Sögulegt mikilvægi þess að Sólveig Anna verði næsti formaður Eflingar! Júlíus Valdimarsson skrifar 12. febrúar 2022 22:31 Flestallir Íslendingar vita að með kosningu Sólveigar Önnu sem formanns Eflingar 2018 hófust nýir tímar í sögu verkalýðshreyfingarinnar og það kom „Vor í Verkó“! Nýleg saga segir okkur að með þessum tímamótum hófst bylting sem þegar hefur náð þeim árangri að að vekja þann sofandi risa sem Efling var orðin að og endurvekja félagið sem forystuafl í verkalýðsbaráttunni eins og forveri þess var undir nafni Verkamannafélagsins Dagsbrúnar fram yfir miðja síðustu öld. Svefnpillan sem svæfði hreyfinguna þessum langa svefni var gefin með samningsgerð verkalýðsfélaganna um stofnun almennu lífeyrissjóðina í maí 1969. Í þessum samningum gáfu verkalýðsfélagfélögin eftir upphaflega kröfu sína um að verkafólk skyldi hafa stjórn á sínum eigin sjóðum í skiptum fyrir jafna aðild að stjórn lífeyrissjóðanna á við atvinnurekendur. Með þessum afdrifaríku samningum voru örlögin ráðin. Verkalýðshreyfingin steig þarna sitt fyrsta skref í þá átt að breytast úr baráttusamtökum með hagsmuni verkafólksins að leiðarljósi yfir í að verða einn af aðaleigendum fyrirtækjanna, þessara sömu fyrirtækja og verkalýðsfélögin þurftu að semja við og berjast þannig sífellt við sinn eigin skugga við samningaborðið. Ég tók þátt í samningunum um lífeyrissjóðina 1969, þá 23ja ára gamall og nýorðinn framkvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaganna, sem var samningsaðili við verkalýðsfélögin fyrir hönd SÍS – Sambands íslenskra samvinnufélaga og dótturfélaga þess, sem og fyrir hönd kaupfélaganna og atvinnureksturs á vegum þeirra um allt land. Ég var upplýstur um það þegar almennu lífeyrissjóðirnir héldu upp á 50 ára afmæli sitt 2019 að ég væri eini núlifandi fulltrúi atvinnurekenda sem hefðu skrifað upp á þennan samning. Af þessum ástæðum get ég upplýst frá fyrstu hendi að sú sögufölsun sem höfð hefur verið eftir Gylfa Arnbjörnssyni og fleirum í gegnum tíðina að verkalýðsfélögin hefðu samið um aðild atvinnurekenda að stjórnum lífeyrissjóðanna, vegna færni þeirra og þekkinar á fjármálum sem verkalýðsfélögin skorti, er einfaldlega ekki sönn. Verkalýðsfélögin settu fram skýra kröfu í samningunum 1969 um að verkafólkið hefði fulla stjórn yfir lífeyrisssjóðunum og fjármagni þeirra, enda höfðu verkalýðsfélögin ákveðið í þessum samningum að setja ekki fram neinar launakröfur en semja þess í stað um lífeyrissjóði í þágu félagsmanna sinna. Helsti talsmaður verkalýðsfélaganna og baráttumaður fyrir þessari kröfu var Eðvarð Sigurðsson, formaður verkamannafélagsins Dagsbrúnar eins og félagið hét þá og er forveri Eflingar. Eðvarð var gegnheill maður í verkalýðsbaráttunni auk þess að vera ógleymanlegur mannvinur og húmanisti. Hann útskýrði á sinn rólega og rökfasta hátt að þegar atvinnurekendur hefðu samið við verkalýðsfélögin um sjóðina í stað launahækkana þá þýddi það að þeir afsöluðu þesssu fjármagni í hendur verkalýðsfélaganna og félagsmanna þeirra sem ættu að sjá um ráðstöfun þess enda sjóðirnir ætlaðir í þágu þeirra. Mér eru sérstaklega minnistæð orð Eðvarðs Sigurðssonar sem hann lét falla í þessu sambandi í hita leiksins á göngunum þar sem samningarnir fóru fram. Þá sagði Eðvarð í heyranda hljóði og var mikið niðri fyrir: „Ef það er eitthvað atriði sem ég mun aldrei gefa eftir í þessum samningum þá er það krafan um að lífeyrissjóðirnir verði undir stjórn verkalýðsfélaganna.“ Samningarnir voru langir og strangir og ég veit ekki hvað endanlega gerðist innan stóru samninganefndar ASÍ þar þar sem öll verkalýðsfélögin tóku þátt, en svo fór að lokum að samkomulag náðist um að fjöldi stjórnarmanna i lífeyrissjóðunum yrði jafn eins og raunin varð þannig að viðhorf Eðvarðs hefur þar verið borið ofurliði.“ Ég nefni þennan pistil minn; „Sögulegt mikilvægi þess að Sólveig Anna verði næsti formaður Eflingar.“ Skýringin á því að ég staðhæfi um þetta „sögulega mikilvægi“ er að í Sólveigu Önnu sé ég þann eldmóð og baráttustyrk sem maður skynjaði hjá Eðvarði og ýmsum öðrum af þeim baráttujöxlum verkalýðshreyfingarinnar sem ég kynntist í starfi mínu fyrir Vinnumálasambandið fyrr á árum. Eins og ég nefndi í upphafi tókst henni í formannstíð sinni eftir kosningarnar í Eflingu 2018 ásamt harðsnúnum félagsmönnum Eflingar að snúa leiknum við og gera félagið að raunverulegu baráttutæki fyrir hagsmunum í þágu félagsfólksins. Ef það var nauðsynlegt 2018 þá er sú nauðsyn jafnvel enn brýnni núna. Ég hvet því félagsfólk Eflingar að taka þátt í yfirstandandi kosningum innan félagsins og kjósa Baráttulistann X-B!! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ólga innan Eflingar Stéttarfélög Mest lesið Háskólinn og rektorskjörið Gyða Margrét Pétursdóttir ,Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir Skoðun Fékk hann ekki minnisblaðið? Hjörtur J Guðmundsson Skoðun Betra og skilvirkara fjármálakerfi Benedikt Gíslason Skoðun Þegar heiftin nær tökum á hrútakofanum Heimir Már Pétursson Skoðun Geðræni sjúkdómurinn sem gleymist að tala um Stefán Guðbrandsson Skoðun Áskorun til atvinnuvegaráðherra Björn Ólafsson Skoðun Halldór 15.02.2025 Halldór Hvammsvirkjun – frumhlaup og gullhúðun Mörður Árnason Skoðun Sérlög til verndar innflytjendum? Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Skattahækkanir, miðstýring og ESB-þráhyggja Anton Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Betra og skilvirkara fjármálakerfi Benedikt Gíslason skrifar Skoðun Háskólinn og rektorskjörið Gyða Margrét Pétursdóttir ,Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir skrifar Skoðun Fékk hann ekki minnisblaðið? Hjörtur J Guðmundsson skrifar Skoðun Áskorun til atvinnuvegaráðherra Björn Ólafsson skrifar Skoðun Skattahækkanir, miðstýring og ESB-þráhyggja Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Sérlög til verndar innflytjendum? Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Höldum yngri þingmönnum aðskildum frá hinum eldri ! Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – frumhlaup og gullhúðun Mörður Árnason skrifar Skoðun Geðræni sjúkdómurinn sem gleymist að tala um Stefán Guðbrandsson skrifar Skoðun Aukinn veikindaréttur – aukið jafnrétti kynjanna – fyrir félagsfólk VR Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar Skoðun Þegar heiftin nær tökum á hrútakofanum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Verður dánaraðstoð leyfð í Danmörku í náinni framtíð? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Flugvöllur okkar allra! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Svar við rangfærslum Félags atvinnurekenda um tollamál Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við þurfum að ræða um Evrópusambandið Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Sannleikurinn um undirbúning útlendingafrumvarpsins Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig bætum við stafræna umgjörð heilbrigðiskerfisins? Arna Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar raunveruleikinn er forritaður Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvernig byggjum við framtíð matvælaiðnaðar á Íslandi? Oddur Már Gunnarsson,Salvör Jónsdóttir skrifar Skoðun Á Sjálfstæðisflokkurinn sér viðreisnar von? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Valentínus Árni Már Jensson skrifar Skoðun Velferð framar verðstöðugleika: Hvers vegna lífskjör ættu að vera aðalatriðið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Barnavernd í brennidepli! Merki um öryggi – Signs of Safety Gyða Hjartardóttir skrifar Skoðun Kolbikasvört staða María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Faglegt og jákvætt sérfræðiálit Skipulagsstofnunar um Coda Terminal Edda Sif Pind Aradóttir skrifar Skoðun Ekkert um okkur án okkar Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun One way Ticket á Litla-Hraun í framtíðinni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Rauðsokkur í Efra-Breiðholti Edith Oddsteinsdóttir skrifar Skoðun Jafningjafræðsla um stafrænt ofbeldi Hjalti Ómar Ágústsson skrifar Skoðun Hugtakinu almannaheill snúið á haus Björg Eva Erlendsdóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir,Árni Finnsson ,Snæbjörn Guðmundsson,Elvar Örn Friðriksso,Friðleifur E. Guðmundsson,Snorri Hallgrímsson,Sigþrúður Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Háskólinn og rektorskjörið Gyða Margrét Pétursdóttir ,Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir skrifar
Skoðun Aukinn veikindaréttur – aukið jafnrétti kynjanna – fyrir félagsfólk VR Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar
Skoðun Hvernig byggjum við framtíð matvælaiðnaðar á Íslandi? Oddur Már Gunnarsson,Salvör Jónsdóttir skrifar
Skoðun Velferð framar verðstöðugleika: Hvers vegna lífskjör ættu að vera aðalatriðið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Faglegt og jákvætt sérfræðiálit Skipulagsstofnunar um Coda Terminal Edda Sif Pind Aradóttir skrifar
Skoðun Hugtakinu almannaheill snúið á haus Björg Eva Erlendsdóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir,Árni Finnsson ,Snæbjörn Guðmundsson,Elvar Örn Friðriksso,Friðleifur E. Guðmundsson,Snorri Hallgrímsson,Sigþrúður Jónsdóttir skrifar