Efnahagsmál
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 70 ›
Bjarni óskar eftir hraðri afgreiðslu Alþingis á verðbólguaðgerðum Fjármálaráðherra óskar eftir því að Alþingi afgreiði með hraði frumvarp um sérstakar aðgerðir til að koma til móts við viðkvæmustu hópa samfélagsins vegna aukinnar verðbólgu. Innlent 18.5.2022 19:21
Heimilin ættu að búa sig undir aukna verðbólgu og hærri vexti Heimilin í landinu ættu að búa sig undir að meginvextir Seðlabankans hækki í allt að sex prósent fyrir árslok að mati Greiningar Íslandsbanka. Ástæða sé til að hafa áhyggjur af innfluttri verðbólgu en húsnæðismarkaðurinn komist vonandi í jafnvægi á næsta ári. Innlent 18.5.2022 19:21
Ekkert lát á aukinni verðbólgu og hækkun íbúðaverðs Mikil hækkun varð á verði íbúðarhúsnæðis milli mars og aprílmánaðar og hefur hækkunin verið 22,3 prósent síðustu tólf mánuði og heldur áfram að kynda undir verðbólgunni. Greiningardeildir bankanna reikna með enn frekari hækkunum. Innlent 18.5.2022 11:52
Spá öflugum hagvexti og allt að sex prósent stýrivöxtum í lok árs Greining Íslandsbanka spáir 5,0% hagvexti á þessu ári sem yrði hraðasti vöxtur frá árinu 2016. Gert er ráð fyrir 2,7% vexti á næsta ári og 2,6% árið 2024. Viðskipti innlent 18.5.2022 06:00
AGS segir að efla þurfi eftirlit með lífeyrissjóðum Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur að styrkja þurfi heimildir Seðlabanka Íslands til að hafa eftirlit með stjórnarháttum og áhættustýringu íslenskra lífeyrissjóða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sendinefndarinnar sem hefur verið hér landi undanfarna daga til að leggja mat á stöðu efnahagsmála. Innherji 11.5.2022 10:53
AGS: Aðgerðir stjórnvalda þurfi að stemma stigu við hækkandi húsnæðisverði Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem lagt hefur mat á efnahag Íslands að undanförnu, telur að efnahagshorfur landsins séu jákvæðar en þó háðar töluverðri óvissu. Sendinefndin mælir með því að aðgerðir stjórnvalda miðist að því að draga úr verðbólguþrýstingu og síhækkandi húsnæðisverði. Viðskipti innlent 11.5.2022 10:40
Bein útsending: AGS kynnir mat sitt á stöðu mála á Íslandi Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur verið hér á landi undanfarna daga og lagt mat á stöðu mála hér á landi. Sendinefndin greinir frá niðurstöðu sinni á blaðamannafundi í fundarsal í Hannesarholti í Þingholtunum í Reykjavík. Viðskipti innlent 11.5.2022 09:44
BlueBay keypti ríkisbréf fyrir 20 milljarða og sér Ísland verða „Sviss norðursins“ BlueBay Asset Management, eitt stærsta sérhæfða skuldabréfastýringarfélag Evrópu, telur að Ísland geti í framtíðinni orðið þekkt sem „Sviss norðursins“. Þetta kemur fram í fréttabréfi sem Mark Dowding, yfirfjárfestingastjóri BlueBay, sendi á viðskiptavini félagsins í síðustu viku og Innherji hefur undir höndum. Innherji 10.5.2022 06:01
Íslandsbanki hafi ekki hækkað vexti eins hratt og Seðlabankinn Bankastjóri Íslandsbanka segir að bankinn hafi ekki hækkað vexti í takt við stýrivaxtahækkanir Seðlabankans síðustu misseri. Hún er bjartsýn á að viðskiptavinir bankans ráði við hækkanir á afborgunum húsnæðislána en um sextíu prósent þeirra eru á föstum vöxtum til nokkurra ára. Viðskipti innlent 9.5.2022 17:00
Viðbrögðin lýsandi fyrir efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar Óviðeigandi er að kalla það sértæk úrræði að leiðrétta kjör lífeyrisþega að sögn þingmanns Samfylkingarinnar. Forseti Alþýðusambandsins tekur undir gagnrýnina. Forsætisráðherra segir leitast við að tryggja að efnahagshremmingar auki ekki ójöfnuð. Innlent 8.5.2022 17:22
Gylfi segir leiðréttingu á eignamarkaði yfirvofandi Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði, segir að verðbólgan sé ekki aðeins á húsnæðismarkaði heldur sé hún víðfeðmari en oft áður. Eftirspurn sé mikil en mörg vandamál blasi við á framboðshliðinni. Innlent 8.5.2022 12:15
Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja frysta fasteignaskatta Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík lofar að frysta fasteignaskatta nái flokkurinn að mynda meirihluta í borginni eftir kosningar. Oddviti flokksins segir útspilið viðbragð við verðlagsþróun og vaxtahækkun Seðlabankans í vikunni. Óeðlilegt sé að sveitarfélög hafi fjárhagslega hvata af hækkandi húsnæðisverði. Innherji 6.5.2022 06:00
Með skilaboð til verkalýðshreyfingarinnar fyrir kjaraviðræður Viðskiptaráðherra biðlar til verslana að ráðast í sem minnstar verðhækkanir til að halda verðbólgunni eins lágri og mögulegt er. Hún vonar að verkalýðshreyfingin sýni ábyrgð í komandi kjarasamningum. Innlent 5.5.2022 19:02
Seðlabankastjóri vonar að ekki þurfi að keyra hagkerfið í kreppu Seðlabankastjóri segir íslenskt efnahagslíf ekki komið í kreppuverðbólgu. Mikilvægt sé að allir vinni saman gegn verðbólgunni þannig að Seðlabankinn þurfi ekki að keyra efnahagslífið í kreppu til að ná verðbólgunni niður. Innlent 5.5.2022 12:01
Erum að vinna í haginn fyrir kjarasamninga, segir seðlabankastjóri „Við höfum tækin sem þarf til að ná niður verðbólgunni og við getum beitt þeim af fullum þunga. Ef við þurfum að gera það í andstöðu við aðila vinnumarkaðarins af því að þeir ætla sér að auka enn á verðbólguna með því að hækka launin meira en hagkerfið þolir þá þýðir það einungis að Seðlabankinn þarf að keyra hagkerfið niður í kreppu,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri í viðtali við Innherja. Innherji 4.5.2022 20:10
Munu krefjast þess að vaxtahækkanir verði bættar launafólki í kjaraviðræðum Formaður stéttarfélagsins VR segir glórulaust að Seðlabanki Íslands hafi ákveðið að bregðast við hækkandi húsnæðisverði og innfluttri verðbólgu með hækkun stýrivaxta. Hann segir verkalýðshreyfinguna munu gera kröfu um að hækkun stýrivaxta verði bætt upp í gerð komandi kjarasamninga. Neytendur 4.5.2022 20:08
Seðlabankinn spáir aukinni verðbólgu og hvetur til hófsamra kjarasamninga Seðlabankastjóri reiknar með að verðbólga aukist á næstu mánuðum og þar með eigi meginvextir bankans eftir að hækka enn frekar eftir eins prósentustiga hækkun þeirra í dag. Mikið velti á að allir sameinist gegn verðbólgunni og einblínt verði á að tryggja kaupmátt en ekki launahækkanir í komandi kjarasamningum. Innlent 4.5.2022 19:21
Harður tónn í Seðlabankanum bendir til töluverðra vaxtahækkana í sumar Tónninn í yfirlýsingu peningastefnunefndar í morgun var harðari en hann hefur verið að undanförnu að sögn sérfræðinga á skuldabréfamarkaði. Hann gefur til kynna að bankinn ætli sér að hækka vexti töluvert í sumar. Innherji 4.5.2022 16:19
Stríðið í Úkraínu kyndir undir verðbólgu Verðbólga á Íslandi hefur ekki verið meiri í tólf ár sem ásamt verðbólgu í helstu viðskiptalöndum knúði Seðlabankann til að hækka meginvexti sína um eitt prósentustig í morgun. Efnahagshorfur fara versnandi þrátt fyrir góða hagvöxt og lítið atvinnuleysi. Innlent 4.5.2022 12:28
Kristrún segir ríkisstjórnina hafa flotið sofandi að feigðarósi Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar en hún á sæti í fjárlaganefnd fyrir hönd flokksins, segir grátlegt að horfa upp á andvaraleysi ríkisstjórnarinnar vegna verðbólguþrýstings. Innlent 4.5.2022 12:24
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður stýrivaxtahækkunina Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um eina prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,75%. Viðskipti innlent 4.5.2022 09:01
Seðlabankinn hækkar stýrivexti um eina prósentu Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1 prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3,75%. Viðskipti innlent 4.5.2022 08:30
Svefnvottun íslenskra vinnustaða: Dýrt að vera með ósofið fólk í vinnu Rannsóknir hafa sýnt að svefnleysi er að kosta atvinnulífið háar upphæðir á ári. Reyndar svo háar að allar tölur mælast í tugum milljarða. Já, ósofið starfsfólk er hreinlega að kosta atvinnulífið marga milljarða á ári. Atvinnulíf 4.5.2022 07:02
Segir sorglegt að lífeyrissjóðir standi með stórfyrirtækjum en ekki launafólki Formaður Starfsgreinasambandsins segir skökku skjóta við að lífeyrissjóðirnir, sem eigi stærstan hlut í öllum helstu matvöruverslunum landsins, skuli ekki mótmæla hækkandi matvöruverði. Hækkandi vöruverð komi helst niður á neytendum, launafólki sem eigi sjóðina. Neytendur 3.5.2022 17:53
Minni verðbólga með „byggja til að leigja“ stefnunni Hagfræðingur segir að stjórnvöld og lífeyrissjóðir verði að byggja meira til að auka framboð á fasteignamarkaði og ekki síst undir merkjum „byggja til að leigja“ stefnunnar. Gott framboð af leiguhúsnæði hafi til að mynda haldið aftur af verðbólgu í þýskumælandi löndum Evrópu. Innlent 3.5.2022 13:22
Greiða sér út rúma tvo milljarða í arð en vara við enn meiri verðhækkunum ASÍ segir það skjóta skökku við að matvöruverslanir hækki verð á vörum sínum á sama tíma og þær skili inn margra milljarða króna hagnaði. Eigendur Haga stefna að því að greiða sér út tvo milljarða í arð í ár. Viðskipti innlent 3.5.2022 12:53
Segir hækkanir hjá matvöruverslunum furðulegar þegar þær skili milljarða hagnaði Verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir það skjóta skökku við að matvöruverslanir séu að hækka verð á vörum á sama tíma og tilkynnt hafi verið um margra milljarða króna hagnað hjá þessum sömu fyrirtækjum. Neytendur 2.5.2022 19:47
Hækkun stýrivaxta skili aðeins „verri kjörum og verri stöðu heimilanna“ Stýrivexti gætu hækkað um allt að eitt prósentustig í vikunni ef spár bankanna ganga eftir. Formaður VR segir slíkt koma sér gríðarlega illa fyrir heimilin í landinu og biðlar til peningastefnunefndar að finna aðrar leiðir. Viðskipti innlent 2.5.2022 19:01
Spár um vaxtahækkun: Markaðurinn klofinn milli 75 og 100 punkta Ríflega helmingur markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 100 punkta á miðvikudaginn. Laust taumhald peningastefnu, mjög lágir raunstýrivextir og vaxandi verðbólguþrýstingur eru meginstef í þeim svörum sem bárust. Innherji 2.5.2022 08:58
Ríkið fær fimmtán milljarða króna frá Landsvirkjun Aðalfundur Landsvirkjunar samþykkti tillögu stjórnar um fimmtán milljarða króna arðgreiðslu til eigenda í dag, en íslenska ríkið er eini eigandi fyrirtækisins. Viðskipti innlent 29.4.2022 18:10