Skoðun

Hvaða áhrif hafa úrslitin?

Sú spurning er nú á allra vörum hver muni verða áhrifin af sigri George W. Bush í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í gær. Menn velta því til dæmis fyrir sér hvort þau leiði til þess að Bandaríkjamenn verði enn harðskeyttari á alþjóðavettvangi en áður. Verður innrásinni í Írak fylgt eftir með árás á ríki sem Bandaríkin telja hættuleg heimsbyggðinni, svo sem Íran og Norður-Kóreu? Hvað gerist í Írak? Hvernig verður hryðjuverkastríðið háð? Og hvernig munu samskiptin við hina fornu bandamenn í Evrópu þróast?

Ljóst er að yfirgnæfandi meirihluti Evrópubúa og evrópskra stjórnmálamanna hefði kosið að John Kerry hefði orðið forseti. Þó að stefna hans í ýmsum málum sé óljós var talið að hann vildi fara hægar í sakirnar í ýmsum stórum mál eins og Evrópuþjóðirnar. Hann var talinn maður samráðs frekar en valdboðs, nær evrópskum stjórnmálahefðum en þeim vinnubrögðum í stjórnmálum sem komið hafa til sögu á kjörtímabili Bush.

Vonbrigði einkenna einnig viðbrögðin víða utan Evrópu. Bush er maður hinnar umdeildu hnattvæðingar og fylgir því sem stundum er kallað menningarleg stórveldastefna.

En umheimurinn verður að horfast í augu við að Bush er löglegakjörinn forseti með yfirgnæfandi fylgi þjóðar sinnar. Spádómar um annað reyndust litaðir af óhóflegri óskhyggju.

Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig leiðtogar Þýskalands og Frakklands bregðast við. Þeir hafa verið óánægðir með stefnu Bush og enginn vafi er á því að þeir hefðu kosið að fá Kerry í Hvíta húsið. Líklegt er hins vegar að Tony Blair forsætisráðherra fagni endurkjöri Bush enda mun það styrkja hann á alþjóðavettvangi. Bandaríkjamenn gleyma ekki vinum sínum.

Fyrir Íslendinga kunna úrslitin að leiða til samkomulags um rekstur varnarstöðvarinnar í Keflavík sem yrði nær sjónarmiðum íslenskra stjórnvalda en ella hefðu fengist fram. Þess vegna er ekki furða að Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson hafi verið glaðir í bragði í dag. Framtíð og skipulag varnarsamstarfsins mun skýrast eftir fund Davíðs og Powells utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Washington 16. nóvember.. Powell hefði vafalaust ekki boðað til fundarins ef hann væri ekki tilbúinn að klára málið í stórum dráttum.

En hvað finnst lesendum Vísis um endurkjör Bush? Hvað finnst þeim líklegt að gerist á alþjóðavettvangi? Er heimurinn tryggari eða ótryggari staður með Bush á forsetastólnum í Hvíta húsinu? Hér fyrir neðan er hægt að skrifa skoðun sína og birtist þá strax á vefnum. Áhugaverðustu framlögin verða endurbirt í Fréttablaðinu.

Guðmundur Magnússon -gm@frettabladid.is




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×