Áhrif endurgjafar á virkni heilans Hanna Steinunn Steingrímsdóttir skrifar 20. mars 2026 07:02 Nám byggir að stórum hluta á því hvernig við bregðumst við afleiðingum hegðunar: við endurtökum það sem skilar árangri og drögum úr því sem gerir það ekki. Þess vegna skiptir endurgjöf – að fá skýr skilaboð um hvað er rétt og rangt – miklu máli þegar við erum að læra. Í nýlegri rannsókn , unnin í samstarfi Háskólans í Reykjavík og Oslo Metropolitan University, var skoðað hvernig virkni heilans breytist á meðan nám á sér stað. Verkefnið Þátttakendur leystu verkefni sem fólst í því að læra tengsl milli ókunnra mynda. Þar sem engin fyrri reynsla gat hjálpað til, þurftu þeir að treysta á endurgjöf sem sagði til um hvort svörin væru rétt eða röng. Á meðan verkefnið stóð yfir var heilavirkni skráð með heilariti (e. electroencephalography; EEG), sem gerir kleift að fylgjast með virkni heilans í rauntíma. Hvað kom í ljós? Heilaritin sýndu skýrar breytingar frá upphafi verkefnisins – þegar þátttakendur vissu ekki réttu tengslin – og fram að því að tengslin höfðu verið lærð. Niðurstöðurnar bentu til þess að áður en færni var náð væri meiri virkni í taugakerfinu, en þegar tengslin voru orðin kunnugleg dró úr virkni. Einnig var athyglisvert að þessar breytingar gátu að hluta til spáð fyrir um frammistöðu í seinni hluta verkefnisins þar sem þátttakendur spurðir um önnur tengsl milli mynda sem ekki höfðu verið kennd beint, en voru þó til staðar. Hagnýtt gildi Þótt rannsóknin teljist grunnrannsókn gefur hún mikilvægar vísbendingar um hvernig heilinn vinnur úr endurgjöf við nám. Slík þekking getur nýst á hagnýtum vettvangi, til dæmis í klínísku starfi, þar sem heilarit gæti veitt innsýn í rauntíma hvernig einstaklingur bregst við þjálfun. Í áframhaldandi rannsóknum væri gagnlegt að kanna hvort ólíkar tegundir endurgjafar hafi mismunandi áhrif á nám – og í framhaldinu nýta þá þekkingarsköpun í endurhæfingu, til dæmis hjá fólki með ákominn heilaskaða. Aukinn skilningur á þessum ferlum getur hjálpað fagaðilum að hanna markvissari og einstaklingsmiðaðri íhlutanir og stuðla þannig að skilvirkara námi. Pistillinn er skrifaður í tilefni að Alþjóðlegrar heilaviku sem verður fagnað í Háskólanum í Reykjavík dagana 16.-22. mars. Dagskrá viðburða er að finna á vefsíðu Háskólans í Reykjavík, hr.is. Höfundur er dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og klínískur atferlisfræðingur. Heimild Edmunds, K. J., Chu, M. Y., Arntzen, E., Gargiulo, P., & Steingrimsdottir, H. S. Feedback-Driven Event-Related Potentials in Conditional Discrimination: Insights from a Matching-to-Sample Study. Frontiers in Human Neuroscience, 20, 1557497. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar