Eldgos og jarðhræringar
39 40 41 42 43 44 45 46 47 … 132 ›
Vonar að vinnuveitendur sýni björgunarsveitafólki skilning Almannavarnir hafa sent út fjöldaboð til allra björgunarsveita á landinu. Meiri mannskap þarf í verkefnið. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segist vonast til þess að vinnuveitendur taki tillit til þess þegar fólk með kunnáttu þurfi að hverfa frá vinnu. Innlent 20.11.2023 13:58
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum setur fjölmiðlum ótækar takmarkanir Formaður Blaðamannafélags Íslands segir víðtækar takmarkanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum á störf fjölmiðla í og í kringum Grindavík ótækar. Fjölmiðlar væru hindraðir í að hafa eftirlit með aðgerðum yfirvalda og til að afla upplýsinga sem vörðuðu Grindvíkinga og allan almenning í landinu. Innlent 20.11.2023 12:08
Upplýsingafundur: Ekki skólaskylda en „safnskólar“ og hverfisskólar standa til boða Mikið verkefni stendur yfir og fyrir dyrum í Grindavík og öllum árum róið að því að koma lífi Grindvíkinga sem neyðst hafa til að flýja heimili sín í farveg. Þetta var meðal þess sem kom fram á upplýsingafundi Almannavarna rétt í þessu. Innlent 20.11.2023 11:43
Gagnrýnir Veðurstofuna fyrir að hamla aðgengi að GPS-gögnum Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur gagnrýnir Veðurstofu Íslands fyrir að takmarka aðgengi almennings að GPS-gögnum sem geri mönnum kleift að fylgjast með jarðskorpuhreyfingum. Segir hann að Veðurstofunni beri skylda til að koma þessum gögnum á framfæri svo þau séu öllum aðgengileg. Innlent 20.11.2023 10:40
Upplýsingafundur Almannavarna vegna ástandsins í Grindavík Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar í Skógarhlíð klukkan 11 í dag. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri Almannavarna, stjórnar fundinum. Innlent 20.11.2023 10:18
Greina landris og áhættu við vinnu varnargarða betur í dag Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir það koma í ljós í dag hvort landris hafi áhrif á vinnu við varnargarða við virkjun HS Orku í Svartsengi. Innlent 20.11.2023 08:35
Vaktin: Hættusvæðið stækkar Rúmlega 700 skjálftar hafa mælst yfir kvikuganginum á Reykjanesi frá hádegi. Sá stærsti var 2,7 að stærð og átti upptök sín norðauastan við Hagafell. Innlent 20.11.2023 06:39
Drónamyndir RÚV sýni mjög ólíklega kviku Rauðar ljóstírur sem sáust í drónaskoti í kvöldfréttatíma RÚV eru að sögn veðurfræðings mjög ólíklega kvika. Ekkert bendi til þess að gos sé hafið. Innlent 20.11.2023 00:16
Breyting á innkomu í Grindavík vegna landriss Vegna nýrra gagna sem sýna aukið landris við Svartsengi hefur lögreglan á Suðurnesjum ákveðið að þau sem hafa fengið skilaboð um innkomu í Grindavík á morgun vegna verðmætabjörgunar mæti við lokunarpóst við mót Krísuvíkurvegar og Suðurstrandarvegar, í stað Grindavíkurvegs og Reykjanesbrautar. Innlent 20.11.2023 00:07
Fjölmiðlar svekktir yfir því að fá ekki að fara inn í Grindavík Miðstöð fyrir erlenda fjölmiðla vegna náttúruhamfaranna í Grindavík var opnuð í dag. Þýskur fréttamaður á heimleið segist svekktur yfir að hafa ekki fengið að fara inn í Grindavík. Innlent 19.11.2023 21:42
Land rís hratt við Svartsengi Bylgjuvíxlmynd Veðurstofu Íslands sýnir aukin hraða í landrisi á svæðinu umhverfis Svartsengi. Myndir sýna landris allt að 30 mm á einum sólarhring á milli dagana 18.-19. nóvember. Innlent 19.11.2023 19:54
Myndir úr Grindavík: Mikið tjón blasir við sjónum Grindvíkingar eru í óðaönn við að koma verðmætum sínum úr bænum og við þeim blasir gríðarmikið tjón. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, fangaði stöðuna á filmu í dag. Innlent 19.11.2023 17:16
„Inn í miðjum storminum sér maður ekki neitt“ Konráð Guðjónsson hagfræðingur segir að óvissan í Grindavík muni ekki hafa góð áhrif á verðbólguna. Þó séu þau háð því hvernig mál þróast á Reykjanesi. Viðskipti innlent 19.11.2023 15:48
Samverustund fyrir Grindvíkinga í Keflavíkurkirkju Séra Elínborg Gísladóttir mun leið samverustund fyrir Grindvíkinga í Keflavíkurkirkju klukkan fimm í dag. Agnes M Sigurðardóttir, biskup Íslands, Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og Fannar Jónasson, bæjarstjórinn í Grindavík munu flytja ávörp. Innlent 19.11.2023 14:22
Frekari aðgerðir fyrir Grindvíkinga til skoðunar Aðgerðir til að koma til móts við Grindvíkinga eru til skoðunar hjá Landsbankanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Samskipti við stjórnvöld um næstu skref séu hafin. Innlent 19.11.2023 13:37
„Það þarf að finna lausn á lánamálum Grindvíkinga“ Þingmenn af Suðurnesjum segja nauðsynlegt að finna lausn á lánamálum Grindvíkinga svo íbúar þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur. Bankarnir hafi svigrúm til þess að leggja sitt af mörkum. Ef þeir taki ekki af skarið sjálfir þurfi stjórnvöld að grípa til aðgerða. Innlent 19.11.2023 12:18
Söfnun fyrir Grindvíkinga gengur vel Söfnun Rauða krossins til stuðnings Grindvíkingum og til þess að efla viðbragð samtakanna við náttúruhamförunum á Reykjanesskaganum hefur gengið vel. Innlent 19.11.2023 12:10
Íbúar og fyrirtæki mega fara til Grindavíkur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að hleypa íbúum ríflega eitt hundrað heimila í Grindavík inn í bæinn í dag. Þá verður starfsfólki fyrirtækja leyft að fara inn í bæinn eftir klukkan 15. Innlent 19.11.2023 08:18
Öflugur skjálfti talsvert langt frá kvikuganginum Jarðskjálfti af stærðinni 3,7 mældist klukkan 05:35 í morgun, um þrjá kílómetra vestur af Kleifarvatni. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 19.11.2023 07:13
Aðstæður svipi verulega til upphafs eldgossins í mars 2021 Átta sólarhringar eru síðan innskot ruddi sér leið inn í jarðskorpuna undir Grindavík. Öll gögn þykja benda til þess að kvika sé komin í efstu lög jarðskorpunnar, jafnvel í efstu 500 metrana. Innlent 18.11.2023 20:59
Grindvíkingar ennþá samfélag þrátt fyrir að vera að heiman Fyrr í kvöld fóru fram körfuknattleikir kvenna- og karlaliða Grindavíkur gegn Þór á Akureyri og Hamri í Subway-deildinni í Smáranum í Kópavogi. Grindvískur þingmaður segir þann stuðning sem Grindvíkingar fá frá þjóðinni hvetja þá áfram. Innlent 18.11.2023 20:10
Opna fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fjölmiðla vegna jarðhræringa Ferðamálastofa mun á morgun opna miðstöð fyrir fjölmiðlafólk sem komið hefur til landsins til þess að fjalla um jarðhræringar og yfirvofandi eldgos á Reykjanesskaga. Almannavarnir eru meðal rekstraraðila og stefnt er á að fulltrúar á vegum stjórnvalda komi daglega við í miðstöðinni til þess að svara spurningum. Innlent 18.11.2023 18:41
Matarboð með fyrirvara um eldgos Grindvíkingarnir Hallgrímur Hjálmarson og maðurinn hans Geir Andersen neita að leyfa neikvæðninni að ráða og efna til matarboðs á heimili sínu í Grindavík í janúar næstkomandi. Lífið 18.11.2023 16:41
Úrræði fyrir grindvísk skólabörn tekin í gagnið í næstu viku Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segir að fyrstu formlegu úrræði grindvískra skólabarna verði tekin í gagnið í skólum í Reykjavík á miðvikudaginn. Þetta segir hann á upplýsingafundi Almannavarna sem haldinn var í Skógarhlíð í dag. Innlent 18.11.2023 14:00
Allt bendi til þess að það verði ekki haldin venjuleg jól í Grindavík Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, segir að Grindvíkingar þurfi að búa sig undir það að búa annars staðar en heima hjá sér næstu mánuðina. „Því miður bendir allt til þess að það verði ekki haldin venjuleg jól í Grindavík.“ Innlent 18.11.2023 13:53
Þurfi ekki mikil átök til að kvikan nái til yfirborðs Kristín Jónsdóttir, hópstjóri í náttúruváreftirliti hjá Veðurstofu Íslands, segir að staðan á Reykjanesi í dag sé svipuð og hún hefur verið. Það dragi úr aflögun og skjálftavirkni með hverjum degi sem líður. Innlent 18.11.2023 13:30
„Bankarnir eru að pissa í skóinn sinn“ Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Grindvíkingur, segist enn ekki búinn að meðtaka fyllilega aðstæðurnar sem upp eru komnar. Hann vill að því verði komið í kring að Grindvíkingar geti keypt nýbyggt húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og húsnæðislán þeirra í Grindavík verði fryst að fullu. Innlent 18.11.2023 13:01
Bein útsending: Upplýsingafundur almannavarna Upplýsingafundur almannavarna vegna ástandsins á Reykjanesskaga verður haldinn í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í dag. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 18.11.2023 12:50
Ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa afmörkuðum hópi Grindvíkinga inn í bæinn í dag. Búið er að hafa samband við alla þá sem mega fara að sækja verðmæti. „Vakin er athygli á því að það er ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði sem hefur verið rýmt af öryggisástæðum.“ Innlent 18.11.2023 08:38
Tæplega fimm hundruð skjálftar frá miðnætti Frá miðnætti í dag hafa mælst rúmlega 470 jarðskjálftar yfir kvikuganginum á Reykjanesi. Innlent 18.11.2023 07:46