Skoðun

Ferðaþjónustan og sveitarfélögin

Bjarnheiður Hallsdóttir og Pétur Óskarsson skrifar
Umræðan um gjaldtöku af ferðamönnum sem heimsækja Ísland er enn í fullum gangi og hefur fólk úr ýmsum áttum lagt orð í belg, enda gríðarlega mikilvægt og umfangsmikið mál. Í raun hefði verið eðlilegra að sú umræða sem nú er í gangi í samfélaginu hefði átt sér stað fyrr og auðvitað áður en iðnaðarráðherra lagði fram frumvarp um náttúrupassa.

Umræða og skoðanaskipti um þetta málefni áttu sér nefnilega aldrei stað, heldur var óskilgreind hugmynd sem var kölluð „náttúrupassi“ gripin á lofti og henni gefnir vængir. Það er svo ótal margt sem hefur komið fram við nánari hugsun og skoðun fjölmargra aðila, sem betur hefði verið hugað að fyrr. Við höfum nýverið í tveimur greinum hér í Fréttablaðinu, fjallað um rök gegn náttúrupassanum og rök fyrir því að tekið verði upp komugjald í einhverri mynd. Við stöndum heilshugar við það sem þar kom fram en viljum nú bæta við hugleiðingum um svokallaðan staðarskatt/svæðisskatt/borgarskatt („Kurtaxe“, „City Tax“)sem mögulega leið eða hluta af blandaðri leið, t.d. viðbót við komugjöld.

Sú umræða er að verða æ háværari að einstök sveitarfélög á Íslandi, sem taka á móti þúsundum ef ekki hundruðum þúsunda ferðamanna ár hvert, hafi litlar sem engar tekjur af atvinnugreininni, en hins vegar séu gerðar á þau alls kyns kröfur, hvað varðar aðstöðu og aðbúnað fyrir ferðamennina. Einnig má því miður í vaxandi mæli heyra neikvæðar raddir meðal íbúa einstakra svæða, sem eru farnir að líta á ferðamenn sem truflun og jafnvel skaðvalda í samfélaginu. Með auknu umfangi ferðaþjónustu undanfarinna ára er mjög eðlilegt að þetta komi upp og eitthvað sem mátti búast við miðað við reynslu þjóða með mörg hundruð ára reynslu af atvinnugreininni ferðaþjónustu.

Löng hefð fyrir svæðisskatti

Það væri mjög æskilegt að á Íslandi verði til tekjustofn sem tilheyrir beint þeim sveitarfélögum sem taka á móti ferðamönnum. Leiðin til þess er í gegnum gjald sem við skulum hér kalla „svæðisskatt“. Löng hefð er fyrir þess konar skatti í Evrópu, t.d. í Þýskalandi, þar sem þess háttar skattur var lagður á í Baden-Baden árið 1507 og í Austurríki, þar sem skatturinn var fyrst lagður á árið 1842. Þessi skattur er oftast greiddur samhliða gistingu og síðan greiddur beint af rekstraraðila til viðkomandi sveitarfélags, án millilendingar í ríkissjóði. Sveitarfélögin ráða upphæðinni sjálf og samkeppni á millil svæða tryggir að gjaldið fari ekki úr böndunum.

Þessi aðferð gerir sveitarfélögum kleift að fjárfesta í innviðum og þjónustu, sem einstaklingar sjá sér ekki hag í að byggja upp og reka, s.s. göngustígum, útsýnispöllum, bílastæðum, salernisþjónustu og mörgu fleiru. Á sama tíma verður ávinningur samfélagsins af þjónustu við ferðamenn íbúum svæðanna greinilegri og sjálfkrafa skapast þrýstingur frá nærumhverfinu á rekstraraðila viðkomandi svæðis að vera með löglega og skráða starfsemi.

Eins og oft hefur verið bent á, er algjör óþarfi fyrir okkur Íslendinga að finna upp hjólið hvað varðar hinar ýmsu aðgerðir í ferðaþjónustunni. Nær er að læra af þjóðum sem hafa öldum saman tekið á móti gestum og rekið sig á flest það sem við erum nú að reka okkur á með látum.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×