
Menning

Vinnusmiðjur í anda Gerðar Helgadóttur
Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni, á laugardag, Stúdíó Gerðar og Andvari.

Til heiðurs Moniku Z
Djasstónleikar verða í Norræna húsinu á laugardag.

Listasafnið á Akureyri í endurnýjun lífdaga
Hlynur Hallsson safnstjóri segir bjarta og spennandi tíma fram undan.

Verk Páls Ragnars Pálssonar flutt í Berlínarfílharmóníunni
Fílharmónían í Berlín og strengjasveit þýsk-skandinavísku fílharmóníunnar flutti nýlega verkið Dämmerung fyrir sópran og strengi.

Varð bara ástfangin af útsýninu
Listakonan Michelle Bird opnar sýninguna Litir Borgarness í Safnahúsinu í Borgarnesi næsta laugardag, 10. janúar. Hún heillaðist af staðnum og er sest þar að.

Óskilahundurinn á fjalirnar syðra
Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson í sveitinni Hundur í óskilum stíga á Nýja svið Borgarleikhússins á föstudag, 9. janúar, með verk sitt, Öldin okkar.

Ég er nýi gaurinn í Norræna húsinu!
Daninn Mikkel Harder er nýr forstjóri Norræna hússins og hann er mættur til Íslands með kollinn fullan af hugmyndum.

Ár hinna lúskruðu kvenna
Bókmenntaárið 2014 var gott í það heila tekið þótt ekki sé hægt að tala um einhver vatnaskil. Margir okkar bestu höfunda sendu frá sér góðar bækur, nýliðun lofaði góðu og ljóð, barnabækur og þýðingar erlendra öndvegisverka blómstruðu.

Það er ekki hægt að kvarta þegar maður fær að syngja
Valdís Gregory syngur í Kaldalóni í Hörpu í kvöld við píanóundirleik Kristins Arnar Kristinssonar. Tónleikarnir tilheyra röðinni Tónsnillingar morgundagsins.

Á mörkum hins óbærilega
Jón Páll Eyjólfsson tók við starfi leikhússtjóra hjá Leikfélagi Akureyrar um áramótin. Hann hefur haft orð á sér fyrir að vera róttækur leikhúsmaður með sterkar skoðanir á hlutverki leikhússins. Ætlar hann að bylta akureyrsku listalífi?

Það er Nóra í mér og þér
Unnur Ösp Stefánsdóttir stóð ein á bak við fortjald andartökin fyrir frumsýningu á Dúkkuheimili og hugsaði með sér að þetta snerist alls ekki um hana. Þetta kvöld væri um allar Nórur heimsins og það sé eflaust eitthvað af Nóru í okkur öllum.

Nýt þess að kneyfa hvern dag í botn
Bjarni Frímann Bjarnason, Kristján Jóhannesson og Jónas Ingimundarson halda fría tónleika í Salnum í dag.

Tengingin við Ísland er mikil
Íslensku bjartsýnisverðlaunin voru afhent í gær. Þau eru hugsuð sem hvatning og viðurkenning til íslenskra listamanna og féllu nú Huga Guðmundssyni tónskáldi í skaut.

Semur, syngur, leikur
Bragi Árnason leikari fer með öll hlutverkin í glæpasöngleik með gamansömu ívafi sem fluttur verður á ensku að Óðinsgötu 2 í kvöld.

Skemmtilega plottdrifið verk
Dúkkuheimili Ibsens var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gær. Leikstjórinn Harpa Arnardóttir segir magnað að skynja samtímann gegnum 135 ára gamalt leikverk.

Listrænt hryðjuverk og kapítalískt neysluæði
Hin nýstofnaða bókaútgáfa Tófa gefur út JÁ.

Dramatískt leikhúsár 2014 – einkum utan sviðs
Árið 2014 fer óhjákvæmilega í sögubækur: Öll atvinnuleikhúsin skipta um leikhússtjóra. En, sitt sýnist hverjum um hversu hátt þetta tímabil rís listrænt.

Smáríkið sem varð stórveldi sem varð smáríki
Illugi Jökulsson fór í heimsókn til Vilníus höfuðborgar Litháens og fann þar fyrir miklum flækjusögum, enda saga landsins óvenjuleg í meira lagi.

Kjarninn er hryllilegur
Sjálfstætt fólk, leikgerð byggð á skáldsögu Halldórs Laxness, var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í gær. Þar leika þær Elma Stefanía Ágústssdóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir hlutverk Ástu Sóllilju og Rósu.

Heldur sig réttu megin í tungumálinu
Friðrik Rafnsson er einn afkastamesti þýðandi landsins, ekki færri en þrjár bækur í hans þýðingu komu út á árinu og sú fjórða kemur fljótlega eftir áramótin. Er hann ekki farið að dreyma á frönsku?

Franskur ruglufugl
Leikhópurinn Soðið svið setur barnasýninguna Hættuför í Huliðsdal aftur á svið. Leikritið fjallar um ellefu ára stelpu sem kynnist alls kyns furðuverum.

Skyldu það vera ljóðajól?
Ljóðabókaútgáfa stóð með miklum blóma á árinu sem fer að kveðja. Konur áttu þar stóran þátt og hver skáldkonan á fætur annarri sendi frá sér magnaðan skáldskap. Við grípum niður í nokkrar þessara ljóðabóka í tilraun til að endurspegla þá margbreytni sem ríkir í ljóðaútgáfunni.

Frumflytja fjögur jólalög eftir Hafliða
Schola cantorum flytur á jólatónleikum sínum á sunnudaginn tónlist frá ýmsum tímum, þar á meðal fjögur ný jólalög eftir Hafliða Hallgrímsson.

Vasi með verkum tíu listamanna
Listamennirnir Curver Thoroddsen, Eggert Pétursson og Elín Hansdóttir eru meðal þeirra sem eiga verk í nýrri Salon-seríu Gamla Sfinxins í Kunstschlager.

Áhugi á Grími Thomsen hefur fylgt mér lengi
Kristján Jóhann Jónsson dósent hefði gjarnan viljað þekkja Grím Thomsen í lifanda lífi. Það er niðurstaða þeirra rannsókna sem liggja til grundvallar bók hans, Grímur Thomsen, þjóðerni, skáldskapur, þversagnir og vald.

Frábær íslensk tónverk frumflutt
Tónlistarárið 2014 var í það heila gott ár í klassískri tónlist að mati Jónasar Sen. Frábær íslensk ópera frumflutt, góðir gestir sóttu landið heim, haldið var upp á afmæli Sumartónleika í Skálholti og Kammersveitar Reykjavíkur og er þá fátt eitt talið.

Slegist um Öræfin hans Ófeigs
Fjórða prentun af skáldsögu Ófeigs Sigurðssonar kemur í verslanir eftir helgi.

Lolita enn jafn áhrifamikil
Lolita eftir Vladimir Nabokov, ein umdeildasta bók allra tíma, er komin út í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar. Efnið er eldfimt, söguhetjan Humbert Humbert er gagntekinn af barnungri stúlku, er sem sagt barnaníðingur sem segir söguna út frá eigin viðmiðum.

Hymnodia og Sigurður Flosason í Akureyrarkirkju
Jólatónleikar Kammerkórsins Hymnodiu verða í Akureyrarkirkju á mánudagskvöldið. Sérstakur gestur er Sigurður Flosason saxófónleikari.

Valin til þátttöku í Northern Lights
Þóra Karítas Árnadóttir og Jóhann G. Jóhannsson voru valin til að taka þátt í Northern Lights-verkefninu á kvikmyndahátíðinni í Berlín 2015.