Hlutverk háskóla í gervigreindarbyltingunni Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar 20. apríl 2026 12:00 Umræðan um gervigreind er oft á þá leið að hún hafi orðið til á einni nóttu og umturnað samfélaginu þannig að ef við aðlögum okkur ekki strax verðum við á einhvern hátt undir. En raunin er sú að gervigreind er ekki nýtt fyrirbæri. Hún hefur verið í stöðugri mótun í áratugi, tekið hæg en markvissu skref, og einnig tekið stórum framförum í blandi við allskyns tilraunir á leiðinni sem sýna að tæknin er enn langt frá því að vera fullmótuð. Til að skilja gervigreind er ágætt að líta til þess hvernig þekkingin varð til, hvar hún var ræktuð og hvernig henni var miðlað, löngu áður en fólk fór að leika sér með spjallmenni, gervigreindamyndir og gervigreindaraðstoðarmenn eða láta tæknina skrifa texta og semja misgóð popplög. Háskólar hafa gegnt lykilhlutverki í þróun gervigreindar og munu gera það áfram. Háskólinn í Reykjavík hefur verið leiðandi afl í uppbyggingu þekkingar á sviði gervigreindar hér á landi í meira en tvo áratugi. Skýringin á því er raunar einföld: Akademískt starfsfólk skólans hóf snemma að móta gervigreind sem sjálfstætt og öflugt fræðasvið innan tölvunarfræðideildar HR. CADIA, Center for Analysis and Design of Intelligent Agents, varð fljótt lykilmiðja þeirrar uppbyggingar og var fyrsta rannsóknasetur á Íslandi á sviði gervigreindar. Þar hafa fræðimenn og nemendur á öllum námsstigum í HR unnið saman að rannsóknum og þróun á gervigreind í rúm tuttugu ár. Jafnframt hefur HR skapað sterkan fræðilegan grunn á lykilsviðum sem skipta gervigreind miklu máli, ekki síst í fræðilegri tölvunarfræði. Þar er ICE-TCS, Icelandic Centre of Excellence in Theoretical Computer Science, í lykilhlutverki. Með rannsóknum sínum á sviði fræðilegrar tölvunarfræði styrkir setrið þau grunnvísindi og þann þekkingargrunn sem gervigreindin hvílir á. En gervigreind er ekki bara rannsóknir á skrifstofu prófessora eða í rannsóknasetrum og rannsóknahópum. Rannsóknirnar og kennsla verður að skila sér í hæfu fólki sem getur sinnt starfsemi á þessu sviði til framtíðar. Það er þess vegna sem þróað hefur verið sérhæft meistaranám í gervigreind (MSc in Artificial Intelligence) í HR, þar sem lögð er áhersla á nýjustu aðferðir og rannsóknatengda nálgun á sviði gervigreindar. Þessi þáttur er mikilvægur vegna þess að samfélagið þarf fólk sem skilur forsendurnar, getur metið gæði gervigreindarinnar, greint galla hennar, tryggt persónuvernd og lagalega þætti tengda henni. Gervigreind er ekki töfralausn, heldur er hún er öflug tækni sem getur gert stórkostlega hluti en líka stórkostleg mistök. Hún getur hjálpað til við að greina mynstur í gögnum, hún getur bætt ferla, stutt ákvarðanir og hjálpað við að skapa lausnir á nýjum og gömlum vandamálum. En hún getur líka aukið óréttlæti og misrétti ef gögnin sem fara inn í hana eru bjöguð, hún getur dregið rangar ályktanir og grafið undan trausti ef enginn horfir á hana með gagnrýnum augum. Þess vegna skipta háskólar máli. Hlutverk þeirra er ekki aðeins að kenna hvernig tæknin virkar, heldur einnig hvers vegna hún skiptir máli og hvað getur farið úrskeiðis. Við HR hefur á þessum grunni skapast menning sem er bæði jarðbundin og ábyrg, en um leið metnaðarfull og kröfuhörð. Ef við viljum að Ísland verði ekki einungis áhorfandi að gervigreindarbyltingunni, heldur virkur þátttakandi sem ekki aðeins skilur, þróar og mótar tæknina heldur nýtir á eigin forsendum, þá þurfum við háskóla sem byggja upp þekkingu til langs tíma og hafa til þess bæði burði og þolinmæði. HR er einn þeirra, meðal annars með rannsóknasetrum á borð við CADIA og ICE-TCS og með öflugu meistaranámi í gervigreind á sviði tölvunarfræði. Gervigreind er ekki bara tækni. Hún snýst líka um fólk, menntun, rannsóknir, ábyrgð og að byggja framtíðina ekki aðeins hratt, heldur vel.Þarna eruHáskólar í lykilhlutverki. Höfundur er aðstoðarrektor rannsókna, nýsköpunar og atvinnulíftengsla við HR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar