Hvar getur þú skorið niður 200.000 krónur? Heiða Ingimarsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 11:03 Aðgengi ungmenna að framhaldsnámi ætti að vera gott og þau ættu að geta sótt sér það nám sem þau hafa áhuga á. En er það raunin? Augljóslega er ekki hægt að hafa verk- og framhaldsskóla í hverju byggðarlagi en þess vegna verður að gæta þess að aðgengi þeirra sem búa fjarri slíkum skólum sé gott. Í dag er það þannig að búseta og fjárhagur forsjáraðila getur sett ansi stórt strik í reikninginn. Hér er raunverulegt reikningsdæmi fyrir fjölskyldu sem þarf að sækja nám í annað byggðarlag. Þetta er kostnaðurinn sem mitt heimili stendur sannarlega frammi fyrir vegna náms. Á vorönn munum við greiða: 360.000 í leigu á herbergi á heimavist. 335.956 fyrir tvær máltíðir á dag í mötuneyti, 7 daga vikunnar. 36.500 fyrir þjónustu í þvottahúsi. Þetta gerir 732.456 fyrir önnina. En verum sanngjörn. Við fáum sporslur á móti: 163.593 í húsaleigubætur frá sveitarfélaginu. 213.000 í jöfnunarstyrk. Sem gerir samtals 376.593 í niðurgreiðslu á móti á vorönn. Það breytir því ekki að heimilið þarf að standa undir 355.863 krónum á önn. Það gerir næstum því aukalegar 80.000 krónur á mánuði. Þá ber að hafa í huga að jöfnunarstyrkurinn er eftir á greiddur EF ungmennið stendur sig vel í skólanum og því viss áhætta að treysta á hann. En þar af leiðandi þarf heimilið að reiða fram auka 115.434 á mánuði og fær síðan jöfnunarstyrkinn eftir að öllu hefur verið náð. Forsjáraðili fær svo jöfnunarstyrkinn ekki greiddan heldur ungmennið svo það þarf að semja við ungmennið um að leggja hann inn á foreldrið. Þar sem að ungmennið mitt vill stundum koma heim þá getur það tekið rútu sem kostar 10800 í hvert skipti. Þá þarf það einnig að borða auka máltíðir og eiga mat á herberginu hjá sér. Til þess að geyma og nýta þann mat þurfti að leggja út fyrir litlum ísskáp, örbylgjuofni, katli og svo framvegis. Allt eitthvað sem hefði einfaldlega verið til heima ef ungmennið hefði getað sótt sér menntun í heimabyggð. Nú er það svo að næsta haust ætlar annað ungmenni á heimilinu að sækja sér nám í sama skóla. Við fáum 10% afslátt fyrir það ungmenni. Sem er augljóslega ekki mikill peningur í stóra samhenginu. Við megum því gera ráð fyrir að heimilið þurfi að standa undir auka 200.000 króna útgjöldum á mánuði á meðan ungmennin okkar eru í námi. Þá er þetta ekki allt því þau eru í iðnnámi svo ofan á þetta bætist töluvert efnisgjald. Ég veit ekki hvar við getum skorið niður til að kosta þetta og ég veit að mörg heimili geta hreint ekki mætt slíkum kostnaði. Það er búið að vera átak í að hvetja ungmenni til náms í iðngreinum. Áhuginn er sannarlega til staðar í mínu nærumhverfi en hvort fjárhagslegt bolmagn fjölskyldnanna þar að baki sé til staðar er svo annað mál. Svona aukakostnaður getur orðið til þess að ungmennum sé ekki fært að sækja það nám sem þau óska sér eða séu lött til þess og frekar hvött eða skilyrt til að sækja sér nám í heimabyggð, ef það er í boði, en ekki öll ungmenni búa í nálægð við framhaldsskóla. Þetta er eitthvað sem þarf að laga því eins og kemur fram á heimasíðu mennta- og barnamálaráðuneytisins þá ættu að vera jöfn tækifæri fyrir alla. Það er ekki raunin eins og þetta er í dag. Höfundur er varaþingmaður Viðreisnar og móðir framhaldsskólanema. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heiða Ingimarsdóttir Framhaldsskólar Viðreisn Mest lesið Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar