Skoðun

Öryggi eða öngstræti

Logi Einarsson skrifar
Það er nöturlegt að fólk í fullri vinnu geti tæpast framfleytt sér og fjölskyldum sínum. Barnafjölskyldur hafa margar hverjar ekkert svigrúm til að veita sér og börnum sínum þátttöku í tómstundum og félagslífi sem telst sjálfsagt og nauðsynlegt öllum. Bág kjör öryrkja og aldraðra eru því miður vel þekkt hérlendis og framfærsla námsmanna dugir ekki til þess að lifa á.

Þótt þrotlaus barátta fyrir betri kjörum almennings hafi skilað miklu síðustu 120 árin, er enn langt í land.

Hluti vandans er húsnæðismarkaður sem er í algjöru öngstræti. Þörfin fyrir tryggt húsnæði er ekki bara ein af grunnþörfum mannsins, heldur er heimilið mikilvægur þáttur í að búa fólki það öryggi og umhverfi sem er líklegt til að skapa heilbrigða einstaklinga og gott samfélag.

Óvissa og óboðlegar aðstæður

Raunverð húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu er hærra en nokkru sinni fyrr. Margir geta því hvorki keypt né leigt og búa við óvissu og óboðlegar aðstæður. Óprúttnir aðilar hafa séð sér leik á borði; gróðavædd leigufélög dafna sem aldrei fyrr og nýta sér erfiða stöðu fólks. Afleiðingarnar eru grafalvarlegar. Leigjendur eiga oftar í fjárhagsvandræðum en aðrir og börn leigjenda líklegri til að búa við skort.

Í dreifbýlinu blasir svo við annars konar vandamál. Þar vantar einnig húsnæði en framleiðsluverð er langt yfir markaðsverði, enginn drifkraftur til að byggja og möguleikar byggðanna til að dafna minnka.

Það eru einfaldlega ekki nógu sanngjarnar lausnir í boði.



Uppbygging og aðgerðir

Fyrir tilstuðlan verkalýðshreyfingarinnar náðist mikilvægur árangur við gerð kjarasamninga árið 2015 þegar samið var um stofnstyrki til uppbyggingar á almennum leigumarkaði. Reykjavík og fleiri sveitarfélög hafa staðið í mikilli uppbyggingu en þörf er á frekari samhæfðum aðgerðum.

Samfylkingin hefur lagt fram þingsályktunartillögu sem gerir ráð fyrir byggingu 5.000 leiguíbúða svo fljótt sem auðið er. Íbúðirnar eiga að nýtast til þess að koma fótunum undir leigumarkað sem er rekinn án hagnaðarsjónarmiða.

Þá þurfa fleiri sveitarfélög að fylgja fordæmi Reykjavíkur og Akureyrar og axla ábyrgð með uppbyggingu félagslegs húsnæðis.



Sameinumst um stórátak

Mikilvægt er að stuðningur hins opinbera auki öryggi þar sem þörfin er mest. Fyrsta skrefið er að hækka barna- og vaxtabætur til muna, enda nýtast þau úrræði vel til að tryggja fólki húsnæðisöryggi og koma í veg fyrir að börn séu á hrakhólum. Í dag byrja barnabætur að skerðast undir lágmarkslaunum og vaxtabætur eru sögulega lágar.

Um leið og ég óska ykkur gleðilegs baráttudags verkalýðsins, óska ég þess að þjóðin sameinist um stórátak í húsnæðismálum, sem miðar að því að tryggja öllum öruggt húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Það væri mikilvægt skref í þá átt að ráðast gegn fátækt í einu ríkasta landi jarðar.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×