Íslenska óperan

Stjórnar hljómsveitinni og syngur óperu á sama tíma
Óperudagar fara nú fram í sjötta sinn í Hörpu en lokahátíð þeirra fer fram á morgun. Þar mun 21 árs gömul tónlistarkona frumflytja þrjú íslensk verk. Hún stjórnar ekki aðeins hljómsveitinni heldur syngur hún á sama tíma.

Klassískir söngvarar vilja að fjárveitingar til Íslensku óperunnar verði stöðvaðar
Fagfélag klassískra söngvara á Íslandi, Klassís, hefur skorað á Lilju Dögg Alfreðsdóttur, ráðherra menningarmála, að stöðva fjárveitingar til Íslensku óperunnar og ítreka vantraust sitt á stjórn og óperustjóranum Steinunni Birnu Ragnarsdóttur.

Stjórn Íslensku óperunnar hefur greitt Þóru
Óperusöngkonan Þóra Einarsdóttir segist ekkert hafa heyrt frá stjórn Íslensku óperunnar vegna dóms Landsréttar í máli þeirra. Stjórnin sagði í tilkynningu í gær að búið væri að greiða henni vangoldin laun og ræða við fulltrúa söngvara um framtíðina.

Íslenska óperan hyggst ekki áfrýja dómi Landsréttar
Stjórn Íslensku óperunnar hefur ákveðið að una dómi Landsréttar í máli Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni. Fram kemur í tilkynningu frá stjórninni að óperan hafi þegar greitt Þóru og öðrum söngvurum sýningarinnar Brauðkaup Fígarós í samræmi við niðurstöðu dómsins.

Þóru létt eftir að hafa lagt Óperuna í launadeilu fyrir Landsrétti
Landsréttur hefur snúið við niðurstöðu héraðsdóms í máli Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni, Þóru í vil. Þóra, sem er ein fremsta óperusöngkona þjóðarinnar, höfðaði málið vegna greiðslu vangoldinna launa. Dómurinn var kveðinn upp í Landsrétti í dag.

Listamannalaun, klassískir söngvarar og sviðslistafólk
Ég óska öllum listamönnum sem hlutu úthlutun í ár hjartanlega til hamingju sem og þjóðinni allri! Það verður spennandi að fylgjast með flottu listrænu starfi í öllum listgreinum á árinu og ljóst er að við munum öll góðs af njóta.

Íslenska óperan í fyrsta sinn á Akureyri
Íslenska óperan leggur land undir fót helgina 13.-14. nóvember þegar hún setur upp La Travita í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Það verður í fyrsta sinn sem ópera í fullri stærð er sett upp í höfuðstað Norðurlands.

Starfsemi Íslensku óperunnar sögð rýr: „Er þetta fólk allt saman á fullu kaupi?“
Jón Viðar Jónsson, fræðimaður og gagnrýnandi, furðar sig á takmarkaðri starfsemi Íslensku óperunnar og varpar fram krefjandi spurningum um starfsemina þar sem honum þykir klén.

Nefnd um þjóðaróperu klofnaði: Vinnan heldur áfram innan ráðuneytisins
Ekki var full samstaða innan nefndar um stofnun þjóðaróperu. Meirihlutinn vildi að lagt yrði fram frumvarp til breytinga á lögum um sviðslistir og stofnun þjóðaróperu lögfest en minnihlutinn skilaði séráliti.

Mál Þóru gegn Óperunni fær áfrýjunarleyfi hjá Landsrétti
Landsréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni söngkonunnar Þóru Einarsdóttur í máli hennar á hendur Íslensku óperunni vegna meintra vangoldinna launa. Óperan var sýknuð í héraði en málið fær nú að fara fyrir Landsrétt.

Þóra áfrýjar málinu gegn Íslensku óperunni
Þóra Einarsdóttir óperusöngkona hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 8. janúar, þar sem Íslenska óperan var sýknuð af kröfu Þóru um vangoldin laun vegna þátttöku hennar í uppsetningu óperunnar á Brúðkaupi Fígarós árið 2019.

„Óperan er alvaldur hér,“ segir formaður FÍH
„Það blasir við mér að dómurinn tekur þá afstöðu að þarna hafi verksali og verkkaupi gert með sér samning en við munum skoða það í framhaldinu hvort við áfrýjum þessu,“ segir Gunnar Hrafnsson, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna, um nýfallinn dóm í máli söngkonunnar Þóru Einarsdóttur gegn Íslensku óperunni.

Söngvarar lýsa yfir vantrausti og bera óperustjóra þungum sökum
Félagsfundur Klassís, fagfélags klassískt menntaðra söngvara á Íslandi, hefur lýst yfir vantrausti á stjórn og óperustjóra Íslensku óperunnar, Steinunni Birnu Ragnarsdóttur, „vegna stjórnunarhátta stofnunarinnar á undanförnum árum.“

Þóra beið lægri hlut í launadeilu við Óperuna
Íslenska óperan hefur verið sýknuð í máli sem söngkonan Þóra Einarsdóttir höfðaði á hendur Óperunni vegna meintra vangoldinna greiðslna. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málskostnaður fellur niður.

Biðla til yfirvalda að finna lausnir fyrir listalífið
Samtök atvinnuveitenda í sviðslistum og tónlist, SAVÍST, hvetja stjórnvöld til þess að leita leiða til að starfsemi lista- og menningarstofnana geti farið aftur af stað.

Formenn samtaka listamanna telja svínað á sínu fólki
Formenn sjö stéttarfélaga listamanna hafa kallað eftir samningum vegna endursýninga og streymis á efni.

Ríkisstjórnin styrkir Íslensku óperuna um fjórar milljónir króna
Féð fært af sameiginlegu ráðstöfunarfé ríkistjórnarinnar.

Kanni kynbundinn launamun söngvara Íslensku óperunnar
Formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna segir kjarasamninga hafa verið brotna í samningum Íslensku óperunnar við söngvara sem tóku þátt í sýningunni Brúðkaup Fígarós. Æfingalaun kvenkyns söngvara hafi verið afar lág. Verið sé að snúa niður kjör þeirra sem í raun beri uppi árangur Óperunnar.

Deilt um kaup fyrir Brúðkaup Fígarós
Íslenska óperan og söngvarar í Brúðkaupi Fígarós deila um kaup og kjör þótt sýningum á verkinu sé lokið. Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri segist vongóð um lausn á deilunni. Hún sé að einhverju leyti byggð á misskilningi.