
Stjarnan

Stjarnan í átta liða úrslit eftir öruggan sigur
Stjarnan vann öruggan tíu marka sigur gegn FH sem leikur í Grill66 deild kvenna er liðin mætturs í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarsins í kvöld, 28-18.

Hildigunnur Ýr æfði með Danmerkurmeisturum HB Köge
Stjörnustúlkan Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir var við æfingar hjá Danmerkurmeisturum HB Köge í síðustu viku. Lék hún meðal annars tvo æfingaleiki með liðinu sem stefnir á að verja titil sinn.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 90-79 | Stjarnan hleypti KR nálægt sér en aldrei of nálægt
KR heimsótti Mathús Garðabæjarhöllina í kvöld og mætti þar heimamönnum í Stjörnunni. Heimamenn fóru með ellefu stiga sigur og unnu þar með sinn þriðja sigur í röð. Stjarnan fór upp í fimmta sæti deildarinnar en KR er áfram í tíunda sæti en á leik og leiki til góða á liðin fyrir ofan sig.

Segir sinn mann hafa hagað sér eins og kjána: „Hann á ekkert að vera rífa kjaft hérna“
„Fyrri hálfleikurinn var skelfilegur, við komum ótrúlega flatir og orkulitlir út í leikinn. Þeir fengu að gera það sem þeir vildu á meðan við virkuðum mjög vanstilltir,“ sagði Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, eftir tap gegn Stjörnunni í Subway-deild karla í kvöld.

Arnar með sneið á KR: Ekki í fyrsta sinn sem ég sé þá beita þessari taktík
„Ég er ánægður að sigra, mér fannst við góðir í fyrri hálfleik en fórum svolítið að verjast í seinni hálfleik, vorum passívir og klaufar oft á tíðum. En það er alltaf gott að vinna KR,“ sagði Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar eftir ellefu stiga sigur á KR í kvöld.

Hafa ekki unnið KR í deildinni í meira en 26 mánuði
Stjarnan tekur á móti KR í stórleik kvöldsins í Subway-deild karla í körfubolta og það er óhætt að segja að heimamenn séu búnir að bíða lengi eftir sigri á Vesturbæingum.

Sváfu aftur á verðinum í Garðabænum: Leikurinn gekk í rúmar fimmtíu sekúndur án þess klukkan færi í gang
Tímavörðunum í TM-höllinni í Garðabænum varð á í messunni þegar Stjarnan tók á móti KA í sextán liða úrslitum Coca Cola bikars karla í handbolta í gær.

Patrekur: Það er ömurlegt að tapa, það breytist ekki
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum svekktur yfir að hans lið sé fallið úr leik í bikarkeppninni í handbolta.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KA 25-27 | Stjarnan úr leik
Stjarnan er úr leik í Coca Cola bikarnum eftir tap í Garðabænum í kvöld.

Bjarni með stjörnur í augunum er hann fylgdist með einvígi Óðins og Dags
Bjarni Fritzson skemmti sér vel við að horfa á hornamennina frábæru Óðin Þór Ríkharðsson og Dag Gautason leika listir sínar í viðureign KA og Stjörnunnar í Olís-deild karla á sunnudaginn.

Jónatan Magnússon: Vonandi er þetta það sem koma skal
„Þetta er sterkur sigur hjá okkur, mikilvægur og ég er því mjög ánægður,“ sagði Jónatan Magnússon þjálfari KA eftir 25-24 sigur á Stjörnunni í KA heimilinu í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KA/Þór 25-27 | Meistararnir stöðvuðu sigurgöngu Stjörnunnar
KA/Þór fór með sigur af hólmi gegn Stjörnunni í Olís-deild kvenna í dag er liðin mættust en lokatölur leiksins voru 25-27.

KR og Stjarnan með stórsigra
KR og Stjarnan unnu stórsigra í Lengjubikar karla og kvenna í fótbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 74-78 | Endurkomusigur hjá Stjörnunni gegn Valsmönnum
Það var hörkuleikur í Origo-höllinni í kvöld þar sem mættust stálin stinn, Valur og Stjarnan. Leikurinn var jafn framan af en eftir sterkan 3. leikhluta heimamanna þar var allt útlit fyrir Valssigur. Stjörnumenn voru þó ekki af baki dottnir, skelltu í lás í fjórða leikhluta og unnu góðan sigur, 74-78.

Stjarnan tók mikilvæg stig af HK
Stjarnan vann góðan þriggja marka sigur er liðið tók á móti HK í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld. Lokatölur urðu 27-24, en Stjarnan er nú með fimm stiga forskot á HK í sjötta sæti deildarinnar.

Patrekur: Algjörir klaufar að hafa ekki unnið þennan leik
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir tapið fyrir Haukum í kvöld. Leikurinn var í járnum allan tímann en Haukar tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Haukar 29-33 | Gestirnir skoruðu síðustu fjögur mörkin
Haukar unnu Stjörnuna, 29-33, í Olís-deild karla í kvöld. Leikurinn var jafn lengst af en Haukar sigu fram úr undir lokin og skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins.

Áhorfandi nældi í tæknivillu á þjálfara Stjörnunnar
Skondið atvik átti sér stað í leik Stjörnunnar og Þórs frá Akureyri sem fram fór í Garðabænum síðastliðinn fimmtudag þegar áhorfandi varð þess valdandi að þjálfari Stjörnunnar fékk tæknivillu.

Stjarnan fær liðsstyrk frá Fulham
Stjarnan hefur fengið varnarmanninn Þorsteinn Aron Antonsson á láni frá Fulham til eins árs.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þór Ak. 112-84 | Stjörnumenn ekki í vandræðum með botnliðið
Stjarnan vann öruggan 28 stiga sigur er liðið tók á móti botnliði Þórs frá Akureyri í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 112-84.

Hilmar Smári: Við vitum hverjir við erum og hvar við viljum vera
Hilmar Smári Henningsson var að öðrum ólöstuðum besti maður vallarins þegar Stjarnan lagði Þór frá Akureyri, næsta auðveldlega, 112-84 í 15. umferð Subway deildar karla í körfuknattleik. Stjörnumenn voru í raun og veru búnir að tryggja sigur sinn í hálfleik en góð vörn skóp sigurinn að mati Hilmars.

Ágúst ánægður með óvæntustu viðbót Stjörnuliðsins
Stjarnan sigraði Breiðablik 3-1 í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins á fimmtudagskvöld. Þar spilaði Sindri Þór Ingimarsson en hann gekk í raðir Stjörnunnar frá 3. deildarliði Augnabliks fyrir ekki svo löngu.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Stjarnan 22-28 | Nýr þjálfari landaði Stjörnusigri í sínum fyrsta leik
Stjarnan vann magnaðan sex marka sigur á Haukum í Olís-deild kvenna í fyrsta leik sínum undir stjórn Hrannars Guðmundssonar. Haukar höfðu átt góðu gengi að fagna á heimavelli það sem af er tímabils en Stjarnan lét það ekki á sig fá í dag.

Umfjöllun: Þór Þ. - Stjarnan 88-75 | Íslandsmeistararnir aftur á sigurbraut
Þór Þorlákshöfn komst aftur á sigurbraut eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum. Heimamenn spiluðu frábærlega í seinni hálfleik sem skilaði sér í þrettán stiga sigri 88-75.

Stjarnan lagði meistarana í úrslitum | Leiknir tók þriðja sætið í átta marka leik
Stjarnan bar sigur úr býtum er liðið mætti Breiðablik í úrslitum Fótbolta.net mótsins í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur urðu 3-1, en Blikar unnu mótið í fyrra. Þá vann leiknir ÍA 5-3 í leiknum um þriðja sætið fyrr í kvöld.

Stjarnan hefur fundið þjálfara
Stjarnan hefur lokið leit sinni að eftirmanni Rakelar Daggar Bragadóttur sem þjálfara kvennaliðs félagsins í handbolta.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Keflavík 98-95 | Stjarnan kláraði toppliðið í framlengingu
Stjarnan vann góðan þriggja stiga sigur er liðið tók á móti toppliði Keflavíkur í framlengdum leik í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld.

Turner III: Það er blessun að vera hérna og fá að taka þátt í baráttunni
Robert Eugene Turner III átti rosalega góðan leik fyrir Stjörnumenn sem lögðu Keflvíkinga að velli í 13. umferð Subway deildar karla fyrir í kvöld. Lokatölur voru 98-95 eftir framlengdan og kaflaskiptan leik. Turner III skoraði 42 stig fyrir sína menn, náði í 15 fráköst og gaf sex stoðsendingar. Þetta skilar 50 framlagspunktum og það verður að teljast hrikalega góð frammistaða.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Stjarnan 88-77 | Heimamenn fara upp úr fallsæti
ÍR vann góðan 11 sigur á Stjörnunni í Subway-deild karla í kvöld, lokatölur 88-77. Sigurinn lyftir heimamönnum upp úr fallsæti.

Rakel Dögg hætt með Stjörnuna
Rakel Dögg Bragadóttir og Stjarnan hafa komist að samkomulagi um starfslok. Rakel Dögg verður því ekki lengur þjálfari liðsins í Olís-deild kvenna í handbolta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjörnunni.