Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Trump neitar að samþykkja niðurstöðu FBI
"Það er ekki hægt að skoða 650 þúsund tölvupósta á átta dögum.“

Clinton lét húshjálpina prenta út leynileg skjöl
Bandaríkjamenn kjósa nýjan forseta á morgun. Valið stendur á milli Donalds Trump og Hillary Clinton. Skoðanakannanir benda til lítils forskots Clinton. Forskot hennar hefur minnkað undanfarið vegna tölvupóstahneykslis.

Clinton verður ekki ákærð vegna tölvupóstanna
Rannsókn á nýjum sönnunargögnum í tölvupóstamáli Clinton er lokið.

Clinton heldur forskoti sínu samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum
Frambjóðandi Demókrata mælist með fjögurra prósenta forskot.

Áhangendur Trumps réðust harkalega á mótmælanda
Trump var forðað af sviðinu í Reno í morgun vegna meints byssumanns. Í ljós kom að hann var óvopnaður mótmælandi.

Trump forðað af sviðinu í Reno
Öryggisverðir heyrðu einhvern hrópa orðið „byssa.“

Baldur telur Bjarna dreyma um samstarf við Katrínu
Stjórnmálafræðingurinn Baldur Þórhallsson er með athyglisverða greiningu á stöðu mála við stjórnarmyndun þegar vika er liðin frá kjördegi.

Forsetaframbjóðendur berjast um Flórída
Hillary Clinton og Donald Trump eru nú bæði stödd í Flórída þar sem mjótt er á mununum á milli þeirra. Trump þarf sigur þar ætli hann sér að verða forseti.

Útilokar fjögurra flokka stjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn
Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar útilokar þátttöku í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum jafnvel þótt Björt framtíð yrði líka með í fjögurra flokka stjórn. Fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins telur besta kostinn fyrir þjóðina vera ríksstjórn sem felur í sér samstarf VG og Sjálfstæðisflokksins.

Fox biðst afsökunar á frétt sinni um Clinton
Fréttamaðurinn Bret Baier segir það hafa verið mistök að segja að Clinton yrði líklega ákærð í tengslum við rannsókn á góðgerðarsjóði hennar.

Bjarni segir ekkert útilokað
Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur rætt við formenn nokkurra annarra stjórnmálaflokka í dag. Hann segir ekkert útilokað þegar kemur að stjórnarmyndun en ætlar að leggjast undir feld um helgina til að fara yfir stöðuna.

Dósent í stjórnmálafræði: Í hendi Benedikts hvort það verður mynduð ríkisstjórn til hægri eða vinstri
Stefanía Óskarsdóttir dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir Benedikt Jóhannesson formann Viðreisnar í sterkustu stöðunni varðandi komandi stjórnarmyndunarviðræður. Hún segir að þó að það séu vissulega breyttir tímar í pólitíkinni þá sé það enn eins og svo gjarnan áður að miðjuflokkur sé í lykilstöðu til að mynda ríkisstjórn.

Bjarni hafði tvívegis samband við Benedikt í dag
Bjarni hafði sagt við Vísi fyrr í dag að hann hefði rætt við fleiri en einn formann í dag, en gaf þó ekki upp hverjir þeir væru.

Bjarni rætt við fleiri en einn formann í dag
Segir að það liggi ekki beint við að hefja stjórnarmyndunarviðræður við Bjarta framtíð og Viðreisn.

Segja Al Qaeda skipuleggja hryðjuverkaárás í Bandaríkjunum daginn fyrir kosningar
Bandaríska leyniþjónustan hefur varað yfirvöld í New York, Texas og Virginíu við að Al-Qaeda hyggi á árás á mánudaginn.

Katrín: Ekkert launungarmál að Benedikt vill leiða stjórnarmyndunarviðræður
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir að það sé ekkert launungarmál að Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar vilji leiða stjórnarmyndunarviðræður. Það þurfi þó ekki endilega að fara saman við það að verða forsætisráðherra.

Benedikt segir engan póker í gangi
Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar furðar sig á frétt þess efnis að fyrir liggi hugmyndir um ríkisstjórn með sig sem forsætisráðherra.

Enn eitt áfallið fyrir Clinton á lokasprettinum
Tölvupóstsklúður Hillary Clinton heldur áfram að valda henni tjóni, nú þegar aðeins fáeinir dagar eru til forsetakosninga í Bandaríkjunum.

Clinton og Trump skjóta föstum skotum
Trump sér vonarglætu á sigri, sækir hart fram en reynir eftir fremsta megni að halda sig við málefnin.

Obama við kjósendur í Norður-Karólínu: „Framtíð lýðveldisins hvílir á ykkar herðum“
Barack Obama forseti Bandaríkjanna hvetur Demókrata af öllum kynþáttum til að fara og kjósa Hillary Clinton í komandi forsetakosningum á þriðjudaginn kemur. Hann segir að framtíð Bandaríkjanna, og alls heimsins í raun, sé í húfi.

Nærast bæði á óvinsældum hins
Á þriðjudaginn í næstu viku lýkur hinni ógnarlöngu kosningabaráttu í Bandaríkjunum þegar loks verður gengið til kosninga. Á lokasprettinum hefur dregið mjög saman með þeim Hillary Clinton og Donald Trump.

Svona er fundadagskrá Bjarna fyrir morgundaginn
Bjarni Benediktsson mun byrja á að funda með Katrínu Jakobsdóttir klukkan tíu í fyrramálið. Hann mun svo ræða við formenn hinna flokkanna eftir þingstyrksröð.

Bjarni fundar fyrst með Sigurði Inga
Hittast í ráðherrabústaðnum við Reykjavíkurtjörn.

Clinton kallaði Trump hrekkjusvín en hann segir hana spillta
Spennan magnast enda bara tæp vika í forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.

Litlar fregnir af stjórnarmyndun
Forseti Íslands hefur enn ekki tilkynnt hver muni fá umboð til myndunar ríkisstjórnar. Formenn flokkanna gáfu lítið uppi í dag en gera má ráð fyrir að óformlegar viðræður fari fram bak við tjöldin

Obama vonar að ungt fólk kynni sér málefnin af sama krafti og það skoðar kattamyndbönd
Mikil speki hjá forseta Bandaríkjanna.

Könnun ABC og Washington Post: Trump mælist með meira fylgi en Clinton
46 prósent líklegra kjósenda segjast ætla að kjósa Donald Trump en 45 prósent Hillary Clinton.

Trump færist nær Clinton
Óljós yfirlýsing um nýja lögreglurannsókn á tölvupóstum Clinton hefur gagnast Trump á lokametrum kosningabaráttunnar. Yfirmaður FBI sakaður um lögbrot. Talið að Clinton muni beita sér af meiri hörku.

Sakar forstjóra FBI um lögbrot
Leiðtogi Demókrata í bandarísku öldungadeildinni segir að forstjóri Alríkislögreglunnar FBI hafi mögulega gerst brotlegur við lögin þegar hann greindi frá því að stofnunin væri að rannsaka tölvupósta sem tengjast mögulega Hillary Clinton forsetaframbjóðanda.

Telur að nýjar upplýsingar muni ekki breyta niðurstöðunni
Alríkislögregla Bandaríkjanna hefur enduropnað rannsókn sína á tölvupóstum Hillary Clinton.