Nám fyrir alla: Jafnræði í menntun Aðalheiður Marta Steindórsdóttir skrifar 13. september 2023 09:31 Úr 17. grein lögum um grunnskóla: „Nemendur eiga rétt á að komið sé til móts við námsþarfir þeirra í almennum grunnskóla án aðgreiningar, án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis“. Mér er reglulega hugsað til þessarar greinar þegar ég hugsa um nemendur sem eru með fatlanir sem ekki sjást utan á þeim, og baráttu sem á sér stað í þessu kassalaga kerfi okkar. Ef ég hugsa um einstakling sem er lamaður, þá fær hann ekki á hæfnikortið sitt: „Þarnast þjálfunar“ í hlaupi heldur er fundin leið fyrir þennan einstakling til þess að hæfniviðmið í íþróttum markist af færni hans og getu. En þegar það er komið að barni sem er með ósjáanlega fötlun þá þarf stöðugt að benda á hver er fötlun hans og minna á hvað hann getur og hvað ekki. Svo eru þessir einstaklingar flokkaðir í kassa. Við sem samfélag erum stöðugt að setja einstaklinga í hólf. Hverjir geta farið í áframhaldandi nám, hverjir eiga að „læra“ að vinna og koma sér út á vinnumarkaðinn. Það eru nokkrir sem “fá” það tækifæri að velja það sem þeir vilja læra og þeir vilja gera. Þetta er ekki spurning um hvað ég vil að barnið mitt læri, heldur hvað því langar að gera. Ég ólst upp við það að eiga systur sem var í Heyrnleysingjaskólanum í Reykjavík, það voru ekki margir í skólanum sem fóru í áframhaldandi nám, þess þó heldur að velja hvað þau vildu gera. En foreldrar mínir voru engu að síður staðráðin í því að systir mín fengi þetta val. Systur minni langaði að læra á hljóðfæri, það var af og frá hún var heyrnarskert, hún „heyrði“ ekki tónlist en lærði á orgel hjá afa mínum og var lagviss. Hún einnig lærði nokkur grip á gítar. Það var ekki hægt að kenna Döff einstaklingum dans, því þau heyrðu ekki í tónlistinni en svo kom danskennari og kenndi afró dans í Kramhúsinu og hópur, þar á meðal systir mín, fóru í danskennslu. Systir mín var ein af þeim fyrstu Döff manneskum hóf nám á kokkabrautinni í Fjölbraut í Breiðholti, hún ætlaði að verða kokkur alveg eins og pabbi sinn og opna veitingastað. Því miður náðum við ekki að sjá þennan draum rætast því hún dó í bílslysi ári eftir að hún byrjaði í náminu sínu. En þetta var barátta hjá foreldrum mínum og þau fórnuðu heilmiklu til þess að draumur systur minnar yrði að veruleika. Þess má geta að lögin sem ég vitnaði í hér að ofan voru ekki komin í gildi þegar systir mín dó, sumarið 1990. En þessi lög er í gildi í dag og búin að vera í gildi síðan 2009 hið minnsta. Og ég er enn að berjast fyrir því að barn sem er á grunnskólaaldri sé metið út frá getu og hæfni þess og muni ekki hafa áhrif á áframhaldandi nám barnsins. Þegar strákurinn minn á í erfiðleikum með að læra Íslendingasögurnar þá fær hann „Þarnast þjálfunar“. Hann skilur ekki afhverju hann á lesa þennan texta sem hann tengir ekki við. „Þarfnast þjálfunar“ þegar viðmiðið er “ Tjáð sig skýrt og heyrilega fyrir framan hóp af fólki” – fötlun hans er málröskun og hann er búinn að vera í talkennslu frá því hann var fjögra ára. Svar sem við fáum – hann gæti fengið stjörnumerkingar en ekki hægt að sníða þetta viðmið að honum. Og annað svar var að menntaskólarnir væru ekki að taka mið af fötlun einstaklinga en lögin segja til um: „Á framhaldsskólastigi skal veita nemendum með fötlun, sbr. 2. gr. laga nr. 59/1992, um málefni [fatlaðs fólks], 1) og nemendum með tilfinningalega eða félagslega örðugleika kennslu og sérstakan stuðning í námi. Látin skal í té sérfræðileg aðstoð og viðeigandi aðbúnaður eftir því sem þörf krefur. Nemendur með fötlun skulu stunda nám við hlið annarra nemenda eftir því sem kostur er“. Það eiga allir rétt á því að fá stunda nám sem þeir vilja leggja fyrir sig. Og einnig stendur þetta: „Framhaldsskólar skulu leitast við að veita þeim nemendum sérstakan stuðning sem eiga við sértæka námsörðugleika að stríða eða veikindi“. Barn á einhverfurófi á rétt á því að fá sömu menntun og aðrir og það sé tekið tillit til þeirra fötlunar. Það á ekki að setja þau í box og ákveða fyrir þau hvað þau eiga að gera í framtíðinni. Það á að aðlaga matið að þeim en ekki öfugt. Það á að aðlaga námið að þeim en ekki þau að náminu. Ég fékk eitt sinn að heyra frá kennara að það hefði séð barn eða fullorðinn einstakling sem væri svo líkur syni mínum vera að vinna í kerrudeildinni í Hagkaup og lýsti því hvað þessi einstaklingur stæði sig vel í sínu starfi. Ég efast ekki um að hann hafi staðið sig vel, en ég varð kjaftstopp og mig blöskraði því þessi einstaklingur er kennari og sá þetta fyrir sér fyrir barnið mitt. Það var þegar búið að setja barnið mitt í box og ákveða hvað hann gæti gert og hvað ekki. Einhverfir einstaklingar og aðrir geta það sem þeir ætla sér og hafa áhuga á. Áður en allar þessar greiningar komu, var fullt af einstaklingum sem fór í gegnum menntakerfið án þess að hugsað væri eitthvað út í hvort það væri á rófinu eða ekki. Ég á örugglega fullt af vinum sem eru vel á rófinu og ég er það kannski sjálf og það er bara allt í lagi. Ég á æðislega vini og þeir eru í öllum gerðum og frábærir og það þarf ekki að flokka þá. Við aðlögum okkur að kostum og göllum hvers annars, afhverju getur skólinn það ekki líka? Greiningar áttu að auðvelda þennan hluta, ekki að draga fólk í dilka. Höfundur er kennari, þjóðfræðingur og safnafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skóla - og menntamál Grunnskólar Jafnréttismál Mest lesið Úr hörðustu átt Rósa Guðbjartsdóttir!!! Alma Björk Ástþórsdóttir Skoðun Harka af sér og halda áfram Hulda Jónsdóttir Tölgyes Skoðun Hugleiðingar um listamannalaun V Þórhallur Guðmundsson Skoðun Álitsgerð um hvalveiðar, sögu og stöðu þeirra, misferli, lögbrot og veiðileyfi, sem ekki stenzt Ole Anton Bieltvedt Skoðun Olíunotkun er þjóðaröryggismál Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Hugleiðingar um virðismat kennara Bergur Hauksson Skoðun Kennarastarfið óheillandi... því miður Guðrún Kjartansdóttir Skoðun Við kjósum Magnús Karl Lotta María Ellingsen,Jón Ólafsson Skoðun Jafnrétti sem leiðarljós í starfi Háskóla Íslands Silja Bára R. Ómarsdóttir Skoðun Er samfélagslegt stórslys í uppsiglingu? Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Álitsgerð um hvalveiðar, sögu og stöðu þeirra, misferli, lögbrot og veiðileyfi, sem ekki stenzt Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Hugleiðingar um listamannalaun V Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Úr hörðustu átt Rósa Guðbjartsdóttir!!! Alma Björk Ástþórsdóttir skrifar Skoðun Olíunotkun er þjóðaröryggismál Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Mokum ofan í skotgrafirnar Teitur Atlason skrifar Skoðun Kennarastarfið óheillandi... því miður Guðrún Kjartansdóttir skrifar Skoðun Jafnrétti sem leiðarljós í starfi Háskóla Íslands Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar Skoðun Skattspor ferðaþjónustunnar 184 milljarðar árið 2023 Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Kynskiptur vinnumarkaður Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Við kjósum Magnús Karl Lotta María Ellingsen,Jón Ólafsson skrifar Skoðun Harka af sér og halda áfram Hulda Jónsdóttir Tölgyes skrifar Skoðun Mjólkursamsalan færir hundruð milljóna til erlendra bænda Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Gulur, rauður, blár og B+ Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Í hverjum bekk býr rithöfundur – Ísland, land lifandi ævintýra Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Tryggjum gæði í mannvirkjaiðnaði Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Reykjavík er höfuðborg okkar allra Ásthildur Sturludóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,Gerður Björk Sveinsdóttir,Íris Róbertsdóttir,Jóna Árný Þórðardóttir,Katrín Sigurjónsdóttir,Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Sigurjón Andrésson skrifar Skoðun Fjárfestum í vegakerfinu Stefán Broddi Guðjónsson skrifar Skoðun Vandi Háskóla Ísland og lausnir – I – stéttarfélög Pétur Henry Petersen skrifar Skoðun Skjánotkun foreldra - tímarnir breytast og tengslin með? Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun Til þjónustu reiðubúin í Garðabæ Almar Guðmundsson skrifar Skoðun Vindmyllugarðar í einkaeigu ekki hagkvæmir fyrir almenning Hildur Þórðardóttir,Stefanía Gísladóttir skrifar Skoðun Tilvistarkreppa leikskólakennara? Helga Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nauðgunarmál, 2. grein. Upplýsingar fást ekki Jörgen Ingimar Hansson skrifar Skoðun Ekki láta aðra kjósa fyrir þig Flosi Eiríksson skrifar Skoðun Er tantra einungis um kynlíf? Rajan Parrikar skrifar Skoðun Óverðtryggð húsnæðislán til 25 ára Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Alþjóðlegir straumar í menntamálum: Valdeflum kennara Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Háskóli á heimsmælikvarða - Silju Báru í rektorinn! Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um virðismat kennara Bergur Hauksson skrifar Sjá meira
Álitsgerð um hvalveiðar, sögu og stöðu þeirra, misferli, lögbrot og veiðileyfi, sem ekki stenzt Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Álitsgerð um hvalveiðar, sögu og stöðu þeirra, misferli, lögbrot og veiðileyfi, sem ekki stenzt Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Í hverjum bekk býr rithöfundur – Ísland, land lifandi ævintýra Einar Mikael Sverrisson skrifar
Skoðun Reykjavík er höfuðborg okkar allra Ásthildur Sturludóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir,Gerður Björk Sveinsdóttir,Íris Róbertsdóttir,Jóna Árný Þórðardóttir,Katrín Sigurjónsdóttir,Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir,Sigríður Júlía Brynleifsdóttir,Sigurjón Andrésson skrifar
Skoðun Vindmyllugarðar í einkaeigu ekki hagkvæmir fyrir almenning Hildur Þórðardóttir,Stefanía Gísladóttir skrifar
Skoðun Velferð og öryggi barna í skólum og í almenningssamgöngum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Álitsgerð um hvalveiðar, sögu og stöðu þeirra, misferli, lögbrot og veiðileyfi, sem ekki stenzt Ole Anton Bieltvedt Skoðun