ESB er (enn) ekki varnarbandalag Hallgrímur Oddsson skrifar 30. janúar 2026 12:33 Atgangur Bandaríkjaforseta á nýju ári hefur enn frekar hrist upp í geópólitísku landslagi. Árleg alþjóðaráðstefna um efnahagsmál í Davos var áhugaverð í fyrsta sinn í manna minnum, lituð af vaxandi spennu í samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu vegna Grænlands og áhrifunum á viðskiptasambönd og varnarbandalög. Í Davos viku kurteislegar yfirlýsingar ríkjaleiðtoga um betri heim fyrir alvörugefinni umræðu. Öll sneri hún að einu landi og leiðtoga þess. Hvernig eiga ríki að bregðast við nýrri utanríkisstefnu Bandaríkjanna? Getur Evrópa varið sig án stuðnings Bandaríkjanna? Hver yrði staða NATO án aðkomu Bandaríkjanna? Spurningar sem þóttu fjarstæðukenndar fyrir örfáum árum eru nú bornar upp af blaðamönnum án afsakana. Einn fyrir alla, allir fyrir einn Tvennt hefur undirbyggt mátt Atlantshafsbandalagsins frá stofnun þess: Hernaðar- og kjarnorkustyrkur Bandaríkjanna og 5. grein stofnsáttmálans um að árás á eitt ríki jafngildi árás á þau öll: „Aðilar eru sammála um, að vopnuð árás á einn þeirra eða fleiri í Evrópu eða Norður-Ameríku skuli talin árás á þá alla; fyrir því eru þeir sammála um, ef slík vopnuð árás verður gerð, að þá muni hver þeirra í samræmi við rétt þann til eigin varnar og sameiginlegrar, sem viðurkenndur er í 51. grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna, aðstoða aðila þann eða þá, sem á er ráðizt, með því að gera þegar í stað hver um sig og ásamt hinum aðilunum þær ráðstafanir, sem hann telur nauðsynlegar, og er þar með talin beiting vopnavalds, til þess að koma aftur á og varðveita öryggi Norður- Atlantshafssvæðisins.“ Í þessari umræðu allri hafa Evrópubúar, frá Íslandi til meginlandsins, rifjað upp og borið saman þau sambærilegu ákvæði sem finna má í sáttmálum Evrópusambandsins. Af 27 ríkjum ESB eiga 23 þeirra einnig aðild að NATO, og í 42.7 ákvæði Lissabon-sáttmálans frá 2009 er útlistaður grundvöllurinn fyrir sameiginlegum viðbrögðum við ytri árásum: „Verði aðildarríki fyrir vopnaðri árás á yfirráðasvæði sínu skal hinum aðildarríkjunum vera skylt að bjóða fram hjálp sína og aðstoð eins og þau frekast geta , í samræmi við 51. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þetta skal ekki hafa áhrif á sérstakt eðli stefnu tiltekinna aðildarríkja í öryggis- og varnarmálum. Skuldbindingar og samstarf á þessu sviði skulu vera í samræmi við skuldbindingar gagnvart Atlantshafsbandalaginu, sem verður áfram grundvöllur sameiginlegra varna þeirra ríkja sem eru aðilar að því og vettvangur framkvæmdar á þeim vörnum.“ Með vísan í Atlantshafsbandalagið og veikara orðalagi um hvað felst í aðstoð, endurspeglar Lissabon-sáttmálinn þann veruleika að varnarstoð flestra Evrópuríkja er NATO en ekki ESB. Á þeim vettvangi á sér stað hernaðarleg samþætting og eiginleg framkvæmd en ekki hjá ESB. Í gegnum tíðina hafa framkvæmdastjórar NATO einmitt lagt áherslu á að forðast þurfi tvíverknað eða að ESB eigi í samkeppni við NATO um framkvæmd varnarmála. Samhliða hefur forysta NATO endurómað kröfur Bandaríkjanna um að Evrópa leggi meira til eigin öryggismála. Varnar- og öryggismál ESB í dag En þótt ESB sé ekki varnar- og öryggisbandalag í sama skilningi og NATO, þá fara þær áherslur og starfsemi sambandsins vaxandi sem snúa að vörnum og öryggi ríkjanna. Í fyrsta lagi eiga öll ríki ESB aðild að Varnarmálaskrifstofu Evrópu (EDA). Hún var fyrst sett á laggirnar árið 2004 til að auka samvinnu á sviði varnarmála. Í krafti undanþágu stóðu Danir lengi vel eitt ESB-ríkja utan aðildar að Varnarmálaskrifstofunni en samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2023 að gerast aðilar. Hlutverk EDA í dag varðar öðru fremur pólitíska stefnumótun og áætlanagerð, en ekki bein umráð hersveita. Readiness 2030, áætlun ESB um framtíðaruppbyggingu varnarstyrks, er t.d. mótuð og framfylgt með aðkomu Varnarmálaskrifstofunnar og utanríkismálastjóra ESB, Kaja Kallas. Í öðru lagi hefur það málefni sem helst hefur hrundið af stað breyttri varnarmálastefnu í Evrópu, þ.e. innrás Rússlands í Úkraínu fyrir fjórum árum síðan, fundið sinn farveg á vettvangi ESB. Í desember síðastliðnum samþykkti Leiðtogaráðið (þ.e. leiðtogar ríkjanna 27) um 90 milljarða evra fjármögnun til stuðnings Úkraínu. Að þremur ófúsum ESB-ríkjum undanskildum (Ungverjalandi, Tékklandi og Slóvakíu), skuldbinda ríkin sig til að styðja við Úkraínu. Fjármagnið er sótt með skuldabréfaútgáfu, greitt í gegnum sameiginlega sjóði ESB og verður endurgreitt hlutfallslega af ríkjunum 24 sem samþykktu þátttöku. Fyrirkomulag fjármögnunarinnar á sér fyrirmynd frá tímum kórónuveirunnar, þegar Evrópusambandið studdi ríkin með eigin lántökum. Ákvörðunarferlið um þessa tilhögun í desember var að mörgu leyti „evrópskt“, að því leyti að erfiðlega gekk að ná samkomulagi um hvernig fjármögnun til stuðnings Úkraínu skyldi háttað. Að lokum var ákveðið að nota ekki frystar eignir Rússa í Evrópu heldur afla fjárins með samevrópskri lántöku. Það hefur sína kosti, og færir t.a.m. fjárstuðning ESB-ríkja frá þeirra eigin efnahagsreikningi yfir til Evrópusambandsins. Bart de Wever, forsætisráðherra Belgíu, kjarnaði vel málalok og raunverulega framkvæmd evrópskrar samvinnu þegar niðurstaðan fékkst skömmu fyrir jól: „Í lok dags vorum við einróma. Ákvörðunin var einróma, þar sem þrjú ríki draga sig út úr samkomulaginu (e. opt-out). En meira að segja þau ríki leyfa okkur að taka ákvörðunina. Hvar er þá ágreiningurinn? Það er alltaf ágreiningur við evrópska borðið. Þetta er Evrópa. Tuttugu og sjö ríki, ólíkir hagsmunir, ólíkt almenningsálit, sum nærri Rússlandi, önnur fjarri Rússlandi. Við erum ekki öll að spila sömu íþrótt. En í lok dags liggur fyrir ákvörðun með einróma stuðningi.“ Miklu meira í varnarmál Í þriðja lagi hefur ESB fundið sér hlutverk við að flýta varnaruppbyggingu í ríkjum ESB. Sérstakt lánafyrirkomulag, SAFE (Security Action for Europe), var samþykkt í fyrra og veitir löndunum aðgang að 150 milljarða evra lánalínu til að auka hernaðarmátt sinn. SAFE er hluti af stærri aðgerðaáætlun, fyrrnefndri Readiness 2030, sem á að virkja alls um 800 milljarða evra til varnarmála í formi lánveitinga og sveigjanleika í ríkisútgjöldum. Áætlanir um útgjöld ESB á árunum 2028-2034 gera einnig ráð fyrir auknum útgjöldum til málaflokksins. Sögulega hafa um ⅔ hlutar sameiginlegra sjóða ESB runnið til landbúnaðar- og byggðamála. Í dag er tekist á um endanlegt fyrirkomulag næsta fjárhagsramma (2028-34) og margt er enn óljóst um niðurstöðuna. Þar takast á hagsmunir bæði ríkjanna og einstakra atvinnugreina. En vilji framkvæmdastjórnar um að meira fari í varnarmálin er skýr. Graf I-com, stofnunar um samkeppnishæfni. Útlit er fyrir nokkrar breytingar í áherslum Evrópusambandsins við nýtingu sameiginlegra sjóða sambandsins, sem í heild nema um 1,2% af þjóðartekjum aðildarríkjanna, til að nýta hærra hlutfall í uppbyggingu á „strategísku“ sjálfstæði Evrópu, m.a. varnarmál. Meðal annars er gert ráð fyrir stofnun nýs uppbyggingarsjóðs sem ætlað er að styrkja samkeppnishæfni Evrópu. Hann myndi leysa af hólmi marga af núverandi uppbyggingarsjóðum ESB. Fé yrði beint til þeirra atvinnugreina eða verkefna sem teljast „strategískt“ mikilvæg fyrir Evrópu, einkum varnarmál. NATO er dautt, lengi lifi NATO Ofantalin atriði sýna hvernig Evrópusambandið er að breytast, eða að reyna að breytast, í takt við óvissutímana. Ummerki um að ESB verði beinlínis varnarbandalag eru þó ekki augljós. Stuðningur við Úkraínu og uppbygging eigin varna eru tvær megináherslur öryggismála Evrópuríkja í dag og á meðan sameiginleg framkvæmd og samþætting hermála er hjá NATO, þá hefur ESB verið virkjað til að samþætta fjármálahliðina. Hægt er að teikna upp margar sviðsmyndir, ákveði Bandaríkin að draga verulega úr eða hætta samvinnuverkefnum í Evrópu. Óvarlegt er að reifa þær í smáatriðum, enda þyrfti að styðjast við getgátur um næstu skref Trumps Bandaríkjaforseta. Fjórðungi er lokið af seinni forsetatíð hans, og engar líkur á öðru en að næstu þrjú ár muni áfram litast af stóryrtum yfirlýsingum hans og eftirfylgni einhverra þeirra. Óljóst er einnig hvernig stjórnarfar og staða Bandaríkjanna breytist til enn lengri tíma litið. En ljóst má vera að ESB er ekki endilega augljósi valkosturinn sem hentugasti vettvangurinn fyrir framkvæmd sameiginlegra varnarmála. Sú sviðsmynd undanskilur vinaþjóðir á borð við Bretland, Noreg og Ísland (og Kanada). Auk þess inniheldur hún hið „óþekka“ Ungverjaland Orbans, og einnig Slóvakíu (og Tékkland) þar sem stjórnarskipti hafa haft áhrif á samstarfsviljann. Ríkin þrjú hafa (mismikið) reynst ósamvinnuþýð þegar kemur að stuðningi við Úkraínu og Ungverjar gert hvert samstöðuskref ESB-ríkjanna erfitt. Í þessu samhengi er Bandalag hinna viljugu þjóða ákveðið svar við flóknum veruleika en sá vettvangur er þó óformlegur, varðar aðeins Úkraínu og er auk þess stór, með 35 þjóðir innanborðs. Evrópa hefur margt að verja og hagsmunir ríkjanna eru samofnir vegna viðskipta og gilda um að virða skuli mannréttindi, frelsi, lýðræði, jafnrétti og réttarríki. Þeim er auðvelt að gleyma eða taka sem gefnum, en grundvallargildi öðlast vægi á ný þegar að þeim er sótt. Til að verja þau þarf Evrópa að geta varið sig sjálf. Höfundur er stofnandi og framkvæmdastjóri Evrópustrauma, hugveitu um Evrópumál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hallgrímur Oddsson Öryggis- og varnarmál Evrópusambandið Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Að virða niðurstöðu sem manni líkar ekki Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar Skoðun Bætir tækni í kennslustofunni nám? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin alls staðar Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Helmingsafsláttur af mennskunni Arndís Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Hvað borga ferðamenn fyrir nýtingu náttúru og innviða? Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Fjölmiðlakreppan: Lýðræðishalli en ekki bara rekstrarvandi Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun The EU’s reduced attractiveness for prosperous countries Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Ábyrgðin er okkar allra Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Börnin eru ekki þau sem hafa brugðist, það er námsumhverfið sem hefur breyst Inga Henriksen skrifar
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun