri

Hlýjast fyrir norðan í dag
Hiti á landinu í dag verður á bilinu 6-15 stig. Hlýjast verður á norðurlandi.

Vilja friða Eyjafjörð fyrir sjókvíaeldi
Bæjarstjórnin á Akureyri hefur samþykkt að leggja til við sjávarútvegsráðherra að Eyjafjörður verði friðaður fyrir sjókvíaeldi. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn vil að náttúran fái að njóta vafans.

Ætluðu bara að opna matarvagn en bættu við veitingastað eftir óvænt símtal
Það er ekki á hverjum degi sem nýr veitingastaður er opnaður á Akureyri, hvað þá í miðjum kórónuveirufaraldri, þegar almennt er verið að draga saman seglin á þessum markaði. Það stoppaði þó ekki veitingahjónin Inga Þór Arngrímsson og Nikolina Gracanin í að opna veitingastaðinn Mosa um helgina.

Látinn eftir eldsvoðann á Akureyri
Karlmaðurinn sem fluttur var með sjúkraflugi til Reykjavíkur með sjúkraflugi eftir bruna í Hafnarstræti á Akureyri í fyrradag er látinn.

Slökkvilið kallað aftur að Hafnarstræti vegna elds
Slökkvilið Akureyrar var kallað aftur að húsi við Hafnarstræti á Akureyri í morgun þegar eldur blossaði þar upp á ný.

Fjöldi áhorfenda truflaði baráttuna við eldinn
Slökkviliðið á Akureyri afhenti lögreglu brunavettvang til rannsóknar í morgun eftir að hafa vaktað íbúðarhús í alla nótt en það stóð í ljósum logum í gærkvöldi. Ekki er vitað hvernig eldurinn kviknaði en von er á rannsakendum frá Reykjavík nú síðdegis.

Fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur
Lögregla og slökkvilið á Akureyri vakta enn vettvang brunans við Hafnarstræti 37 á Akureyri.

Einn í alvarlegu ástandi eftir bruna á Akureyri
Allt tiltækt slökkvilið Akureyrar var kallað út á áttunda tímanum í kvöld þegar eldur kom upp í þriggja hæða íbúðarhúsi.

Meintir handrukkarar þurfa að víkja úr dómsal
Fjórir af fimm sakborningum í handrukkunarmáli á Akureyri þurfa að víkja úr dómsal þegar brotaþoli gefur skýrslu fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.

Vilja fá að bjóða landsmönnum út í Hrísey í sumar
Hríseyingar stefna ótrauðir á það að lokka Íslendinga út í eyjuna í sumar. Formaður Ferðamálafélags eyjunnar lofar nógu plássi og engum troðningi fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á inniveru vetrarsins.

Slakað á heimsóknabanni á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir helgi
Heimsóknir verða leyfðar með vissum takmörkunum á legudeildum sjúkrahússins á Akureyri frá og með mánudegi. Landspítalinn tilkynnti fyrr í dag að slakað yrði á takmörkunum á kvennadeild eftir helgi.

Krían komin til Grímseyjar
Fyrstu kríurnar eru mættar í Grímsey þetta sumarið en þar er alla jafna mikil kríubyggð yfir sumartímann.

Litahlaupið í Reykjavík fært til 5. september og frestað á Akureyri
The Color Run Reykjavík verður fært til 5. september 2020 og frestað á Akureyri til 2021. Ýmsar ráðstafanir verða gerðar til að uppfylla tilmæli almannavarna.

Háhýsin á Oddeyrinni verði lægri en fyrstu hugmyndir en hærri en gildandi skipulag heimilar
Hámarkshæð fyrirhugaðra bygginga á reit á Oddeyrinni á Akureyri verður sex til átta hæðir nái tillaga að breytingu á aðalskipulagi bæjarins fram að ganga. Fyrri hugmyndir að uppbyggingu á reitnum hafa miðast við allt að fimm sex til ellefu hæða fjölbýlishús

KA staðfestir komu Rutar og Ólafs
Handboltaparið Rut Jónsdóttir og Ólafur Gústafsson leika fyrir norðan næstu tvö árin.

Rut og Ólafur á norðurleið
Handboltaparið Rut Jónsdóttir og Ólafur Gústafsson leika á Akureyri á næsta tímabili.

Framkvæmdastjóri Hamra: „Lítið gagn í því að hvetja fólk til að ferðast innanlands ef það getur hvergi verið“
Tryggvi Marinósson, framkvæmdastjóri Hamra á Akureyri, segist binda vonir við að rýmkað verði á reglum um hámarksfjölda á tjaldsvæðum um næstu mánaðamót.

Hlöðuþak losnaði og gróðurhús brotnaði í storminum fyrir norðan
Lögreglan á Norðurlandi eystra sinnti á þriðja tug verkefna vegna suðvestan storms sem geisaði þar fram eftir nóttu.

Vilt þú hafa áhrif á komandi kynslóðir?
Fyrir tíu árum síðan hefði mig ekki órað fyrir því að ég sæti hér í dag, á lokametrunum í meistaranámi mínu í menntunarfræðum með áherslu á leikskólastigið, korter í að fá afhent leyfisbréf sem kennari.

Enginn Covid-sjúklingur lengur inniliggjandi á Akureyri
Síðasti sjúklingurinn sem lá inni á sjúkrahúsinu á Akureyri með Covid-19, sjúkdóminn sem kórónuveiran veldur, hefur verið útskrifaður.

Lentu 33 sinnum í hrömmunum á Alfreð og Erlingi
Gullaldarleikur KA og Vals síðan í bikarúrslitunum 1995 var endursýndur á dögunum og það bauð upp á tækifæri til að taka saman athyglisverða tölfræði úr þessum goðsagnakennda bikarúrslitaleik.

Fluttu gamalt hús frá Akureyri á Refsstaði
Þættirnir Gulli Byggir hófu göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 í gærkvöld en í þáttunum fylgist Gulli Helga með framkvæmdum hjá Íslendingum.

Dró upp hníf þegar KA bauð honum ekki samning: „Hef líklega aldrei ekið eins hratt“
Ítalskur knattspyrnumaður sem kom til reynslu hjá KA á sínum tíma tók því vægast sagt illa þegar félagið ákvað að bjóða honum ekki samning.

Lentu eins hreyfils flugvél á hæsta fjalli Norðurlands
Það er ekki á hverjum degi sem flugvélum er lent á einum af tíu hæstu tindum landsins. Félagarnir Kristján Þór Kristjánsson og Fáfnir Árnason gerðu þó tíunda hæsta fjall landsins, og hæsta fjall norðurlands, Kerlingu að flugbraut sinni í gær.

Netflix beinir eyrum sínum að Akureyri
Bandaríska streymisveitan Netflix sendir nú verkefni í gríð og erg til Akureyrar. Sinfóníuhljómsveitin Sinfonia Nord á Akureyri, er ein af fáum, ef ekki sú eina í heiminum, sem getur sinnt kvikmyndatónlistarverkefnum þessa dagana.

Stýrir bæjarstjórnarfundum frá eldhúsborðinu
Bæjar- og sveitarstjórnir víða um land hafa þurft að bregðast við kórónuveirufaraldrinum með því að funda í gegnum netið. Ýmsir kostir, en líka gallar, fylgja fyrirkomulaginu að mati forseta bæjarstjórnar Akureyrar.

N1 mótið enn á dagskrá en með gjörbreyttu sniði
Íþróttafélög víða um land leita nú allra leiða til að útfæra íþróttamót fyrir börn í sumar til að þau samræmist reglum almannavarna vegna heimsfaraldursins sem geisar. Mótin hafa gríðarlega þýðingu, bæði fyrir börnin sem vilja fá að sýna hvað í þeim býr og bæjarfélögin.

Skátar fresta mótum í sumar
Landsmóti skáta, sem fram átti að fara að Hömrum á Akureyri í sumar, hefur verið frestað um ár.

Dr. Ögmundur stýrir Fiskistofu
Ögmundur Knútsson hefur verið skipaður Fiskistofustjóri til næstu fimm ára.

„Þór og KA eru ekki að fara að sameinast“
Stóru íþróttafélögin á Akureyri, Þór og KA, eru ekki á leið í eina sæng. Hins vegar er vilji fyrir því að fækka félögunum fyrir norðan og setja þau undir hatt Þórs og KA.