Skoðun

Það er vandlifað í henni neysluveröld
Jólin eru handan við hornið og stærstu útsöludagar ársins yfirvofandi. Ég veit ekki með ykkur en ég fæ vanalega hnút í magann mörgum vikum áður en þeir skella á. Pressan til að stökkva á tilboð og nýta mér afslætti við kaup á hlutum sem ég þarf ekki, í þeim eina tilgangi að spara kannski nokkra þúsundkalla, verður mér einfaldlega ofviða.

Norðurlandamet í rangfærslum án atrennu
Atli Bollason heitir tæplega fertugur maður sem er titlaður fjöllistamaður (e. „multi disciplinary artist“) og munar um minna. Í grein á Vísi í gær, undir titlinum „Takk, Katrín!“ útbýr hann einhvers konar innsetningu þar sem hver staðreyndavillan og rangtúlkunin rekur aðra.

Ábyrgð okkar allra gagnvart Grindvíkingum
Fyrir þrjátíu árum gekk ég í Björgunarsveit Hafnarfjarðar af því að ég fann mig knúinn til þess að gefa til baka til samfélagsins. Af sömu ástæðu hef ég boðið fram krafta mína, reynslu og þekkingu undanfarna tíu daga í Samhæfingarstöð Almannavarna.

Lífsfylling í stað landfyllingar í Þorlákshöfn
Í maí síðastliðnum handsalaði staðgengill bæjarstjóra í Ölfusi samkomulag við Embættilandlæknis um að Þorlákshöfn yrði nú formlega heilsueflandi samfélag. Það felur í sér að styðja samfélög í að skapa umhverfi sem stuðlar að aukinni heilsu og vellíðan íbúa og að ákvarðanir sveitarfélags séu teknar með þau markmið að leiðarljósi.

Flokkur fólksins leggur til auknar álögur á skuldsetta
Í dag mælir formaður Flokks fólksins, fyrir hönd alls þingflokksins, fyrir tæplega sexföldun bankaskatts. Samkvæmt greinargerð er áætlað að aðgerðin skili 30 þúsund milljónum í ríkissjóð á ársgrundvelli. Hvaðan ætli þessir peningar komi?

45.000 strætóferðir
Höfuðborgarsvæðið hefur lengi þróast eftir áherslum sem ýta undir bílaumferð með dreifðri byggð og einsleitum íbúðahverfum í stækkandi jaðri. Slíkt umhverfi er mikil áskorun fyrir góðar samgöngur.

Grindvíkingarnir og froðan
Eins og frægt að endemum er orðið hafa lánastofnanir landsins boðið Grindvíkingum greiðslufrystingu á húsnæðislánum sínu með þeim skilyrðum að vextir og verðbætur sem safnast yfir frystingartímann leggist á höfuðstól lánsins.

Á ríkið að reka flutningsfyrirtæki?
Svarið við því er skýrt NEI í mínum huga, en þá má velta fyrir sér hvað Íslandspóstur er og af hverju hann er enn þá í eigu ríkisins.

Vöndum okkur
Við erum líklega flest meðvituð um það að ofneysla veitir okkur ekki hamingju, og að í raun gengur hún á möguleika okkar og annarra til að vera hamingjusöm. Við eyðum fjármagni í vörur sem koma okkur ekki að neinu gagni, veita okkur enga hamingju og enda jafnvel beint í ruslinu - við kaupum til að henda.

Ábyrgð Vesturlanda á fjöldamorðunum á Gasa
Sagan geymir dæmi um ógnarverk sem hið svokallaða „alþjóðasamfélag“ brást ekki við. Það hefur verið horft til þess með hryllingi og spurt: Af hverju var ekki brugðist við?

Ráðgjafa- og skýrslukaup borgarinnar komin úr böndum
Í gegnum árin hef ég sem oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn ítrekað vakið máls á sóun og bruðli í Reykjavíkurborg þegar kemur að aðkeyptri þjónustu eins og kaup á ráðgjöf og skýrslum eða kaup á ýmsum verkefnum stórum sem smáum.

Fánaberar stríðsins eru vestanhafs
Vegna þeirrar blóðugu styrjaldar sem enn geisar fyrir botni Miðjarðarhafs hefur samstaða alþjóðarsamfélagsins fengið á sig þungt högg. Ekki ber síður að merkja höggið sem hefur sprungið eins og bóla framan í samfélög sem stórir minnihlutahópar búa í.

Tek undir með Vilhjálmi Birgissyni um að metnir verði kostir og gallar nýs gjaldmiðils
Ég tek undir með formanni Starfsgreinasambandsins sem telur rétt að þjóðin meti kosti og galla þess að taka upp annan gjaldmiðil. Gjaldmiðlar hafa nefnilega kosti og galla eins og Vilhjálmur bendir á.

Hvenær er líf verðmætt?
Við erum rosalega upptekin af kerfum. Ef það er ekki kapitalismi þá er það sosialismi eða kommunismi. Hvaðan á peningurinn að koma til þess að laga öll vandamálin sem við höfum búið til? Peningur er fyrirbæri sem hefur ekkert verðmætagildi nema í huganum okkar.

Orkulaus ríkisstjórn
Frammistaða ríkisstjórnarinnar í orkumálum var nýlega rakin á haustfundi Landsvirkjunar. Þröng staða blasir við heimilum næstu árin þar sem þau eru afgangsstærð í baráttunni um raforku, leyfisveitingaferli nýrra virkjana er komið út í skurð og háleit markmið Íslands í orkuskiptum virðast að engu orðin.

Takk, Katrín!
Um mánaðarmótin verða liðin sex ár frá því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum. Ég vil nota tækifærið og fá að þakka þér, Katrín, fyrir styrka stjórn á forsætisráðherrastóli þessi umbrotaár. Ráðherrarnir hafa verið alls konar en óhvikandi stuðningur þinn við allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hefur sýnt okkur hver stendur í brúnni.

Falleinkunn matvælaráðherra og MAST
Skýrsla Ríkisendurskoðunar, stjórnsýsluúttekt, skýrsla til Alþingis, eftirlit með velferð búfjár hefur litið dagsins ljós. Nokkuð umfangsminni en ég hafði gert mér vonir um enda kynnt sem umfangsmeiri fyrir um ári síðan. Um mjög mikilvægan málaflokk er að ræða, sem lýtur að velferð allra dýra, sem falla undir lög um velferð dýra.

Dropinn holar steininn
20. nóvember er dagur þar sem við minnumst þess trans fólks sem við höfum misst. Fólk sem hefur orðið ofbeldi að bráð eða hefur fallið fyrir eigin hendi í kjölfar útskúfunar samfélagsins eða vegna þeirrar vanlíðunar sem það veldur að fá ekki viðeigandi þjónustu.

Skimun á villigötum
Nýverið hóf fyrirtæki á Íslandi að auglýsa „heilskimun“ með segulómun til að skima fyrir alls kyns kvillum þar með talið krabbameinum. Greinarhöfundar hafa, fyrir hönd fagfélaga lækna, miklar áhyggjur af þessari þróun og mæla ekki með því að almenningur fari í slíka rannsókn.

Málskostnaður, Réttlæti hins sterka
Sennilega voru málskostnaðargreiðslur í dómsmáli í upphafi hugsaðar sem skaðabætur fyrir sannanlega ómaklega lögsókn á hendur blásaklausu fólki. Nú eru þær notaðar, að því er virðist, sem tilviljanakenndar refsingar fyrir að tapa dómsmáli eða þætti þess. Þær eru greiddar gagnaðila í málinu.

Með hendur í vösum?
Ágæta Halla. Íslendingar skilja út á hvað lýðheilsa gengur. Skilja mikilvægi þess að hafa regluverk sem hefur verndandi áhrif. Ekki síst í þágu barna og ungmenna. Íslendingar flestir vita að áfengi, tóbak og nikótín eru heilsuspillandi vörur sem geta undir engum kringumstæðum flokkast sem venjulegar vörur.

Fæst hamingjan á útsölu?
Hvað lætur okkur líða vel? Árið 2008 fól breska ríkisstjórnin samtökunum New Economic Foundation að safna saman niðurstöðum úr fjölda rannsókna sem hafa skoðað hvað það er sem eykur lífshamingju og vellíðan fólks um heim allan.

Verndun og eyðilegging þjóðsagnastaða
Í lögum um minjavernd nr. 80/2012 er fjallað um mannvirki og landslag sem er friðað. Í yfirliti um staði sem njóta slíkrar verndar eru nefndir „þingstaðir, meintir hörgar, hof og vé, brunnar, uppsprettur, álagablettir og aðrir staðir og kennileiti sem tengjast siðum, venjum, þjóðtrú eða þjóðsagnahefð.“

Líður að tíðum
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag, við erum gestir og hótel okkar er jörðin. En þó látum við líkt og við séum með tögl og hagldir í óskoruðum eignarrétti. Viðhorf er vald og nú þegar líður að tíðum er við hæfi að líta inn á við og opna hjörtu vor.

Hvað er eiginlega þetta Hamas?
Það er fátt sem nefnt er oftar í fréttum þessa dagana en Hamas-samtökin í Palestínu. Hamas-samtökin, eða Íslamska andspyrnuhreyfingin, einsog þau heita fullu nafn, voru stofnuð um miðjan desember 1987 og eru um hálfum mánuði yngri að árum en Félagið Ísland-Palestína sem var stofnað 29. nóvember 1987.

ADHD og núvitund: Hvernig ástundun núvitundar getur hjálpað til við að stjórna ADHD einkennum
Að lifa með ADHD getur verið áskorun og getur oft verið yfirþyrmandi að stjórna einkennum þess. En vissir þú að það að æfa núvitund getur verið áhrifaríkt tæki til að stjórna ADHD einkennum?

Skammsýni í leikskólamálum – VR efnir til málþings
Nokkur sveitarfélög hafa nú riðið á vaðið með að stytta leikskóladag barna í sex klukkustundir. Hin æskilega samfélagsbreyting væri að sjálfsögðu sex klukkustunda vinnudagur sem síðan gæti leitt til styttri leikskóladags og meiri samvista barna og foreldra.

Sama sagan
Hinn skelleggi og rökfasti verkalýðsforingi Vilhjálmur Birgisson var í viðtali í síðdegisútvarpi Bylgjunnar fyrir stuttu síðan. Þar ítrekaði hann þá skoðun sína að fullreynt væri að Íslenska krónan hentaði ekki fyrir sína skjólstæðinga eða hinn venjulega Íslending.

Hættum viðskiptum við Rapyd sem styður morð á saklausu fólki
Við horfum öll með hryllingi á svívirðilegar árásir Ísraelshers á varnarlaust fólk á Gasa og Vesturbakkanum þar sem vopnlaust fólk er drepið í þúsundavís og heimili, skólar og aðrir innviðir lagðir í rúst með sprengjuregni frá einu öflugasta herveldi heims.

Langvinnir verkir: ef við skiljum verkina, getum við skilið við þá?
Flest erum við líklega sammála því að heilsan er eitt það dýrmætasta sem við eigum og hún leikur stórt hlutverk í hamingju okkar og velsæld. Góð heilsa, bæði líkamleg og andleg, er undirstaða þess að hafa orku og getu til að njóta lífsins til fulls, sinna hugðarefnum og áhugamálum, sinna fjölskyldu og vinnu og leggja sitt af mörkum í samfélaginu – hún er undirstaða þess að við getum blómstrað í lífinu.