Sigurvíma Trump Hannes Örn Blandon skrifar 13. mars 2026 14:02 Ég spyr alla þá er þekkja innviðu, sögu og katastrófur plánetunnar. Hvernig stendur á því að bandarískir forsetar virðast aldrei læra neitt af sögunni, hvað þá eigin sögu? Þeir þurftu að lúffa frá vonlausu stríði í Kóreu. Þeir flúðu Víetnam með skottið milli fótanna eftir að hafa fórnað tug milljörðum dollara þyrlur, vopn og bombur, fórnað þúsundum dáta til einskis og skilið eftir milljónir íbúa dauða og aðra eignalausa. Þeir flúðu Írak og Afganistan og skildu löndin eftir í rústum og upplausn sem og Líbíu sömuleiðis, bíðandi stórkostlega ósigra. Í fréttum BBC birtist um daginn þingmaður Rebúblíkana Dave LaHood að nafni og benti á að orrahríðin í Írak og Afganistan hefðu verið allt öðruvísi stríð heldur en það sem nú geisar. Þar hefðu þeir einungis misst sjöþúsund hermenn. Nú er sumsé komið að Íran er einræðisherrann í USA ásamt einræðisherranum í Tel Aviv að hafa hafið að bombardera harðlínustjórnina sem ríkir í hinni gömlu Persíu. Sú stjórn heittrúarmanna hefur barið niður allan mótþróa, fangað og drepið og þúsundir sinna landsmanna. Helsta verkfæri múllanna er svokölluð byltingarvakt sem gengur vasklega fram í að limlesta fólk. Þeir eru búnir að skemmta sér við þá iðju síðan 1979 er Reza Palavi keisara var steypt af stóli. Leyniþjónusta hans hins vegar bar nafnið Savak, ef mér skjöplast ekki, og var afar iðin við sömu verkefni sumsé að fanga, pynta og myrða þá sem ybbuðu gogg við keisarann. Þessi ótukt var studd af annars ágætum forseta USA Jimmy Carter, sem horfði oft saklaus sem barn á skjáinn þegar hann spjallaði við landsmenn og vissi ekkert hvað var að gerast í kringum hann. Fyrir nokkrum árum fékk ég ásamt nokkrum blaðamönnum að heimsækja stöðvar NATO í Brüssel. Þar var einn generállinn inntur eftir því hvenær terroristar yrðu endanlega brotnir á bak aftur. Svar: aldrei. Það er ekki hægt að sannfæra eða yfirbuga hryðjuverkamenn. Nær hogginn er einn haus spretta upp þrír ef ekki þrjátíu aðrir, sbr. Grískri goðafræði. Hjálpi okkur allir heilagir! Hvað er þessi ódannaði einræðisherra sem situr forsetastóli í USA og sem er búinn að taka kongressið úr sambandi, að kalla yfir okkur. Hann eins og aðrir týrannar er búinn að koma sér upp eigin „Sonder Abteilung” (lesendur fletti því upp) er kallast ICE, sem eru ískaldir, grímuklæddir durtar. Í þessum aðgerðum reynir hann að drepa Epsteinvesenið á dreif. Næst ætlar hann að herja á Kúbu. Er þá ekki Grænland síðan á dagskránni og þaðan er stutt að hoppa yfir sundið!. Týranninn í Tel Aviv lætur ekki af að berja á Persum, Hisbollah og Hamas í þeirri von að enginn taki eftir því hann lætur ekki af að terrorisera Palestínumenn og ryðja þeim burt af Vesturbakkanum. Hann er item þeirrar skoðunar að Palestínumenn tveggja ára og eldri séu þegar orðnir Hamasliðar og hispolar og því réttdræpir. Þá er ónefndur kollegi þeirra í Kreml sem lætur ekki af að reyna að eyðileggja Úkraínu með blessun patríarkans af Garðaríki. Við verðum samt að láta sem ekkert sé og sitja fullir með æðruleysi hvað sem á dynur og sanka að okkur vatni og niðursuðudósum. Trump forseti lýsti yfir algjörum sigri yfir Írönum strax á öðrum degi og Bandaríkjamenn væru búnir að sprengja Íran í tætlur. Hvernig stendur þá á því að Íranir halda áfram að skjóta látlaust á nágranna sína? Megi hið absolútta hlífa mér við bókstafstrúarmönnum hvort þeir eru kristnir, múslímar, gyðingar, orþódoxar, rebúblikanar, samkynhneigðir, gagnkynhneigðir eða einangrunarsinnar. Látum oss því ganga í ESB! Megi englar hlúa að sálum vorum í nótt sem aðrar nætur. Höfundur er fyrrverandi prófastur og áhugamaður um frið, kærleika og umburðarlyndi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar