Málefni fatlaðs fólks
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 14 ›
Milliflutningar hjá Félagsbústöðum taki lengri tíma þegar fólk hafi sérstakar óskir Framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir nóg til af íbúðum hjá félaginu fyrir fólk með hreyfihömlun. Erfitt sé að breyta íbúðum og auka aðgengi, sérstaklega gera úrbætur á lyftuaðstöðu, þegar um íbúð í fjölbýli þar sem eru fleiri eigendur er að ræða. Innlent 20.7.2023 16:10
„Auðvitað ekki boðlegt að maðurinn þurfi að skríða inn á klósett“ Formaður Öryrkjabandalagsins segir óboðlegt að íbúðir Félagsbústaða séu ekki útbúnar fyrir fólk sem notast við hjólastóla. Mál manns sem er í hjólastól og fékk úthlutaða íbúð án hjólastólaaðgengis sýni skilningsleysið sem ríki innan kerfisins. Innlent 17.7.2023 12:31
Móðir fatlaðs barns gat ekki lagt í bílastæði hreyfihamlaðra vegna Porsche-bifreiðar Porsche-bifreið með einkanúmerinu EXIT var lagt í bílastæði hreyfihamlaðra við Fjarðartorg í Hafnarfirði í minnst eina og hálfa klukkustund í gær. Móðir fatlaðs drengs gat ekki nýtt sér stæðið vegna þessa. Innlent 15.7.2023 16:05
Nokkrir boðið fram milljónir til að færa fjölskyldunni húsið aftur Einstaklingar hafa sett sig í samband við bæjarráð Reykjanesbæjar og boðist til að leggja fram fjármuni til kaupa á húsi ungs öryrkja sem missti heimili sitt á nauðungaruppboði. Nýr eigandi hefur ekki sýnt boðinu áhuga. Innlent 5.7.2023 14:01
Heyrnarlausir pennasölumenn reyndust í raun heyrnarlausir Pennasölumenn á Selfossi eru heyrnarlausir Úkraínumenn sem höfðu fengið heimild til að selja í nafni Félags heyrnarlausra. Lögreglunni bárust margar tilkynningar frá borgurum. Innlent 3.7.2023 23:55
Sumar, sól og stuð hjá íbúum Skálatúns Í dag fögnuðu íbúar Skálatúns því að Mosfellsbær hafi tekið yfir þjónustu klasans. Voru grillaðar pylsur handa gestum og tóku íbúarnir vel á móti fréttastofu. Lífið 3.7.2023 20:34
„Við þurfum að setja upp fötlunargleraugun“ Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir mál hreyfihamlaðrar konu sem hefur ítrekað verið hafnað um atvinnutækifæri á grundvelli fötlunar hennar ekki vera einsdæmi. Fordómar ríki í samfélaginu sem þurfi að uppræta. Innlent 2.7.2023 16:30
Fær ekki vinnu vegna fötlunar sinnar Hreyfihömluð kona á fertugsaldri sem hefur verið atvinnulaus í tæpt ár segir atvinnurekendur ítrekað hafa hafnað henni um starf á grundvelli fötlunar hennar. Hún segir málið skammarlegt og skrítið. Innlent 1.7.2023 20:10
„Hver mánuður sem einstaklingur þarf að bíða eftir að fá að hefja sitt líf er mjög alvarlegt mál“ Hátt í fimmtíu nýja NPA samninga vantar á þessu ári til að ríkið fylgi skuldbindingum sínum sem kveðið er á um í lögum. Formaður NPA miðstöðvarinnar segir fjölmarga fatlaða einstaklinga þurfa að bíða mánuðum saman eftir að hefja sjálfstætt líf. Innlent 30.6.2023 13:01
Maðurinn muni ekki koma nálægt reiðskólanum framar Þroskaskertur maður, sem er sagður hafa brotið kynferðislega á níu ára stúlku með fötlun í sumarbúðunum í Reykjadal í fyrrasumar, mun ekki koma nálægt starfsemi Reiðskóla Reykjavíkur lengur. Hann var aldrei starfsmaður skólans en aðstoðaði við umhirðu hrossa eftir hádegi og segir skólinn hann aldrei hafa verið einan með nemendum. Innlent 29.6.2023 13:01
Útburði fjölskyldunnar frestað þar til í ágúst Útburði pólskrar fjölskyldu sem missti heimili sitt á nauðungaruppboði hefur verið frestað um rúman mánuð. Til stóð að útburðurinn færi fram í fyrramálið en frestunin er í samráði við nýjan eiganda. Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir þetta mjög jákvætt þar sem tími gefist nú til að finna mögulegar lausnir á málinu. Innlent 29.6.2023 10:13
Maður sem er sagður hafa brotið á stúlku vinnur enn í kringum börn Þroskaskertur maður, sem er sagður hafa brotið kynferðislega á níu ára stúlku með fötlun í sumarbúðunum í Reykjadal í fyrrasumar, vinnur í dag í reiðskóla þar sem börn sækja námskeið. Innlent 28.6.2023 23:28
Ofbýður umræðan um bróður sinn: „Mynduð þið gefa lífið ykkar fyrir eitt hús?“ Bróðir hins 23 ára gamla Jakubs Polkowski sem missti hús sitt í Reykjanesbæ á nauðungaruppboði segir erfitt að fylgjast með umræðunni um bróður sinn sem hafi ungur þurft að þola mikla erfiðleika í kjölfar læknamistaka. Innlent 28.6.2023 22:10
Útgerðarmaðurinn hyggst ekki draga kaupin til baka Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segist óska þess að sýslumaður hefði upplýst sig um stöðu ungs manns sem borinn verður út úr skuldlausi húsi sínu á föstudag. Útgerðarmaður sem keypti húsið á þrjár milljónir á nauðungaruppboði ætlar ekki að endurskoða kaupin. Innlent 28.6.2023 20:12
„Þessi fjölskylda er búin að fá mörg, mörg, mörg tækifæri“ Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir mál ungs fatlaðs manns sem bera á út úr húsi sínu eftir að það var selt á nauðungarsölu, fjölskylduharmleik. Þingmenn sem gagnrýnt hefðu vinnubrögð sýslumanns harðlega, ættu að líta sér nær. Innlent 28.6.2023 12:43
Skora á kaupandann að hætta við kaupin Öryrkjabandalag Íslands skorar á sýslumannsembættið á Suðurnesjum og sveitarfélagið Reykjanesbæ að endurskoða ákvörðun sem leiddi til þess að einbýlishús ungs öryrkja var selt tugmilljónum undir markaðsverði á nauðungaruppboði. Þá skora samtökin á kaupanda hússins að hætta við kaupin. Innlent 28.6.2023 11:40
Borinn út eftir að sýslumaður seldi einbýlið á þrjár milljónir Hús ungs öryrkja í Keflavík, sem metið er á 57 milljónir króna, var selt á nauðungaruppboði sýslumanns á þrjár milljónir vegna vanskila á húsnæðisgjöldum. Hann er nú allslaus og bíður útburðar á föstudag. Vinnubrögð sýslumanns, sem segist aðeins vera að framfylgja lögum, eru harðlega gagnrýnd í ljósi þess að maðurinn virðist ófær um að gæta hagsmuna sinna. Innlent 27.6.2023 22:03
Ekki getað aðhafst í máli Áslaugar Háskóli Íslands harmar að tilkynnt hafi verið að Áslaug Ýr Hjartardóttir væri ekki viðstödd brautskráningarathöfn skólans á laugardag og henni snúið frá sviðinu. Fulltrúar skólans hafi ekki verið upplýstir um stöðu mála og því ekki getað aðhafst. Innlent 26.6.2023 15:47
„Þeim var víst drullusama um fatlaða háskólanemann“ Áslaug Ýr Hjartardóttir var meðal þeirra 2.832 nemenda sem brautskráðust frá Háskóla Íslands í gær við hátíðlega athöfn. Líkt og öðrum kandídötum óskaði hún þess að taka við skírteini eftir stranga skólagöngu en ólíkt flestum er Áslaug lögblind, heyrnarlaus og í hjólastól, og þarf því gjarnan meiri stuðning en aðrir nemendur. Innlent 25.6.2023 23:19
Móðir segir starfsbrautina mæta afgangi og illa sé staðið að innritunarferli Móðir drengs sem var gert að bíða til dagsins í dag eftir boði um skólavist á starfsbraut segir illa að inntökuferlinu staðið. Hún gagnrýnir Menntamálastofnun fyrir að hafa haldið fjölskyldunni í óvissu fram að síðasta degi fyrir sumarfrí framhaldsskólastarfsmanna. Innlent 23.6.2023 18:10
Starfsbrautir í MR og Kvennó og öllum boðin skólavist í dag Stjórnarráðið tilkynnti í dag að Menntaskólinn í Reykjavík auk Kvennaskólans komi til með að bjóða upp á nám á starfsbraut næsta haust. Í tilkynningu segir að allir umsækjendur um nám á starfsbraut muni fá boð um skólavist í dag. Innlent 22.6.2023 19:34
Alltof seint að fá svör um skólavist í ágúst Móðir sextán ára drengs með fötlun sem enn hefur ekki fengið skólavist í framhaldsskóla í haust segir loforð menntamálaráðuneytisins um svör í ágúst ekki nægilega góð. Drengurinn þurfi mikinn stuðning og því sé góður undirbúningur mikilvægur. Innlent 21.6.2023 16:04
Fötluð ungmenni og tækifærin Undanfarin misseri hefur sannarlega verið tilefni til að fyllast bjartsýni um að okkur ætli að takast að rétta af óréttlætið sem fötluð ungmenni eru beitt endurtekið ár eftir ár. Háskólaráðherra hefur talað hátt og skýrt fyrir bættum tækifærum fatlaðs fólks til menntunar og velsæld er sett í forgang í störfum menntamálaráðherra. Skoðun 21.6.2023 11:01
Már þarf ekki að greiða kostnað vegna leiðsöguhundarins Max Matvælaráðuneytið greindi frá því nú síðdegis að blindur maður þurfi ekki að greiða himinháan kostnað sem fylgi því að taka leiðsöguhundinn sinn með í frí til landsins. Margra mánaða barátta við kerfið virðist því vera á enda. Innlent 19.6.2023 19:15
„Líður eins og það sé verið að segja mér að skilja augun mín eftir“ Már Gunnarsson, söngvari og námsmaður, þarf að borga háan kostnað í hvert skipti sem hann heimsækir fjölskylduna til Íslands með leiðsöguhundinn sinn. Hann segir það eina í stöðunni að láta hundinn frá sér verði ekkert gert. Innlent 18.6.2023 15:39
Enginn ásetningur að Erling dvelji á hjúkrunarheimili í stað þess að fá NPA þjónustu Sigurbjörg Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri velferðarsviðs Mosfellsbæjar, segir leitt að mál Erling Smith sé kominn í þann farveg sem Vísir hefur greint frá. Fundað verður með lögmönnum um lausn málsins. Innlent 15.6.2023 15:58
„Mikilvægt að þetta skili einhverjum breytingum til framtíðar“ Dagbjartur Sigurður Ólafsson er kominn með pláss í framhaldsskóla í haust eftir að hafa verið í lausu lofti frá því í vor. Móðir hans fagnar fréttunum en segir breytinga þörf á verkferlum. Menntamálastofnun segir alla nemendur komast að en þeir fari á á biðlista þar til mál þeirra eru leyst. Skólameistari FÁ segir plásslesysi helst tefja innritun barna á sérnámsbraut. Innlent 15.6.2023 15:20
Segir ummæli borgarstjóra villandi og ámælisverð Framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálp segir ummæli borgarstjóra um að Reykjavíkurborg vilji frekar eyða fjármunum í þjónustu við fatlaða en bætur vera ámælisverð. Það sé löngu tímabært að ríki og sveitarfélög komi sér saman um hvernig kosta eigi þjónustu við fatlað fólk. Innlent 15.6.2023 14:00
Mosfellsbær reynir aftur að koma Erling inn á hjúkrunarheimili Mosfellsbær hefur leitast eftir því að koma Erling Smith aftur í varanlega búsetu á hjúkrunarheimili. Erling lýsti vist þriggja ára vist sinni á Hömrum sem varðhaldi og sigraði dómsmál til að fá NPA þjónustu. Innlent 15.6.2023 12:41
Ríkisstjórnin bjóði upp á ófremdarástand fyrir fatlaða Öryrkjabandalag Íslands hefur sent ákall til ríkisstjórnarinnar að bregðast við því sem bandalagið kallar ófremdarástand í húsnæðismálum fatlaðs fólks. Bandalagið segir ríkisstjórnina fá falleinkunn. Innlent 14.6.2023 11:33