Ferðaþjónusta

Fréttamynd

Leita enn að ferða­manninum

Lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir hafa hægt og rólega útvíkkað svæðið þar sem leitað er að erlendum ferðamanni, sem skilaði sér ekki á gististað í gær, að sögn upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Leitað verður fram á kvöld, að þar til að maðurinn finnst.

Innlent
Fréttamynd

„Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“

Sveitarstjórn og viðbragðsaðilar í Vesturbyggð eru nú íóða önn að undirbúa komu mikils fjölda ferðamanna í tengslum við almyrkvann í sumar. Bæjarstjóri á segir erfitt að sjá fyrir hve margir leggi leið sína vestur til að berja almyrkvann augum.

Innlent
Fréttamynd

Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni

Eldsneytisbirgðastaða Icelandair er góð og birgjum félagsins standa fjölbreyttar flutningsleiðir til boða. Samkvæmt skýrslu Alþjóðaorkumálastofnunarinnar átti Evrópa aðeins sex vikna birgðir af flugvélaeldsneyti vegna lokunar Hormússunds. Sundið hafði að mestu verið lokað í sex vikur þegar það var opnað á ný í dag í tengslum við tíu daga vopnahlé Ísraelsmanna og Líbana.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins kom til hafnar í Reykjavík í gær. Búist er við komu færri ferðamanna með skipunum í ár en undanfarin tvö ár en búist er við komu um þrjú hundruð þúsund ferðamanna með skipunum. Skemmtiferðaskipum fækkar um sextán milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árs­lok

Landsbankinn gerir ráð fyrir því að hagvöxtur verði á bilinu 1,6-1,8 prósent til ársins 2028. Það sé hóflegt en þó meira en í fyrra þegar hagvöxtur jókst um 1,3 prósent. Þá gerir bankinn ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali 4,8 prósent í ár og að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25 prósent á þessu ári. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Deilum við Norð­menn um meira en síld og makríl“

Ef vel tekst til getur almyrkvi á sólu verið gríðarleg markaðssetning á landinu og mikilvægt að stjórnvöld nýti tækifærið og fjárfesti í ferðaþjónustunni og markaðssetningu á landinu. Þetta segir formaður fyrirtækja í hótelrekstri.

Innlent
Fréttamynd

Máttu fella úr gildi skráningu Stripa­dvis­or

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði nýlega Hugverkastofuna af kröfum Stripadvisor en fyrirtækið krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar í máli nr. 3/2022, kveðinn upp 20. febrúar 2025, þar sem staðfest var ákvörðun Hugverkastofunnar um að fella úr gildi skráningu merkisins Stripadvisor.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Far­þegum fjölgaði á milli ára í mars

Icelandair flutti 342 þúsund farþega í mars 2026, 10 prósentum fleiri en í mars á síðasta ári. Í mánuðinum voru 39 prósent farþega á leið til Íslands, 22 prósent frá Íslandi, 32 prósent voru tengifarþegar og sjö prósent ferðuðust innanlands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir stjórn­völd vinna gegn ferða­þjónustunni

Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir stjórnvöld vinna gegn fyrirtækjum í íslenskri ferðaþjónustu. Mikill kurr sé í aðilum á íslenska markaðnum og dæmi séu um söluaðila erlendis sem ekki selji ferðir til Íslands sökum óvissu um verð.

Innlent
Fréttamynd

Ljós­myndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman

Þolin­mæði ljós­myndarans Her­manns Helgu­sonar er þrotin og út­lit fyrir að hann neyðist til að höfða mál á hendur ferðaþjónustu­fyrir­tækjum sem hik­laust og ítrekað skreyta markaðs­efni sitt með lands­lags­myndum sem teknar eru ófrjálsri hendi af sam­félags­miðlum hans.

Innlent
Fréttamynd

Horn í síðu fyrirtækjareksturs

Nú er framkomin fjármálaáætlun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins fyrir árin 2027 til 2031 og þar kennir ýmissa grasa. Einfalt væri að skrifa grein um hin ýmsu áform sem í henni eru að finna og snerta ferðaþjónustu og aðrar atvinnugreinar með einum eða öðrum hætti.

Skoðun
Fréttamynd

Skaftfellsk perla fær al­þjóð­lega viður­kenningu

Hótel Klaustur hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu í World Luxury Hotel Awards 2025 í flokki Luxury Boutique hótel. Verðlaunin eru ein virtasta viðurkenningin í alþjóðlegri ferðaþjónustu. Þau endurspegla framúrskarandi þjónustu, gæði aðstöðu og eftirminnilega upplifun gesta. Klaustur Restaurant hlaut einnig viðurkenningu World Luxury Hotel Awards fyrir sjálfbærni.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Innviðagjald og hækkun vasks eyði­leggi sam­keppnis­hæfni ferða­þjónustunnar

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur það verið rætt í atvinnuvegaráðuneytinu að nýtt innviðagjald, sem bæði Íslendingar og erlendir ferðamenn munu þurfa að greiða, gæti numið fimm þúsundum króna. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaþjónustuna renna blint í sjóinn og að þetta muni tvímælalaust skaða greinina mikið.

Innlent
Fréttamynd

Skattahækkun á baðlón sögð svik við fyrir­heit ríkis­stjórnarinnar

Ferðaþjónustan varð fyrir miklu áfalli þegar fram kom í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að til stæði að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11 prósentum í 24 prósent, að sögn Jóhannesar Þórs Skúlasonar, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann segir samtökin líta málið alvarlegum augum og að með þessu sé farið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda um að ekki stæði til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Í­mynd er drif­kraftur út­flutnings

Ársfundur Íslandsstofu fór nýlega fram undir yfirskriftinni „Alþjóðaviðskipti á óvissutímum 2.0“. Á fundinum var rýnt í ímynd Íslands og þróun útflutnings á síðustu 12 mánuðum og velt upp þeirri spurningu hvort umhverfi alþjóðaviðskipta hafi breyst og hvort nýr veruleiki sé ef til vill að mótast.

Skoðun
Fréttamynd

Margt sem bendir til að viðnámsþrótti ferða­þjónustunnar sé ábóta­vant

Þótt fyrirtækin standi almennt vel að vígi til að mæta efnahagsáföllum þá er staðan nokkuð misjöfn milli atvinnugreina og er margt sem bendir til þess að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant, að mati Seðlabankans, einkum vegna þess hversu sveiflukennd eftirspurnin getur verið. Ekki eru hins vegar enn sem komið skýrar vísbendingar um samdrátt í greininni í ár.

Innherjamolar