Viðskipti innlent

Spá lítils­háttar aukningu á verð­bólgu í apríl

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Greiningardeild Landsbankans spáir í spilin.
Greiningardeild Landsbankans spáir í spilin. Vísir/vilhelm

Greiningardeild Landsbankans spáir því að verðbólga muni hækka úr 5,4 prósentum í 5,5 prósent í apríl. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafi þar mest áhrif á hækkun milli mánaða samkvæmt spánni.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu. Greiningardeildin spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05 prósent milli mánaða í apríl. Segir deildin að lægri virðisaukaskattur á eldsneyti muni skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði en að áfram sé töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.

„Hækkun ársverðbólgu í mars mátti að stærstum hluta rekja til hækkandi eldsneytisverðs vegna átakanna við Persaflóa. Við gerum ráð fyrir að sú þróun haldi áfram nú í apríl. Hærri flugfargjöld hafa einnig áhrif til hækkunar á ársverðbólgu gangi spáin eftir. Á móti gerum við ráð fyrir að reiknuð húsaleiga verði til lækkunar á ársverðbólgu þriðja mánuðinn í röð og að verð á matarkörfunni hækki nokkuð minna en síðustu mánuði og hafi einnig áhrif til lækkunar ársverðbólgu.“

Segir greiningardeildin að verðbólguspáin til næstu mánaða sé aðeins lægri en sú sem birst hafi 26. mars, eftir birtingu síðustu verðbólgumælingar. Spáin sé að mestu óbreytt fyrir aprílmánuð en lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hafi mest áhrif á lægri spá í maí. „Við gerum ráð fyrir að vísitalan hækki um 1,05% í apríl, lækki síðan um 0,36% í maí og hækki síðan um 0,35% í júní og 0,03% í júlí. Gangi það eftir mun verðbólga mælast 5,5% í apríl, 4,9% í maí og 4,6% í júní og júlí.“

Sjá nánar á vef Landsbankans. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×