Skoðun

Nú er lag

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Eftir hartnær hundrað ár af samfelldum framförum í heilbrigðisvísindum hefur okkur tekist að útrýma skelfilegum sjúkdómum og bæta lífsgæði okkar til muna. Í þessu samhengi er það sláandi hversu litlar framfarir hafa orðið í baráttunni við krabbamein. Þó svo að mikið hafi áunnist í meðhöndlun krabbameina þá erum við álíka vel upplýst um hvernig megi koma í veg fyrir krabbamein og vísindamenn voru við upphaf 20. aldarinnar.

Krabbamein er ekki nýr sjúkdómur. Hann er ævaforn og birtingarmyndir hans ótal margar. Ein slík birtingarmynd er krabbamein í blöðruhálskirtli. Að meðaltali greinast 214 karlar á Íslandi með krabbameinið á ári og á árunum 2012 til 2016 dró sjúkdómurinn 56 karlmenn að meðaltali til dauða á ári. Þetta er langsamlega algengasta krabbameinið hjá íslenskum körlum.

Krabbameinsfélagið beinir í marsmánuði sjónum sínum að krabbameini í blöðruhálskirtli, þar sem félagið kallar um leið eftir nauðsynlegum stuðningi almennings og fyrirtækja og hvetur karla til að kynna sér þennan lúmska og oft lífshættulega sjúkdóm. Árvekni almennings er mikilvæg. Heilsusamlegt líferni hans sömuleiðis. En ekkert getur komið í veg fyrir sjúkdóminn, enda er hann í grunninn háður sömu lögmálum þróunarinnar og hjálpuðu okkur að sigrast á eigin veikleikum og áskorunum.

Krafan um lækningu við krabbameini er eðlileg og sanngjörn. Enn brýnni er krafan um að sú þekking sem er til staðar sé nýtt til góðs. Tíunda hvert krabbamein má rekja til erfða og það hlutfall er sömuleiðis hátt þegar blöðruhálskirtilskrabbamein er annars vegar. Eins og áður hefur verið fjallað um á síðum Fréttablaðsins eru Íslendingar í einstakri stöðu til að gerast brautryðjendur í notkun erfðaupplýsinga í heilbrigðisþjónustu. Í tilfelli krabbameins í blöðruhálskirtli er vitað að tvær tegundir landnemastökkbreytinga auka líkur á meininu, þetta eru stökkbreytingar í BRCA2 og breytingar sem kenndar hafa verið við Lynch-heilkenni (MLH1, MSH2 og MSH56) en vísbendingar eru um að heilkennið sé hvergi algengara en hér.

Þó svo að stóran hluta krabbameina í blöðruhálskirtli megi ekki rekja til erfða er ljóst að á Íslandi er stór hópur karla með auknar líkur á að fá sjúkdóminn, einfaldlega út frá genum sínum. Þennan hóp þarf að halda utan um, jafnvel koma til bjargar, og boða í reglubundna skimun fyrir hækkuðu gildi mótefnavaka úr blöðruhálskirtli. Nú þegar eru í gangi umfangsmiklar rannsóknir sem rýna í hvernig hægt er að framkvæma skilvirkari skimanir á þeim sem bera þessar stökkbreytingar.

Við höfum daðrað við að nota þessar upplýsingar í almennri heilbrigðisþjónustu og þá sem einstaklingsmiðaðar forvarnir. Starfshópur var skipaður til að móta stefnu á þessu sviði. Þetta var í desember árið 2016 og átti niðurstaða að liggja fyrir 1. nóvember árið 2017. Enn hefur ekkert heyrst frá starfshópnum.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×