Fasteignamarkaður
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 28 ›
Minnir á að fasteignagjöld íbúðarhúsnæða eru lægst í Reykjavík Dagur B. Eggertsson, starfandi borgarstjóri, segir að fasteignagjöld íbúðarhúsnæða í Reykjavík séu þau lægstu á Íslandi. Álagning skatta verður ekki ákveðin fyrr en í haust við gerð fjárhagsáætlunar og því ekki ákveðin við myndun meirihluta í borginni. Innlent 1.6.2022 12:19
Ekki eðlilegt að nýr sólpallur hækki skatt á nágrannann Sveitarstjóri Ölfuss segir fasteignagjöld ósanngjarnan skatt í eðli sínu og telur að skoða þurfi tekjumódel sveitarfélaga. Lækka þurfi skatta á heimilin í landinu. Innlent 1.6.2022 11:43
Vinnur fasteignasalinn þinn fyrir þig? Í fasteignaviðskiptum takast á þrjú ólík hagsmuna sjónarmið: Hagsmunir kaupanda, hagsmunir seljanda og hagsmunir fasteignasala. Hagsmunir seljanda og kaupanda skarast eðlilega þar sem þeir sitja sitthvoru megin við samningaborðið. En hvar liggja hagsmunir fasteignasala? Skoðun 1.6.2022 10:30
Hyggjast mörg hver lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla mörg hver að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatta til að bregðast við hækkun fasteignamatsins sem kynnt var í gær en gjöldin hafa aldrei áður hækkað jafn mikið í einu skrefi frá bankahruninu 2008. Innlent 1.6.2022 07:15
Hækkunin er sú mesta frá hruni Á einu ári hefur fasteignamat húsnæðis hækkað um nærri tuttugu prósent. Hækkunin er sú mesta frá hruni. Forseti ASÍ segir á ábyrgð sveitarfélaga að hækkun fasteignamats verði ekki til að rýra kjör almennings. Innlent 31.5.2022 17:47
Fasteignamat tekur mikið stökk á milli ára Þjóðskrá hefur gefið út fasteignamat fyrir árið 2023. Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 19,9 prósent á milli ára, sem er umtalsvert meiri hækkun á milli ára en undanfarin ár. Innlent 31.5.2022 13:33
Mikill vöxtur í fyrirtækjalánum utan hins hefðbundna bankakerfis Stöðugur vöxtur er í lánum fagfjárfestasjóða til fyrirtækja á sama tíma og bankakerfið hefur einnig tekið við sér í að stórauka á ný lán til atvinnulífsins. Frá því í ársbyrjun 2021 hafa heildarútlán slíkra sjóða, sem eru einkum fjármagnaðir af lífeyrissjóðum, til atvinnufyrirtækja aukist um 60 prósent og námu þau 155 milljörðum í lok apríl. Innherji 31.5.2022 08:58
Mesta hækkun á leiguverði í tæp tvö ár Hækkun á leiguverði á höfuðborgarsvæðinu milli mánaða mældist 2,1 prósent í apríl og er um að ræða mesta hækkunin síðan í júní 2020. Viðskipti innlent 30.5.2022 14:33
Hvað kostar að selja fasteign? Það er fagnaðarefni þegar bent er á hluti sem eru óhagstæðir neytendum og á það ekki síst við um samsetningu og fjárhæð þóknunar fasteignasala nú þegar hækkanir á fasteignaverði slá met í hverjum mánuði. Skoðun 24.5.2022 10:00
Nýir stjórnendur SKEL og Kristín Erla koma inn í stjórn Kaldalóns Á hluthafafundi Kaldalóns síðar í vikunni, sem var boðað til að beiðni SKEL fjárfestingafélags, stærsta hlutahafans, verður stjórnarmönnum fasteignafélagsins fjölgað úr þremur í fimm. Nýráðnir stjórnendur SKEL, þeir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason og Magnús Ingi Einarsson, munu báðir koma inn í stjórn Kaldalóns en þeir hefja störf hjá fjárfestingafélaginu í byrjun júlí. Innherji 23.5.2022 15:10
Blær stórtíðindi á húsnæðismarkaði ASÍ, BSRB og VR koma að stofnun nýs íbúðafélags sem er ætlað að fjölga möguleikum í byggingu hagkvæms íbúðarhúsnæðis og gera fleiri stéttarfélögum kleift að byggja slíkar íbúðir. Nýja félagið hefur hlotið nafnið Blær og er systurfélag Bjargs íbúðafélags. Innlent 23.5.2022 14:09
Sjálftaka fasteignasala – Taka tvö Fyrir viku skrifaði ég grein (sjá hér) um söluþóknanir fasteignasala, sem mér þykja svo háar að ég kallaði þær sjálftöku. Í framhaldi hefur spunnist umræða sem ég tel tilefni til að bregðast við og ætla því að greina stöðuna nánar. Skoðun 23.5.2022 08:00
Endurnýjaðir leigusamningar Ölmu ekki hækkaðir umfram verðbólgu Stjórn Ölmu íbúðafélags hefur ákveðið að út þetta ár verði endurnýjaðir leigusamningar félagsins ekki hækkaðir umfram hækkun vísitölu neysluverðs en hún mælist núna 7,2 prósent. Innherji 19.5.2022 18:24
Fasteignasalar fúlir út í doktorsnema vegna tals um feita söluþóknun Fasteignaverð er í hæstu hæðum. Afleidd áhrif eru þau að söluþóknun fasteignasala, sem er prósentutala, hefur þar með rokið upp úr öllu valdi. Fasteignasalar margir vilja þó ekki kannast við að þeir séu að maka krókinn. Innlent 19.5.2022 11:31
Árstaktur íbúðaverðs mælist enn yfir 22 prósentum Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7 prósent á milli mánaða samkvæmt nýbirtri mælingu Þjóðskrár fyrir aprílmánuð en til samanburðar nam hækkunin í mars 3,1 prósentum. Innherji 17.5.2022 16:07
Hækkað úr 80 milljónum í 129 Ásett verð raðhúsaíbúðar í Árbæ í Reykjavík hefur hækkað um ríflega sextíu prósent frá því í febrúar 2019 og farið úr 79,9 milljónum í 129,3. Þar af hefur eignin hækkað um rúmar 9 milljónir króna frá því í mars síðastliðnum. Fasteignasali segir alla sammála um að fasteignamarkaðurinn sé kominn úr böndunum. Viðskipti innlent 17.5.2022 09:00
15.000kr á fermetra – Sjálftaka fasteignasala Fasteignaverð er mikið rætt á Íslandi en lítið er rætt um sjálftöku fasteignasala í formi söluþóknana. Skoðun 16.5.2022 10:00
Stéttaskipting í Reykjavík Árið 2018 var ég í fullu námi með barn og kærasta horfandi á vonlausan fasteignamarkað. Þar sem annað hvort ég eða kærastinn þyrftum hætta í námi og fara að vinna til að geta keypt okkur íbúð eða hreinlega sætta okkur við það að festast á leigumarkaðnum að námi loknu. Skoðun 10.5.2022 09:01
Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja frysta fasteignaskatta Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík lofar að frysta fasteignaskatta nái flokkurinn að mynda meirihluta í borginni eftir kosningar. Oddviti flokksins segir útspilið viðbragð við verðlagsþróun og vaxtahækkun Seðlabankans í vikunni. Óeðlilegt sé að sveitarfélög hafi fjárhagslega hvata af hækkandi húsnæðisverði. Innherji 6.5.2022 06:00
Átta Íslendingar sagðir eiga eignir í Dúbaí Átta Íslendingar eiga fasteignir í Dúbaí ef marka má gögn sem lekið var til norska viðskiptamiðilsins E24. Að sögn miðilsins er þetta í fyrsta sinn sem greinargott yfirlit fæst yfir eigendur lúxusfasteigna, íbúða og skrifstofubygginga í furstadæminu sem hefur lengi verið þekkt sem leikvöllur ríka fólksins. Viðskipti erlent 5.5.2022 17:09
Arion áformar stórfellda uppbyggingu á Blikastöðum Arion banki skrifar í dag undir samkomulag við Mosfellsbæ um uppbyggingu á Blikastaðalandi sem miðar við að þar rísi allt að 3.700 íbúðir. Þetta kom fram í uppgjörskynningu bankans í morgun. Innherji 5.5.2022 12:09
Sögulegur vöxtur í óverðtryggðum lánum lífeyrissjóða til heimila Stöðug ásókn er hjá heimilunum í að taka óverðtryggð íbúðalán hjá lífeyrissjóðunum og hefur vöxturinn margfaldast á undanförnum mánuðum eftir að sjóðirnir fóru að bjóða upp á umtalsvert betri kjör á slíkum lánum en viðskiptabankarnir. Innherji 5.5.2022 11:07
Vonsvikinn með áhrif hertra skilyrða á fasteignaverð Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir vonbrigði að hert lánþegaskilyrði hafi ekki enn haft tilætluð áhrif á fasteignamarkaðinn. Þetta kom fram í máli seðlabankastjóra á kynningarfundi peningastefnunefndar bankans í morgun. Innherji 4.5.2022 12:26
Áhrif hækkandi matvælaverðs eiga eftir að „koma inn af fullum þunga“ Verðbólguhorfurnar eru dökkar fyrir næstu mánuði og útlit er fyrir að áhrif hærra matvælaverðs, sem hefur hækkað um 5,2 prósent síðasta árið, muni þá koma inn af fullum þunga. Þær miklu verðhækkanir sem hafa orðið á mörgum hrávörum á heimsvísu að undanförnu, meðal annars á sólblómaolíu, hveiti og sojabaunum, eru vart komin inn í matvælaverðið hér á landi. Innherji 3.5.2022 13:07
Tekst að kæla heitasta markað landsins? Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,1% í mars sem er næstum því fjórföld hækkun m.v. meðalmánuðinn undanfarin 7 ár. Skoðun 2.5.2022 07:31
Söguleg hækkun á aðföngum sé forsendubrestur sem gæti hægt á uppbyggingu Vísitalan fyrir innflutt byggingarefni hækkaði um 5,5 prósent í mánuðinum og verð á stáli hefur fjórfaldast á skömmum tíma. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir að sögulegar hækkanir á aðföngum séu í mörgum tilvikum forsendubrestur. Ríki og sveitarfélög verði að grípa inn í til að ófremdarástand á húsnæðismarkaði versni ekki enn meira. Viðskipti innlent 27.4.2022 14:22
Verðhækkun á innfluttu byggingarefni brýst fram með látum Vísitalan fyrir innflutt byggingarefni hækkaði um 5,5 prósent í apríl en ekki hefur sést viðlíka hækkun á verði innflutts byggingarefnis frá því að Hagstofan byrjaði að birta sundurliðun byggingarvísitölunnar í byrjun árs 2010. Innherji 27.4.2022 06:00
Arion: Hækkanir íbúðaverðs gætu reynst þrálátari en árið 2017 Ný verðbólguspá Arion banka gerir ráð fyrir því að aprílmæling Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs sýni 7,1 prósenta verðbólgu samanborið við 6,7 prósent í mars. Samkvæmt spánni verður verðbólga yfir 7 prósentum í sumar. Innherji 22.4.2022 09:20
Íbúðaverð stigmagnast þvert á væntingar Íbúðaverð hækkaði um 3,1 prósent á milli febrúar og mars. Verðhækkanir milli mánaða hafa aukist á síðustu mánuðum, þvert á væntingar. Viðskipti innlent 20.4.2022 10:29
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að hækka Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 869,9 stig í mars og hækkar um 3,1 prósent milli mánaða. Þetta er mesta hækkunin á einum mánuði frá því í mars 2021, þegar vísitalan hækkaði um 3,3 prósent milli mánaða. Viðskipti innlent 19.4.2022 17:41