Bandaríkin

Óhlýðni mýeinda hvarf ekki við enn nákvæmari mælingar
Öreindafræðingar í Bandaríkjunum segja að hegðun svonefndra mýeinda ögri enn heimsmynd eðlisfræðinnar í nákvæmustu mælingum þeirra til þessa. Yrðu niðurstöður þeirra staðfestar gæti það bent til tilvistar áður óþekktrar víxlverkunar eða náttúrulögmáls.

Segjast hafa afhjúpað kínverskan njósnara sem CIA tældi
Kínversk yfirvöld segjast hafa afhjúpað kínverskan njósnara sem vann fyrir Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA). Maðurinn vann í kínverskum hergagnaiðnaði og á að hafa boðist að flytja til Bandaríkjanna í skiptum fyrir viðkvæmar hernaðarupplýsingar.

Sírenurnar fóru ekki af stað þegar eldurinn gleypti bæinn
Íbúar sem flúðu gróðurelda í bænum Lahaina á Maui spyrja sig af hverju hin frægu viðvörunarkerfi Hawaii vöruðu þau ekki við eldunum. Ekkert bendir til þess að sírenurnar hafi farið í gang áður en eldarnir gleyptu bæinn og tóku líf að minnsta kosti 53.

Dánartalan á Havaí muni hækka töluvert
Miklir gróðureldar hafa logað á eyjunni Maui, sem er hluti af Havaí í Bandaríkjunum í dag. Yfirvöld hafa varað við því að dánartölur á eyjunni Maui muni hækka. Ríkisstjóri Havaí segir að 53 manns hafi látist í eldunum.

Dulúð umlykur dauða fjórtán ára rapparans
Meintur dauði fjórtán ára rapparans Lil Tay og bróður hennar virðist hafa verið uppspuni hakkara. Instagramfærslu, þar sem greint var frá andláti hennar og bróður hennar, hefur nú verið eytt.

Twitter sektað fyrir að afhenda ekki gögn um Trump tímanlega
Dómari sektaði Twitter um tugi milljóna íslenskra króna fyrir að afhenda ekki gögn um Donald Trump á réttum tíma. Sérstakur rannsakandi sem ákærði Trump fyrir að reyna að snúa við úrslitum forsetakosninganna 2020 fékk leitarheimild til þess að fá gögn um Twitter-notkun Trump.

Ferðamannabær í kalda kolum eftir mannskæða gróðurelda á Havaí
Að minnsta kosti þrjátíu og sex manns eru látnir og fleiri slasaðir í miklum gróðureldum á eyjunni Maui sem er hluti af Havaí. Hundruð bygginga eru rústir einar eftir eldana sem brenndu ferðamannabæinn Lahaina svo gott sem til kaldra kola.

Upprættu „tæknilega fágaðan“ barnaníðshring eftir morð á fulltrúum FBI
Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og Ástralíu handtóku 98 einstaklinga og 45 hafa þegar verið dæmdir í tengslum við umfangsmikinn barnaníðshring. Einstaklingarnir notuðu djúpvefinn til að skiptast á efni en meðal þeirra voru þó nokkrir sérfræðingar í forritun og upplýsingatækni.

Fjárfestingar á öryggissvæðinu námu 5,6 milljörðum í fyrra
Kostnaður við rekstur og fjárfestingar Íslendinga og Bandaríkjamanna á öryggissvæðinu í Reykjanesbæ námu samtals rúmlega 5,6 milljörðum króna í fyrra. Hlutur Bandaríkjanna var 2,9 milljarðar, hlutur Íslands 2,7 milljarðar en fjárfesting Nató nam aðeins 53 milljónum króna.

Sex látin eftir skógarelda á Havaí
Sex manns hafa látist og margir slasast eftir að skógareldar brutust út á havaísku eyjunni Maui í gær.

Maður sakaður um hótanir gegn Biden skotinn til bana af FBI-lögreglunni
Karlmaður frá Utah-ríki í Bandaríkjunum sem sakaður er um hótanir gegn Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, var skotinn til bana af bandarísku Alríkislögreglunni (FBI) á heimili sínu í dag, nokkrum klukkustundum áður en Biden lenti í ríkinu.

Fjórtán ára rapparinn Lil Tay og bróðir hennar sögð látin
Fjórtán ára rapparinn Lil Tay er látinn. Frá andláti hennar er greint á Instagram síðu hennar en þar kemur einnig fram að bróðir hennar, hinn 21 árs gamli Jason Tian, sé látinn. Dánarorsök þeirra virðist ókunn.

„Sugar Man“ er fallinn frá
Hinn dularfulli bandaríski tónlistarmaður, Sixto Diaz Rodriguez, einnig þekktur sem Sugar Man, er látinn, 81 árs að aldri.

Vann einn og hálfan milljarð Bandaríkjadala í lottói
Maður sem keypti lottómiða í Flórída hefur unnið rúmlega einn og hálfan milljarð Bandaríkjadala í Mega Millions-lottóinu. Vinningurinn er sá stærsti í sögu lottósins og sá þriðji stærsti í sögu bandarísks lottós.

Fékk tíu ára dóm fyrir að skjóta Megan Thee Stallion
Kanadíski rapparinn Tory Lanez hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa skotið rapparann Megan Thee Stallion í fæturna í Los Angeles árið 2020.

Skapari smellsins Cha-Cha Slide er látinn
Bandaríski tónlistarmaðurinn DJ Casper, sem þekktastur er fyrir smell sinn, Cha-Cha Slide, er látinn, 58 ára að aldri.

Sakar Wagner-hópinn um að notfæra sér ástandið í Níger
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna telur að rússneski málaliðahópurinn Wagner notfæri sér nú óstöðugleikann í Níger í kjölfar valdaráns herforingja þar í síðasta mánuði. Vangaveltur eru uppi um að valdaræningjarnir hafi falast eftir aðstoð málaliðahersins.

Wayne Brady kemur út sem pankynhneigður
Leikarinn og grínistinn Wayne Brady hefur komið út úr skápnum sem pankynhneigður.

Öflugt jökulhlaup skolaði burt heilu húsunum
Engan sakaði þegar jökulhlaup hreif með sér íbúðarhús við bakka Mendenhall-árinnar í Juneau í Alaska í Bandaríkjunum um helgina. Hlaupið var mun kröftugra en fyrri flóð sem hafa orðið á undanförnum árum.

Býður sig fram eftir „baráttu við djúpríkið“ á Íslandi
Jeffrey Ross Gunter, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, hefur tilkynnt að hann sækist eftir því að verða frambjóðandi Repúblikanaflokksins til öldundadeildar Bandaríkjaþings fyrir hönd Nevada í þingkosningum sem fram fara samhliða forsetakosningum í landinu á næsta ári.

Meiðyrðamáli Trump gegn E. Jean Carroll vísað frá
Meiðyrðamáli Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, gegn pistlahöfundinum E. Jean Carroll var vísað frá af alríkisdómara í New York í gær. Trump höfðaði mál gegn Carrol vegna ummæla hennar um að hann hefði nauðgað henni.

Lífsförunautur Söndru Bullock látinn eftir þriggja ára baráttu við ALS
Bryan Randall, maðurinn sem leikkonan Sandra Bullock kallaði „ástina í lífi sínu“, lést á laugardag. Í tilkynningu frá fjölskyldu Randall sagði að hann hefði greinst með ALS fyrir þremur árum.

Perlar og selur armbönd til að safna fyrir draumaferðinni í Disney World
Kona með einhverfu sem á þann draum heitastan að ferðast til Bandaríkjanna brá á það ráð að perla og selja armbönd til að komast í draumaferðina. Armböndin hafa slegið í gegn og vonast hún til að heimsótt Mínu og Mikka mús í Disney World á næsta ári.

Óskarsverðlaunaleikstjóri látinn
Leikstjórinn William Friedkin, sem þekktastur er fyrir að hafa leikstýrt Óskarsverðlaunamyndinni The French Connection og bíómyndinni The Exorcist, er látinn, 87 ára að aldri.

Eyddi formúgu fjár í Taylor Swift-miða sem voru ekki til
Miðar á yfirstandandi tónleikaferðalag Taylor Swift eru illfáanlegir og rándýrir vegna endursölusíðna. Bandarísk kona sem keypti miða á 1.400 dali (um 180 þúsund íslenskra króna) uppgötvaði eftir kaupin að miðarnir voru ekki til.

Ætlar áfram að einblína á kosningarnar 2020
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, ætlar að nýta nýjustu ákæruna gegn sér til að halda því áfram fram að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Hann er ákærður fyrir að reyna að snúa úrslitum kosninganna en ráðgjafar hans hafa hvatt hann til að leggja síðustu kosningar á hilluna.

Báru kennsl á 27 ára gamlar líkamsleifar á Gilgo ströndinni
Lögregluyfirvöld í Suffolk-sýslu í New York tilkynntu í dag að tekist hefði að bera kennsl á líkamsleifar sem fundust á Gilgo ströndinni á árunum 1996 til 2011. Fyrst fundust fætur í poka og svo bein á árunum 2010 og 2011. Líkamsleifar fjögurra kvenna sem Rex Heuermann er grunaður um að hafa myrt fundust á sama stað.

Rennibrautarferð lögreglumanns vekur kátínu netverja
Lögreglumaður í Boston slasaðist þegar hann renndi sér á ógnarhraða niður málmrennibraut í borginni. Myndband sem sýnir manninn þeytast út úr rennibrautinni og lenda á andlitinu hefur vakið mikla athygli.

„Ég dó næstum því á Íslandi“
Bandaríski leikarinn Bowen Yang segist næstum hafa látið lífið hér á landi er hann var á hestbaki. Yang var staddur á Íslandi og var á hestbaki fyrir tökur á sjónvarpsþætti.

Bað gesti um vatnsgusur en brást ókvæða við
Rapparinn Cardi B er laus allra mála þrátt fyrir að hafa grýtt hljóðnema í tónleikagest í Las Vegas í Bandaríkjunum.